Lesbók Morgunblaðsins - 24.07.2004, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 24.07.2004, Page 2
2 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 24. júlí 2004 ! Gefum okkur að við séum að sækja Reykjavík heim í fyrsta sinn. Sé heppnin með okkur er logn og myrkur við kom- una. Rafmagnljósin í borginni tengja manngert umhverfið saman í eina órofa heild, og myrkrið heldur utan um og þéttir rýmið, svo það virðist sem borg- in sé mun stærri og fjölmennari en reyndin er. Sé ekið vestur Hringbraut- ina í átt að gamla miðbænum ber mest á tveimur upplýstum byggingum ann- ars vegar Landspítalanum og hins veg- ar Háskóla Íslands: stoltar byggingar höfuðborgar, tákn sjálf- ræðis og sterkrar menn- ingar. Afar sannfær- andi! Svo birtir af degi og miskunnarleysi sólarinnar afhjúpar fyrirferðarmikið net umferðarmann- virkja, sem bugðast fram hjá einstaka byggingu á stangli. Á milli spítala og háskóla eru leifar upprunalegs landslags og hersetuliðs stríðsára: aumkunarverðar sinuþúfur, drenskurðir og breiðar brautir flug- vallar sem skera sér leið um víðfeðma Vatnsmýrina. Massíf umferð bifreiða er eins óyfirstíganleg og beljandi fljót og byggingarnar handan við elginn standa nánast brjóstumkennanlegar, slitnar úr tengslum við þann skala - eða mælikvarða - sem þær eru byggðar fyrir; nefnilega mannslíkamann. Aðalinngangur Háskólans virðist nú agnarsmár í samanburði við víðfeðmi bílastæðanna fyrir framan hann, og Landspítalinn heldur niðri í sér and- anum fyrir ákafa umferðarþungans, enginn á leið um upprunalegan aðal- inngang spítalans, sem einhvern tím- ann hefur verið mikilúðlegur í sam- ræmi við klassískan stílinn, trjágöng og hvaðeina, en endar nú halaklipptur á grænmálaðri stoppistöð strætis- vagna, sem enginn notar. Því allir fara um á sínum eigin bílum. Næsta óárennilegt virðist að ætla sér að stofna til nánari kynna við þessa borg óvarinn á tveimur jafnfljótum. Og þessar vikurnar er verið að bæta um betur. Enn á að auka veg bifreiða í lítilli borg á hjara veraldar með meira malbiki, fleiri akreinum, skiltum og umferðarljósum til viðbótar þeim sem fyrir eru. Á stuttum kafla Hring- brautar sem liggur milli Miklatúns og Melatorgs er verið að framkvæma fyrir fé (skatt-) borgaranna verulega vafa- sama breikkun götunnar, svo næsta ómögulegt er að sjá að einhvern tím- ann geti orðið mannvænleg borg á þessum stað. En hvert er verið að fara? Og hvað- an? Hvað er það sem rökstyður átta akreina bílabraut inni í miðri borg? Hvað réttlætir að þetta ágæta land sé hernumið undir bíla, löngu eftir að hugmyndafræði módernismans hefur verið afskrifuð sem eyðileggjandi þátt- ur í borgarskipulagi annars staðar? Það má kannski reka vandræðagang Reykjavíkur sem byggðrar borgar til nærveru sláandi sterkrar náttúrunnar allt um kring. Borgin lendir alltaf í öðru sæti í samkeppni sinni við faðm- lög Bláfjallahringsins, haustliti Þing- valla, aðdráttarafl Snæfellsjökuls handan flóans osvfrv. Og kannski má líkja stöðu hins manngerða umhverfis við ungling; eftir langdregna barnæsku ósjálfstæðis og hafta einkenna sjón- arsviðið miklir vaxtarverkir, leitandi og óörugg sjálfsímynd, hömlulaus kraftur og bjartsýni, en lítið um íhygli eða langtímaplön. En borgir eru frá fornu fari birting- armynd siðmenningar. Og fólkið er borgin. Ekki bílar og flugvélar og um- ferðarljós. Þótt það glepji augað í nótt- inni. Hringbraut: Sjálfsímynd staðar Eftir Guju Dögg Hauksdóttur gujadogg@lhi.is Guja Dögg Hauksdóttir er sjálfstæður arkitekt og kennari í arkitektúr. Hún hefur unnið í ýmsa miðla byggingarefna, texta, mynda, sjónvarps og útvarps við