Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.2003, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. MAÍ 2003 15
Næsta v ika
Laugardagur
Gerðuberg kl. 14 Íslenska
bútasaums-
félagið stendur
fyrir sýningu á
nýjum teppum
sem eru unnin
með búta- eða ásaumstækni.
Þema sýningarinnar er ís-
lenskt – íslenskt landslag, nátt-
úra, mannlíf eða hvaðeina
sem minnir á Ísland að mati
þess sem teppið saumar. Dóm-
nefnd valdi teppin á sýninguna
og var skilyrði að teppin væru
hugverk höfunda. Félagið vill
ýta undir nýsköpun í búta-
saumi á Íslandi og end-
urspeglar sýningin það sem er
að gerast í dag á þeim vett-
vangi.
Eitt teppi verður valið besta
teppið á sýningunni af dóm-
nefnd. Pfaff Borgarljós leggur
til verðlaunin; Pfaff Quilt Ex-
pression 2044 saumavél. Af-
hending verðlaunanna fer
fram við opnunina.
Á sama tíma verður opnuð
sýning á ljós-
myndum af 60
brúm á þjóðvegi
1 sem teknar eru af Gunnari K.
Gunnlaugssyni.
Gunnar K. Gunnlaugsson
hefur á tímabilinu 2001–2003
tekið ljósmyndir af brúm á
þjóðvegi 1. Flestar myndanna
eru svart-hvítar en á sýning-
unni verða einnig nokkrar í lit.
Margar af þeim brúm sem
Gunnar hefur tekið myndir af,
hafa verið rifnar niður og aðr-
ar orðið samtvinnaðar nátt-
úrunni.
Á sýningunni verður sett upp
brú frá Límtré og kort af Íslandi
frá Eddu-útgáfu hf.
Sýningarnar eru opnar frá
kl. 11–19 mán.–fös. og kl. 13–
17 lau.–sun. Þeim lýkur 1. júní.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús kl.
14 Útskriftarsýn-
ing myndlist-
ardeildar og
hönnunar og arkitektúrdeildar
Listaháskóla Íslands. Stendur til
29. maí.
Gallerí Kambur kl. 15 Vor-
sýning 2003 er sýning á teikn-
ingum eftir listamennina Anne
Bennike frá Danmörku og
William Anthony frá Banda-
ríkjunum.
Sunnudagur
Salurinn kl. 16 Afmælishátíð
Kópavogsbæjar.
Salurinn kl. 20
Hátíðartónleikar
í Tíbrá. Söngv-
ararnir Snorri
Wium og Ólafur
Kjartan Sigurð-
arson og Jónas
Ingimundarson
píanóleikari
flytja íslensk sönglög.
Mánudagur
Salurinn kl. 20 Árlegir vor-
tónleikar Tónlist-
arskólans í
Reykjavík.
Fjölbreytt efn-
isskrá.
Aðgangur
ókeypis og öllum
heimill meðan
húsrúm leyfir.
Þriðjudagur
Íslenska óperan kl. 20 Þrír
af fastráðnum
söngvurum Ís-
lensku óp-
erunnar og
Chalumeaux-
tríóið flytja tónlist
eftir Wolfgang
Amadeus Moz-
art á tónleik-
unum Mozart fyrir sex.
Á tónleikunum verða flutt
fimm næturljóð og ein kans-
ónetta fyrir þrjá söngvara,
klarínettur og bassetthorn, sem
Mozart samdi á árunum
1783–1788 fyrir sig og vini
sína til að leika og syngja á
góðum samverustundum í
heimahúsum. Að auki verða
fluttar aríur, dúettar og terzett-
ar úr óperunum Brúðkaupi Fig-
aros og Cosi fan tutte.
Chalumeaux-tríóið er skip-
að klarínettuleikurunum Kjart-
ani Óskarssyni, Óskari Ingólfs-
syni og Sigurði I. Snorrasyni.
