Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.2004, Qupperneq 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 29. MAÍ 2004 15
Næsta v ika menning@mbl.is
Laugardagur
Digraneskirkja kl. 14
Söngtónleikar með kirkjulegri
tónlist, m.a. eftir Händel,
Mozart, Sig-
valda Kaldalóns
og Jón Leifs.
Flytjendur eru
Katla Björk
Rannversdóttir
sópran og Pavel
Manasek píanó.
Fella- og
Hólakirkja kl. 16 Gunnar
Þorgeirsson óbóleikari, Pawel
Panasiuk sellóleikari og Ag-
nieszka Panasiuk píanóleik-
ari flytja tónlist eftir Benjamin
Britten, Cesar Franck og
brasilísku tónskáldin João
Guilherme Ripper og José
Vieira Brandão.
Norræna húsið kl. 16–18
Hópur listafólks frá Long-
yearbyen á Svalbarða kynnir
þetta norðlæga svæði í
myndum, tónum og dansi.
Fram koma barnakór, bland-
aður kór fullorðinna, þjóð-
dansarar og sirkusfólk. Þeir
hópar sem standa að dag-
skránni eru: Svalbardur,
Longyearbyen blandakor,
Polarleik, Polargospel, Sirkus
Svalnardo og Svalbardmoll.
Kringlan kl. 13 og 15
Myndlistarmaðurinn Maria
Antal spilar hljóðverk sitt,
„Geimskipið Kringlan“. Verk-
ið tekur u.þ.b. 45 mín. í
flutningi og verður spilað í
hljóðkerfi Kringlunnar. Hluti
af verkinu er í myndaformi:
Rannsókn 1 og Rannsókn 2
og verður sá hluti sýndur á
sjónvarpsskjá við verslun
Skífunnar á 2. hæð.
Listasafn Reykjavíkur -
Hafnarhúsi kl. 15 Þóra
Sólveig Bergsteinsdóttir sýnir
gjörninginn Hér og nú. Þóra
Sólveig á verk á útskriftarsýn-
ingu LHÍ.
Kaffi Sólon, Bankastræti
7a kl. 17 Birgir Rafn Frið-
riksson listmálari opnar
sýningu sem samanstendur af
átta olíumálverkum. Yfirskrift-
in er „Landsbyggðarblús í
borgarljósum“og fjallar um
borgarupplifun fólks sem flyt-
ur utan af landi til Reykjavík-
ur. Birgir hefur starfað við
myndlist síðan hann útskrif-
aðist og er með vinnustofuna
Helgidómurinn og Teits gall-
erí sem nú er staðsett í Engi-
hjalla 8 í Kópavogsbæ. Sýn-
ingin stendur til 25. júní.
Opið frá kl. 11 virka daga.
Gallerí Klaustur, Skriðu-
klaustri kl. 15 Belgíski
listamaðurinn Bart Stolle, sem
dvelur um þessar mundir í
Klaustrinu, opnar sýningu á
myndbandsverkum. Sýningin
stendur til 10. júní.
Kaffi Espresso, Spöng-
inni, Grafarvogi Sigríður
G. Sverrisdóttir, grafískur
hönnuður/myndlistamaður,
sýnir myndir, unnar með akríl
á striga. Myndefnið á flestum
myndunum eru kaffibollar.
Sýningin stendur út júní.
Sunnudagur
Hótel Borg kl. 21 Hljóm-
sveit Ómars Guðjónssonar
heldur tónleika í Jazz-
klúbbnum Múlanum. Flutt
verður tónlist af fyrstu geisla-
plötu Ómars, Varmaland.
Hljómsveit Ómars er skipuð
þeim Helga Svavari Helga-
syni á trommur, Jóhanni Ás-
mundssyni á bassa og Ósk-
ari Guðjónssyni á saxófón.