að túlka skynjun og skilning í gegn- um byggingarlist. Lesbók Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100 Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf. I Hvers vegna hefur maður það á tilfinning-unni að gáfumenn eða vitundarverðirnir svokölluðu, hinir velmeinandi hugsjónamenn úr röðum háskólamanna, fræðimanna, lista- manna og gagnrýnenda, séu ekki eins áber- andi í samfélagsumræðunni og þeir voru lengst af á síðustu öld? Sennilega er ekkert einhlítt svar til við þessari spurningu. Árið 1987 hélt pólski félagsfræðingurinn Zygmunt Bauman því fram að vitund- arverðirnir gegndu ekki lengur neinu hlutverki við að móta þekkinguna og (sið)menningarleg gildi. Ástæðuna taldi hann vera ákveðna tækni- eða vísindahyggju í rekstri hins opinbera. Hin húmaníska um- ræðuhefð væri ekki lengur nauðsynleg og varla æskileg við lausn vandamála sem upp kynnu að koma í samfélögum manna. Til þess væru ráðnir sérfræðingar og vísindamenn af öllu hugsanlegu tagi, hinir svokölluðu teknók- ratar. Þessi skýring kemur að minnsta kosti heim og saman við það að almenn umræða um þjóðfélagsleg vandamál eða viðfangsefni virð- ist hafa tilhneigingu til að einangrast innan í litlum kreðsum. Gott dæmi eru misheppnaðar tilraunir hugsjónafólks um betra borgar- skipulag til þess að taka þátt í mótun hug- mynda um legu Hringbrautarinnar í Reykja- vík. Annað gott dæmi eru óljósar deilur lögfræðinga undanfarið um stjórnarskrána. II Gullöld vitundarvarðanna var sennilegasjöundi áratugurinn og kannski má halda því fram að þeir hafi dregið sig í hlé eftir að draumar og vonir blómatímans dofnuðu eða brustu hver á fætur annarri á áttunda og ní- unda áratugnum. Hugsanlega situr það í þeim að hugmyndafræðileg róttækni beið skipbrot í lok síðustu aldar en vitundarvörðurinn var rót- tækur í eðli sínu. Hugsanlega hefur vitund- arvörðunum einfaldlega ekki tekist að hasla sér völl í nýjum og breyttum heimi sem ein- kennist síður af hugmyndafræðilegum átökum og hugsjónabaráttu en hagsmunagæslu, um- sýslu með völd, peninga og sérfræðiálit, stöðu- baráttu og ímyndarmótun. Og að vissu leyti hafa vitundarverðirnir ekki lengur jafn skýra stöðu eða ímynd og áður. Þeir voru til dæmis lykillinn að skilningi okkar á ákveðnum menn- ingarsögulegum grundvallartextum en eftir að múrarnir milli há- og lágmenningar voru rifnir niður hafa þeir ekkert slíkt túlkunarlegt for- ræði. Umráðasvæði eða umræðusvæði vitund- arvarðanna er með öðrum orðum á reiki. Þetta er kannski aðalskýringin á langdregnum, óljósum og óskipulegum deilum um íslensku stjórnarskrána að undanförnu. Þar eru skilin á milli sérfræðiálita og hugsjóna ekki alltaf skýr. Fyrir vikið er hið túlkunarlega forræði í uppnámi. Það er ómögulegt að vita hverju á að treysta. III Í Lesbók í dag eru tvær greinar semfjalla með einum eða öðrum hætti um hlutverk vitundarvarðanna. Birt er viðtal við Adriano Sofri, fyrrum leiðtoga ítölsku samtak- anna Lotta Continua sem stundum hafa verið kennd við námsmannauppreisnina 1968, en Sofri afplánar 22 ára refsidóm fyrir orð sem hann á að hafa sagt í tveggja manna tali árið 1972. Sofri lítur svo á að uppreisnar- og hug- sjónamenn sjöunda áratugarins hafi ekki verið sigraðir heldur hafi þeir „beðið virðingarverð gjaldþrot“. Að hans mati heldur baráttan áfram enda sé hún göfug í sjálfri sér. Í grein eftir François Ricard er aftur á móti spurt hvers vegna ljóðskáld séu orðin að kvakandi hópsálum. Neðanmáls Egóið er ímynd. Við búum til ímynd um það, hvað við eigum að veraog hvað við getum verið. Ímyndin er alltaf tilbúningur og sam-ræmist ekki hlutveruleikanum, jafnvel