Söngvararnir þrír sem koma
fram á tónleikunum eru þau
Hulda Björk Garðarsdóttir
sópran, Davíð Ólafsson bassi
og Sesselja Kristjánsdóttir
mezzósópran.
Miðvikudagur
Hjallakirkja í Kópavogi kl.
20.30 Bach
Kantata nr. 106,
Buxtehude sóló-
kantata: Singet
dem Herrn, og
nokkrar a cap-
ella-mótettur.
Kammerkórinn
Vox gaudiae,
Laufey H. Geirs-
dóttir, Oddný Sigurðardóttir,
Guðlaugur Viktorsson, Bene-
dikt Ingólfsson og Kristján
Helgason. Barokksveitin Alda-
vinir (Camilla Söderberg,
Ragnheiður Haraldsdóttir,
Hildigunnur Halldórsdóttir,
Ólöf Sesselja Óskarsdóttir og
Sigurður Halldórsson), Lenka
Mátéová orgelleikari. Stjórn-
andi Jón Ólafur Sigurðsson.
Laugarneskirkja kl. 20
Raddbanda-
félag Reykja-
víkur heldur
tónleika. Það
er sönghópur
skipaður 11
einstaklingum
sem flestir hafa
sungið í ýms-
um kórum um
árabil, og margir eru jafnframt
í einsöngsnámi. Stjórnandi
kórsins er Sigrún Grendal.
Á efnisskrá er fjölbreytt úr-
val laga enda er Raddbanda-
félag Reykjavíkur nú að halda
sína fyrstu tónleika, eftir að
hafa þó sungið víða, s.s. við
vígslu Höfuðborgarstofu, á há-
tíðum í Smáralind, á ýmsum
kosningaskemmtunum, stóraf-
mælum og brúðkaupum svo
dæmi séu nefnd.
Föstudagur
Háskólabíó kl. 19.30
„Thank you for
the music“.
Hljómsveit-
arstjórinn Mart-
in Yates (stofn-
andi West End),
stýrir Sinfón-
íuhljómsveit Ís-
lands og söngvurum frá West
End í flutningi á öllum helstu
perlum ABBA-flokksins sáluga.
Hver man ekki eftir lögum eins
og Money money money, Wat-
erloo, Dancing Queen, Chiqu-
itita og Mama mia svo eitthað
sé nefnt.
Tilkynningar, sem birtast
eiga á þessari síðu, þurfa
að berast í síðasta lagi ár-
degis kl. 11 á fimmtudegi.
menning@mbl.is
Jón Ólafur
Sigurðsson
Sesselja
Kristjánsdóttir
Ólafur
Kjartan
Sigurðarson
Myndlist
Gallerí Fold, Rauð-
arárstíg: Pia Rakel
Sverrisdóttir. Til 11.5.
Gallerí Kambur: Anne
Bennike, William Anth-
ony.
Gallerí Skuggi: Guð-
rún H. Ragnarsdóttir,
Pétur Magnússon til
18.5.
Gerðarsafn: Gerður
Helgadóttir – 75 ára –
Yfirlitssýning. Til 17.6.
Gerðuberg: Íslenska
bútasaumsfélagið.
Gunnar K. Gunn-
laugsson, ljósmyndir. Til
1.6.
Hafnarborg: Richard
Vaux, Aðalheiður Skarp-
héðinsdóttir, Hjördís Frí-
mannsdóttir. Til 27. 5.
Hafnarhúsið: Útskrift-
arsýning LHÍ.
Hallgrímskirkja: List-
vefnaður Þorbjargar
Þórðardóttur. Til 26.5.
i8: Eggert Pétursson. Til
28. júní
Listasafn ASÍ. Kunito
Nagaoka/Sigrid Valt-
ingojer. Til 11.5.