Mánudagur
Hallgrímskirkja kl. 17
Mótettukór Hallgrímskirkju
undir stjórn Harðar Áskels-
sonar bjóða upp á perlur
sem tónleikagestir hafa hrifist
af í meðförum kórsins und-
anfarin misseri. Í tilefni af
Frakklandsferðinni syngur
kórinn tónlist eftir Frans-
mennina Olivier Messiaen og
Maurice Duruflé, auk kafla úr
frægri tveggja kóra messu
Svisslendingsins Franks Mart-
ins. Íslenskar perlur, m.a. eftir
Báru Grímsdóttur og Hjálmar
H. Ragnarsson, hljóma á tón-
leikunum og einnig verk eftir
norsku tónskáldin Trond
Kverno og Knut Nystedt svo
og Johann Sebastian Bach.
Fimmtudagur
Salurinn kl. 20 Píanóleik-
arinn Aladár Rácz flytur verk
eftir Johann Sebastian Bach,
Wolfgang Ama-
deus Mozart,
Ludwig van
Beethoven,
Frédéric Chop-
in, Franz Liszt,
Sveinbjörn
Sveinbjörnsson,
Sunleif Rasm-
ussen (frumfl. á Íslandi), Igor
Stravinsky, Béla Bartók, Arth-
ur Benjamin og Dave Bru-
beck.
Katla Björk
Rannversdóttir
Aladár Rácz
Verk eftir Birgi Rafn
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hér æfa þau Zsigmond Lázár, Hjörleifur Valsson og Antonía Hevesi gleðitónlist.
Fiðluleikararnir Hjör-leifur Valsson ogZsigmond Lázárbjóða uppá fiðluveislu
í Hafnarborg kl. 20 í kvöld. Á
dagskrá eru nokkrir
fiðludúettar og einnig fiðlu-
verk án
undirleiks,
flest allt á
þjóðlegum
nótum.
Undirleikari og skipu-
leggjandi tónleikanna er
Antonía Hevesi píanóleikari.
Antonía leiddi þá Zsig-
mond og Hjörleif saman
snemma í vetur en þá stóð til
að halda þessa tónleika. En
vegna anna varð að fresta
þeim. „Nú var að hrökkva
eða stökkva því Zsigmond er
að fara af landi brott.
Vonandi ekki fyrir fullt og
fast því það er mikill fengur
fyrir íslenskt tónlistarlíf að
hafa jafn fjölhæfan og flink-
an fiðluleikara innanborðs
eins og Zsigmond er,“ segir
Hjörleifur.
Zsigmond Lázár hefur
starfað sem kórstjóri,
organisti og tónlistarkennari
á Stöðvarfirði í vetur. Hann
er kominn af gyðingaættum,
fæddur í Ungverjalandi árið
1964. Hann hefur starfað við
tónlist frá 18 ára aldri og
hefur leikið á fiðlu með ýms-
um hljómsveitum sem flutt
hafa m.a. djass, heimstónlist,
klezmertónlist og þjóðlaga-
tónlist. Árið 1994 sigraði
Zsigmond í kamm-
ertónsmíðakeppni í Szeged í
Ungverjalandi og fjölmörg
verk eftir hann hafa verið
flutt opinberlega síðan 1989.
„Við ákváðum að halda
tónleika í austur-evrópskum
anda og verða skemmti-
legheitin og léttleikinn í
fyrirrúmi. Við djöflumst
þarna alveg miskunnarlaust
og nýtum orku okkar til hins
ýtrasta. Zsigmond hefur
rannsakað mjög djúpt aust-
ur-evrópska þjóðlagahef og
hina upprunalegu klezmer-
tónlist. Hún er til í svo mörg-
um myndum en það er ekki
oft sem við fáum að heyra
hina upprunalegu klezmer-
tónlist.“
Er klezmertónlistin í tísku
hjá Íslendingum nú um
stundir? „Klezmertónlistin
er að ganga í endurnýjun
lífdaga víða um heim, en við
Íslendingar höfum fram að
þessu ekki þekkt mikið til
hennar. Það halda jafnvel
sumir að um sé að ræða nýja
tónlistargerð. Það að hún er
svona áberandi núna má
kannski þakka versluninni
12 Tónum. Þar á bæ hefur
mannskapurinn verið dug-
legur að auka fjölbreytnina í
geisladiskaúrvali landans.