þótt hann sé ekki álitinn blekking, því alltaf er um ýkjur að ræða. Þessi ímynd hefur afgerandi áhrif á persónuleikann. Það fer eftir áhugasviði okkar og markmiðum, hvað er ýkt. Ímyndin og markmiðin haldast í hendur. Raunsjálfið, atman, verður þá alloft fyrirlitlegt, og þar sem ekki er á það horft frá sjónarmiði veruleikans, heldur ímyndunar og óskhyggju, verður viðhorfið til þess óraunhæft og fráhrindandi. Hugsjónir eru nauðsynlegar öllum þroska og þróun, en sjálfsímyndin er gagnstætt hugsjónum og háleitum mark- miðum venjulega óbreytileg og stöðnuð, föst hugmynd, sem við höfum dá- læti á. Sjálfsímyndin stendur oftast í vegi fyrir þroska, því hún ýmist af- neitar göllum okkar eða fordæmir þá. Hugsjónir fela í sér viðurkenningu og lítillæti, en sjálfsímyndin er drambsöm. Sjálfsímyndin er kjarni egos- ins, sem erfitt er að uppræta og okkur veitist jafnvel mjög erfitt að draga úr henni. Hún er að margra dómi mesta fyrirstaðan á leið til þroska. […] Okkur er því nauðsynlegt að vera meðvituð um sjálfsímynd okkar í smáatriðum, skilja hlutverk hennar og gildi og finna, hversu mikið við þjáumst undir henni. Þá sjáum við, að hún er of dýru verði keypt. Jón L. Arnalds Speki.net www.speki.net Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sjálfsímynd Íslendinga? Egóið er ímynd Já, ég er enn og aftur lagstur í lestur áskringilegasta dagblaði landsins, DV. Ílofgreininni „Sumarsveiflan í ár: Ríf-andi gangur í DV“ reyna blaðamenn DV að varpa ljósi á verðskuldaða velgengni blaðsins og leita í þeim tilgangi til þriggja versl- unarmanna á höfuðborgarsvæðinu og lands- byggðinni: „Það tók fólk tíma að fatta þessa blaðamennsku sem DV bauð upp á þegar blaðið var endurreist. […] Fólk missir af miklu ef það sér ekki DV og er varla samræðuhæft. Blaðið er með allt aðrar fréttir en aðrir og án DV myndi fólk einfaldlega ekki vita af öllu því sem í gangi er og greint er skilmerki- lega frá í DV. Heimssýnin væri allt önnur og fá- tæklegri“ er haft eftir einum þeirra. Undir þetta tekur annar ritstjóri blaðsins, Mikael Torfason: „Það er gleðilegt að finna þennan meðbyr og ekki síður hitt að lesendur kunni að meta þann spegil samtíðar sem við bjóðum upp á dag eftir dag […] Við vissum hvað við vildum strax í upphafi og nú virðast lesendur deila þeirri upplifun með okkur“ (DV 20.7.) Hvers konar upplifunum um land og þjóð og hvers konar heimssýn miðlar svo blaðið? Einn samtímaspegill blaðsins snýst um illsku mannanna, hættur stórborgarlífsins, þá firr- ingu sem leynist undir yfirborðinu ef grannt er skoðað. Þessum spegli var á vormánuðum beint að líkmönnunum svokölluðu, sem sökktu félaga sínum í vota gröf við bryggjuna í Neskaupstað. Nú síðustu daga hefur hvarfið á Sri Rahmawati og yfirheyrslurnar yfir grunuðum morðingja hennar skipað stóran sess í blaðinu. Og það er ekki laust við að lesendurnir séu farnir að deila heimssýn DV-manna með þeim. Um daginn birtist frétt af því að unglingar væru farnir að taka ljósmyndir af sér fyrir framan húsið þar sem Sri var hugsanlega myrt. Síðastliðinn mánudag birtist heilsíðufrétt í DV um áflog tveggja drykkjumanna á Austur- velli undir fyrirsögninni: „FÓLK SKEMMTI SÉR YFIR BARSMÍÐUM Í BLÍÐUNNI“. Fréttinni er ætlað að varpa ljósi á tilfinninga- legan kulda reykvískrar alþýðu sem fylgist af áhuga með misþyrmingum á almannafæri, rétt eins og gerist í útlöndum: „Túnið var troðfullt að fólki sem virtist ekki brugðið, lá hið róleg- asta og fylgdist með manninum dúndra hverju högginu á fætur öðru í andlitið á hinum mann- inum sem gat sig hvergi hreyft. Ekki var náungakærleikurinn mikill þar sem fólk