Listasafn Akureyrar:
Ragnar Th. Sigurðsson,
Inn og út um gluggann.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laug-
ardaga og sunnudaga
kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Yf-
irlitssýning á verkum
Georgs Guðna. Vid-
eoinnsetning Steinu
Vasulka. Ásgrímur Jóns-
son. Til 11.5.
Listasafn Reykjavík-
ur – Ásmundarsafn:
Eygló Harðardóttir –
Kúlan. Til 11.5.
Listasafn Reykjavík-
ur – Kjarvalsstaðir:
Helgi Þorgils Frið-
jónsson. Ilmur Stef-
ánsdóttir. Til 11.5.
Mokka: Jóna Þorvalds-
dóttir. Til 22.5.
Nýlistasafnið Sólveig
Aðalsteinsdóttir/Kaj Ny-
borg og Hanne Nielsen/
Birgit Johnsen. Til 11.5.
Þjóðarbókhlaða:
Guðrún Vera Hjart-
ardóttir. Til 14.5.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Landafundir.
Skáld mánaðarins:
Vilborg Dagbjartsdóttir.
Til 8.8.
Upplýsingamiðstöð
myndlistar: www.umm.is
undir Fréttir.
Leikhús
Þjóðleikhúsið
Stóra svið: Með fullri
reisn, fös.
Allir á svið, lau., sun.
Smíðaverkstæðið:
Veislan, lau.
Borgarleikhúsið
Stóra svið: Puntila og
Matti, sun. Sól og máni.
sun.
Dans fyrir þig fim.
Sól og máni, fös. Öfugu
megin uppí, lau.
Nýja svið: Sumaræv-
intýri, lau.
Maðurinn sem hélt að
konan sín væri hattur,
fös.
Gesturinn, sun.
Þriðja hæðin: Píkusög-
ur, sun.
Litla svið: Stígvélaði
kötturinn, lau.
Rómeó og Júlía, mið.,
föst.
Iðnó: Hin smyrjandi
jómfrú, sun.
Hafnarfjarðarleik-
húsið: Gaggalagú, sun.
Gerrit Schuil og Rut Ingólfsdóttir.
RUT Ingólfsdóttir fiðluleikariog Gerrit Schuil píanóleikarihalda tónleika í ScandinaviaHouse í New York á þriðju-
dag. Scandinavia House er menning-
armiðstöð American-Scandinavian
Foundation, og þar er meðal annars
bókasafn kennt við Halldór Laxness
og tónleikasalur nefndur eftir danska
píanóleikaranum og
háðfuglinum Victor
Borge. Í húsinu er
ennfremur öflugt sýn-
ingahald og mikið er
lagt upp úr norrænni hönnun og nor-
rænu yfirbragði.
En Rut, hefurðu spilað þarna áð-
ur?
„Nei, en ég hef heimsótt húsið.
Þetta er nýr staður í New York og
það hefur opnað mikla möguleika
fyrir Norðurlandabúa að hafa þenn-
an sal þarna. Þetta er allt önnur að-
staða en hefur verið hingað til.“
Hvað ætlið þið Gerrit að spila?
„Við ætlum að spila Adagio eftir
Mozart, Sónötu eftir Jón Nordal,
Sónötu eftir Karl O. Runólfsson og
Sónötu nr. 1 eftir Brahms.“
Þið eruð þá líka að spila íslensk
verk.
„Já, hálf efnisskráin er íslensk.“
Verða þetta einu tónleikarnir ykk-
ar í þessari ferð til Bandaríkjanna?
„Jájá, við förum bara út, spilum
þessa einu tónleika og komum strax
heim aftur, það er stutt í næsta stóra
verkefni hjá mér.“
Rut Ingólfsdóttir er sem kunnugt
er stofnandi og leiðari Kamm-
ersveitar Reykjavíkur, og síðar í
mánuðinum fer Kammersveitin í tón-
leikaferð til Belgíu og Rússlands og
heldur ferna tónleika undir stjórn
Vladimirs Ashkenaszys; tvenna í
Brügge, eina í Moskvu og eina í fæð-
ingarborg Azhkenazys, Nizhny
Novgorod. Í leiðinni verður gerð
heimildamynd um tónleikaferð
Kammersveitarinnar.