Ef til vill spegla vinsældir
þessarar tónlistar líka þörf
okkar fyrir að sleppa fram af
okkur beislinu og verða ölv-
uð af gleðitónlist.“
Hvað ætlið þið að flytja?
„Við komum víða við og
snertum á ýmsu. T.d. ætla ég
að leika á léttum nótum göm-
ul íslensk rímnalög sem Karl
Ottó Runólfsson útsetti
snemma á 20. öldinni. Þegar
maður hlýðir á gamlar
upptökur af fóki syngja
rímur þá er það ekki beint
ólgandi af þrótti, mæðutónn-
inn og melankólían er
allsráðandi. Þau bjóða samt
alveg upp á léttari túlkun og
ég nýti mér það. Kannski er
það stílbrot, það kemur í
ljós. Zsigmond leikur alda-
gamalt ungverskt stef sem
hann hefur útsett sjálfur.
Við spilum saman rúmenskt
sígaunalag sem heitir
Lævirkinn. Verkið er mjög
þekkt en útsetningarnar eru
mjög mismunandi eftir
svæðum. Í verkinu er heil-
mikill dúókafli, fuglasöng-
skafli, þar sem við spilumst
á. Í hita ákallanna getur
margt óvenjulegt gerst,“
segir Hjörleifur og hlær.
„Við skiljum klassísku lögin
ekki alfarið eftir heima því
Zsigmond leikur þekktan
Ungverskan dans eftir
Brahms. Þá flytjum við verk
eftir Smetana, Frá heima-
landinu, það er saknaðaróð-
ur til heimalandsins. Ekki
má nú gleyma Paganini. Eft-
ir hann flytjum við stutta
sónötu. En það segir nú ekki
alla söguna þó hún sé stutt,
því það tekur næstum hálft
lífið að læra verk Paganinis.
Bela Bartók var ekki hægt
að skilja eftir því hann vann
svo merkilegt starf í þágu
austur-evrópskrar tónlistar.
Honum til heiðurs flytjum
við Zsigmond dúett. Þá
skellir Zsigmond sér til Kan-
ada og flytur þaðan eld-
hressa sveitatónlist.“
Þetta eru fyrst og fremst
skemmtitónleikar og lofar
Hjörleifur óvenjulegum tón-
leikum.
Sleppum
fram af okk-
ur beislinu
STIKLA
Fiðlutónleikar
í Hafnarborg
helgag@mbl.is
Myndlist
Gallerí Kambur: Mar-
grete Sörensen og Torben
Ebbesen frá Danmörku. Til
31. maí.
Gallerí Sævars Karls,
Bankastræti: Ari Svav-
arsson. Til 11. júní.
Gerðarsafn: Íslensk mál-
verk í einkaeign Dana. Til
20. júní.
Gerðuberg: „Allar heims-
ins konur“. Til 24. júní.
Hafnarborg: Arngunnur
Ýr. Ólöf Erla Bjarnadóttir.
Halldóra Emilsdóttir. Til 7.
júní.
Hallgrímskirkja: Steinunn
Þórarinsdóttir. Til 1. sept.
Hönnunarsafn Íslands,
Garðatorgi: Kristín Ísleifs-
dóttir. Til 30. júní. Hag-
virkni, húsbúnaður eftir ís-
lenska myndlistarmenn,
1904–2004. Til 20. júní.
i8, Klapparstíg 33:
Gabríela Friðriksdóttir. Til
26. júní.
Íslensk grafík, Hafn-
arhúsinu: Björg Þorsteins-
dóttir. Til 30. maí.
Kling og Bang, Lauga-
vegi 23: David Askevold.
Til 6. júní.
Kirkjuhvolur, Akranesi:
Erla B. Axelsdóttir. Til 6.
júní.
Listasafn Akureyri: Kenj-
arnar eftir Goya. Til 14.
júlí.
Listasafn ASÍ: Magnús
Sigurðarson og Ragnar
Kjartansson. Til 6. júní.
Listasafn Árnesinga:
Handverk og hönnun. Cat-
egory X. Hönnunarsýn-
ingar. Til 30. maí.
Listasafn Íslands: Í nær-
mynd Close-up, bandarísk
samtímalist. Til 27. júní.