virtist skemmta sér ágætlega yfir barsmíðunum, ein- staka maður stóð upp og tók mynd af félögun- um sem veltust um í túninu. Ekki virtist nokkur hafa áhuga á að reyna að stöðva barsmíðarnar. Horfðu bara á þetta eins og box á sjónvarps- stöðinni Sýn“ (DV 19.7.) Fréttinni fylgja margar myndir af áflogun- um, en erfitt er að tengja þær frásögn blaða- mannsins. Í ljósi þess að verið er að misþyrma manni á Austurvelli er t.a.m. afar sérkennilegt að sjá ungu konuna sem situr tvo til þrjá metra fyrir aftan slagsmálahundana á stærstu mynd- inni, en hún horfir ekki einu sinni í átt til þeirra á meðan hún talar í símann sinn. Af hverju reynir hún ekki að forða sér? Og af hverju horf- ir enginn þeirra fimm einstaklinga sem sitja næst áflogunum á drykkjumennina? Á stóru myndinni er einungis hægt að fullyrða að fjórir einstaklingar af um þrjátíu horfi hugsanlega á áflogin, ef þeir eru þá ekki að horfa á ljósmynd- ara DV að störfum við að festa á filmu grimmd- areðli Reykvíkinga. Margar myndanna á síðunni eru hugsaðar sem viðbragðaskot og er ætlað að fanga lág- kúrulegt eðli áhorfendanna. Skýringartextinn er þannig þrunginn kjánalegri vandlætingu: „Ís og slagsmál. Þessi eldri maður borðaði ís á með- an hann fylgdist með misþyrmingunum“; eða: „Sólarstúlkur. Ungar stúlkur sleiktu sólina á Austurvelli á meðan mennirnir börðust.“ Hvað merkja þessir textar og myndirnar sem fylgja þeim? Varpar ís mannsins frekara ljósi á illt innræti hans? Lýsir það einstöku kaldlyndi að halda á matvælum þegar slagsmál brjótast út? Í smásögunni „Ýlfur hýddra hunda“ (1973) reynir bandaríski rithöfundurinn Harlan Elli- son að varpa ljósi á hræðilegt morð Catherine Genovese í New York 13. mars 1964 en henni var nauðgað á hrottafenginn hátt og hún síðan stungin fjölmörgum sinnum. Það tók morðingj- ann meira en hálftíma að ljúka hryllilegu ætl- unarverki sínu og á meðan fylgdust 38 ná- grannar Catherine með öllu saman án þess að nokkur hringdi á lögregluna. Sumir drógu jafn- vel stóla sína að gluggunum svo þeir þreyttust ekki í fótunum á meðan lífið var murkað úr Catherine. Smásagan „Ýlfur hýddra hunda“ er stúdía í illsku þar sem Ellison reynir að gera sér grein fyrir orsökunum sem liggja að baki athafnaleysi íbúanna, frumstæðu og ægilegu afli stórborgarinnar sem setur svip sinn á mannlífið. Eitthvað þessu líkt hefur fréttamað- ur DV eflaust viljað fanga á meðan rónarnir hnoðuðust í grasinu á Austurvelli: „Fólk hafði orð á því að stemningin væri engu lík eins og í miðborg stórborgar í útlöndum, margt skemmtilegt í gangi en svo náttúrlega alltaf eitthvað leiðinlegt sem líka er hægt að skemmta sér yfir.“ Ofangreind frásögn er ágætt dæmi um það yfirborðslíf sem DV miðlar á síðum sínum og kássast jafnan lítið upp á íslenskan veruleika. Vandlætingartónninn sem einkennir fréttina alla stendur líka svolítið í mér. Fréttina af slagsmálunum á Austurvelli má nefnilega greina sem táknsögu fyrir ritstjórnarstefnu blaðsins. Dag eftir dag birtast þar svívirðingar um nafngreinda einstaklinga í formi viðtala þar sem allt er látið gossa og andstæðingum er gef- ið rækilega á kjaftinn. Þeir niðurlægðu fá svo tækifæri til að svara fyrir sig í næsta blaði. Allt er þetta gert til þess að örva söluna á blaðinu, peningar fyrir blóð. Og kannski skapar þessi nýi stíll nýja lesendur með tímanum – og kannski nýja áhorfendur líka? Blóðbað á Austurvelli ’Ofangreind frásögn er ágætt dæmi um það yfirborðslífsem DV miðlar á síðum sínum og kássast jafnan lítið upp á íslenskan veruleika.‘ Fjölmiðlar eftir Guðna Elísson gudnieli@hi.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.