Allt önnur aðstaða
STIKLA
Tónleikar í
New York
BIRGIR Rafn Frið-
riksson-Biurf opnar
einkasýningu í
Næsta galleríi,
Næsta bar, Ingólfs-
stræti 1a, kl. 16 í
dag. Sýningin heitir
Portret x og stendur
til 7. júní. Sýningin
er opin á sama tíma
og Næsti bar.
Biurf
í Næsta
galleríi
Biurf: „Portret af fram-
andlegri ráðagerð“, olía á
striga, 50x70cm.
AÐALHEIÐUR Ólöf Skarp-
héðinsdóttir opnar sýningu á
akrýlverkum og grafík í
Sverrissal Hafnarborgar,
menningarstofnunar Hafn-
arfjarðar, í dag kl. 15.
Sýningin samanstendur af
tréristum unnum með vatns-
litaþrykki á þunnan Jap-
anpappír og þurrnál-
armyndum sem eru
vatnslitaðar. Einnig sýnir hún
akrýlverk unnin með bland-
aðri tækni með akrýllitum,
krít og vatnslit. Myndirnar
sem eru unnar út frá sögu-
brotum eða texta og augna-
blikshughrifum eru oft dálítið
manískar endurtekningar í
þrykki og fjalla um konuna
og tilveruna. Öll verkin eru
unnin á árunum 2002 og
2003.
Þetta er níunda einkasýning
Aðalheiðar en hún hefur tek-
ið þátt í fjölda samsýninga í
Svíþjóð, Danmörku, Finn-
landi, Bandaríkjunum, Jap-
an, Kína, Kanada, Frakk-
landi og Ítalíu svo dæmi séu
tekin.
Sýningin er opin alla daga
nema þriðjudaga og stendur
til 27. maí.
Málverk Hjördísar
Á sama tíma verður opnuð
í Hafnarborg sýning á mál-
verkum Hjördísar Frímann.
Hjördís er fædd á Ak-
ureyri 1954 en hefur búið
og starfað í Hafnarfirði und-
anfarin níu ár.
Málverk Hjördísar eru
unnin með akrýl á striga og
pappír og eru þau litríkur
spuni þar sem kvenpersónur
eru oftast í aðalhlutverki í
ævintýralegu landslagi. Litir,
línur og form vefjast saman í
óreiðu sem við nánari skoð-
un reynast þó hluti af sterkri
heild.
Sýningin er opin frá kl. 11
til 17 alla daga nema þriðju-
daga og henni lýkur 26.
maí.
Sýna í
Hafnarborg
Verk eftir Aðalheiði
Skarphéðinsdóttur.
NÚ stendur yfir sýning á 8 olíu-
málverkum Garðars Bjarnars í
Lóuhreiðri. Verkin eru unnin á
síðustu tveim árum og þemað er
konan í náttúru Íslands.
Garðar Bjarnar fæddist í
Reykjavík 1954 og er búsettur
þar.
Skólanámið var hefðbundið og
endaði með stúdentsprófi 1974.
Síðan nokkrum árum seinna hóf
Garðar nám við MHÍ og lauk
þaðan prófi úr skúlptúrdeild árið
1982. Nokkrar sýningar hefur
Garðar haldið undanfarin ár og
þá helst á kaffihúsum bæjarins.
Má segja að sýningarhaldið hafi
byrjað er hann hætti störfum hjá
Morgunblaðinu en þar vann
Garðar um árabil sem grafískur
hönnuður en hafði byrjað þau
störf á Þjóðviljanum sáluga.
Garðar Bjarnar: Nekt í hvíld.
Garðar sýnir
í Lóuhreiðri