Listasafn Ísafjarðar:
Guðbjörg Lind Jónsdóttir. Til
1. júní.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laugardaga
og sunnudaga kl. 14–17.
Listasafn Reykjavíkur -
Ásmundarsafn: Mað-
urinn og efnið. Yfirlitssýn-
ing. Til 2006.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús: Útskriftarsýn-
ing Listaháskóla Íslands
2004. Til 31. maí.
Listasafn Reykjavíkur -
Kjarvalsstaðir: Francesco
Clemente. Roni Horn. Til
22. ágúst.
Listasafn Reykjanes-
bæjar: Margrét Jónsdóttir.
Til 20. júní.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar: Sigurjón
Ólafsson í alfaraleið. Til 30.
maí.
Listhús Ófeigs, Skóla-
vörðustíg: Sunna Sigurð-
ardóttir. Til 6. júní.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur, Grófarhúsi: Finnsk
samtímaljósmyndun. Til 29.
ágúst.
Mokka: Gunnar Scheving
Thorsteinsson. Til 6. júní.
Norræna húsið: Sigurður
Þórir. Til 13. júní.
Ráðhús Reykjavíkur:
Sigrún Eldjárn. Til 31. maí.
Safnasafnið, Svalbarðs-
strönd: 11 nýjar sýningar.
Safn – Laugavegi 37:
Opið mið.–sun. kl. 14–18.
Sumarsýning úr safnaeign.
Margrét H. Blöndal. Til 20.
júní. Leiðsögn alla laug-
ardaga.
Safn Ásgríms Jóns-
sonar: Þjóðsagnamyndir
Ásgríms Jónssonar.
Skriðuklaustur: Fantasy
Island. Samsýning 8 lista-
manna. Til 25. júní.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Skáld mánaðar-
ins: Sjón. Heimastjórn
1904. Þjóðminjasafnið –
svona var það.
Þjóðarbókhlaða: Heima-
stjórn 100 ára. Sigríður Ás-
geirsdóttir sýnir steint gler.
Til 7. júní.
Leiklist
Þjóðleikhúsið: Edith Piaf,
mið., fim., fös. Græna
landið, fös.
Borgarleikhúsið: Don Kí-
kóti, fim. Chicago, lau., fös.
Rómeó og Júlía, mið., fim.,
fös. Belgíska Kongó, sun.
Sekt er kennd, fim. Nor-
ræn gestaleiksýning:
This is not my body, lau.
VERIÐ velkomin í Árbæjarsafn Sum-
arstarfsemi Árbæjarsafns hefst að þessu
sinni á annan í hvítasunnu, mánudaginn
31. maí. Þá verður safnið opið kl. 10–17.
Fjölbreytt dagskrá er í boði, hestvagn verður
á ferð um safnsvæðið kl. 13–16 og klukkan
16 verður messa í gömlu safnkirkjunni. Sér-
stök leikjadagskrá verður fyrir börnin eftir
hádegi og teymt verður undir börnum við
Árbæinn. Húsfreyjan í Árbæ bakar lummur í
tilefni dagsins og handverksfólk verður á
baðstofulofti við tóvinnu og roðskógerð. Í
Dillonshúsi er veitingasala, þar er boðið
upp á ljúffengar og þjóðlegar kaffiveitingar.
Karl Jónatansson spilar á harmóníku við
Árbæ og Dillonshús.
Sumarið er komið í Árbæjarsafni
Það er að jafnaði mikið um að vera á Árbæjarsafni yf-
ir sumarið og gestum iðulega boðið upp á lummur.
LEIKSÝNINGIN Rómeó og Júlía, sem sýnd er í Borg-
arleikhúsinu, hefur fengið til liðs við sig leikkon-
urnar Nönnu Kristínu Magnúsdóttur í hlutverk Ben-
vólíós og Selmu Björnsdóttur í hlutverk frú Kapúlett.
Sýningin verður á fjölunum fram að miðjan júní en
þá heldur leikhópurinn utan til Þýskalands með leik-
verkið Brim eftir Jón Atla Jónasson.
Leikaraskipti