Lesbók Morgunblaðsins - 24.07.2004, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 24.07.2004, Síða 6
6 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 24. júlí 2004                                                          !! !!      "# $ %       &            ' ( )   ( * '  (      & ( +   $ % *   ,   '          ( $ %  '         &      ( -  , )   ( .   ( +  $ % ( $/      ,    0  (      (      $ % ,   , '    ( 1   ,    !                 ( 2            '  '    ,  '    ( $ % *    /3   ,  ( "   ,              &  &3    &  '4 +   &    '           ( 5 ( $ % 6 '     /    '        ( , $ %  6        '      '     '        '   ( +  $ % ( 7&     /          , '  8  ( 0 ( " $ % * 2  0     ,         &  $ %  8 ( 0 ( 9 3 * 3 9 &(                     S vo fjalla megi um bókmenntir kvenna í Rómönsku-Ameríku á síðasta áratug er nauðsynlegt að rifja upp að á árunum uppúr 1970 notuðu rithöfundar álfunnar kímnigáfu og skopstælingar til að koma óvæginni pólitískri samfélagsádeilu á framfæri. Konur í hópi rithöfunda afmáðu að- greiningu einkalífs og opinbers lífs og beindu sjónum sínum að konum sem kynverum. Rit- verk kvenna frá þessum árum eru meinhæðin, hvöss og gagnrýni þeirra beindist gegn rótgróinni kvennakúgun og hugmyndum feðraveldisins, þar sem for- ræðishyggja karla er sam- þykkt og réttlætt. Í bókmenntum níunda ára- tugarins er tekist á við vaxandi uppgang ein- ræðisstjórna og valdbeitingu einræðisherra víða um álfuna. Fjölbreyttari stjórnarhættir fyrri tíma hverfa með öllu og píramítafyrir- komulag valdsins, hornsteinn feðraveldis- hugmyndarinnar, gegnsýrir samfélagið. Menntamenn og rithöfundar verða öflugir talsmenn andófs og mótmæla. Margir þeirra láta lífið fyrir skoðanir sínar á meðan aðrir verða fórnarlömb ofsókna og pyntinga. Bók- menntirnar verða einn helsti vettvangur þjóð- félagsgagnrýni og fjalla um andlegar og líkamlegar afleiðingar þessara aðstæðna. Með flóknum leikfléttum og marguppbrotnum textum gera rithöfundarnir tilraun til að fela boðskap sinn fyrir ritskoðun og mörg þessara verka eru gefin út erlendis. Textarnir koma gjarnan tilfinningalegu róti á lesandann því hann upplifir ógnina og vanmátt sögupersón- unnar gagnvart kringumstæðum sínum. Á níunda áratugnum losnar ögn um heljar- tök herstjórna og einhverskonar lýðræðis- stjórnir taka víðast hvar við völdum. Á fyrri- hluta áratugarins einskorðast bókmenntirnar mjög við ofsóknir og pyntingar en á síðari hluta hans losnar ögn um. Þá koma fram á sjónarsviðið skáldkonur sem spyrja áleitinna spurninga um hlutverk og stöðu kvenna á þessum nýju tímum þar sem hinir svokölluðu vinstrimenn og fjölbreyttar fylkingar jafn- aðarmanna viðhalda viðteknum viðhorfum til hlutverka kynjanna og kynjamisréttis. Litlar breytingar verða á lífi kvenna því einræði karla við ákvörðunartöku er enn við lýði. Kon- urnar gagnrýna hvernig samfélagsvefurinn heldur áfram að mótast án þess að tillit sé tek- ið til virkari þátttöku þeirra í stjórn- og at- vinnumálum. Þær lýsa erfiðleikum þeirra sem þora að brjóta upp viðteknar venjur og ríkj- andi hefðir. Þær trúa á mátt sinn og megin og vilja verða þátttakendur í uppbyggingu nýrr- ar samfélagsgerðar. Það eru þessar skáldkon- ur sem ögra umhverfi sínu og boða nýja tíma. Syðst í álfunni koma fram á sjónarsviðið þær Diamela Eltit í Chíle og Susana Silvestre í Argentínu og fjalla þær um stöðu kvenna – þó á ólíkan hátt sé. Diamela Eltit (f. 1947) kom fram á listasviðið á árunum eftir valdarán hersins 1973 og hefur frumleg og vitsmunaleg rödd hennar verið áberandi æ síðan. Í skáld- sögum eins og Fjórði heimurinn (El cuarto mundo, l988), Heilög kýr (Vaca sagrada, 1992), Eftirlitsmennirnir (Los vigilantes, l994) og Vinnumenn dauðans (Los trabajadores de la muerte, 1998) ögrar hún viðteknum hefðum og gildum, auk þess sem hún gagnrýnir chileskt samfélag. Hún gefur þöglu andófi lágstéttarinnar frammi fyrir skipunartóni hersins nýtt vægi og hlutverk. Þögnin verður í verkum hennar ögrandi uppspretta sam- félagsóróa þar sem vald og kyn eru ekki að- skilin. Eltit fjallar um hið kvenlega sem menn- ingarlegan tilbúning hins einsýna karllæga yfirvalds og hið kvenlega er tákn þeirra sem kúgaðir eru af miðstýrðum valdakerfum. Sögupersónur hennar eru fulltrúar þeirra sem engin áhrif hafa og hún bregður upp myndum af kúguðum meðlimum fyrirmyndarfjölskyldu hins kaþólska einráða föður og lætur þá engj- ast í ofbeldi, sifjaspellum, sjúkdómum og dauða. Táknrænn vettvangur valdabaráttu kynjana verður móðurlíf kúgaðrar konu þar sem ófæddir tvíburar, stúlka og drengur, tak- ast á um athygli og yfirráð frá getnaði til fæð- ingar. Ofbeldisfull og stöðug átök systkinanna endurspegla samfélag þar sem hann nýtur kyns síns en hún geldur þess. Frá fæðingu til unglingsára er misrétti kynjanna smám sam- an fest í sessi á sama tíma og ætlast er til að þau lifi í sátt og samlyndi. Þegar systkinin sættast að lokum og sameinast sem karl og kona í sinni fyrstu kynlífstilraun eru þau að- skilin með valdi, fordæmd og smáð vegna Samtímabókmenntir kvenna Rómönsku- Ameríku Eftir Hólmfríði Garðarsdóttur holmfr@hi.is Bókmenntirnar hafa verið einn helsti vett- vangur þjóðfélagsgagnrýni í Rómönsku Ameríku síðustu áratugi segir í síðari grein um bókmenntir þessa heimshluta. Þær fjalla um andlegar og líkamlegar afleiðingar bágs stjórnarfars og efnahagsástands. Ritverk kvenna frá þessum árum eru meinhæðin, hvöss og gagnrýni þeirra beinist gegn rót- gróinni kvennakúgun og hugmyndum feðra- veldisins, þar sem forræðishyggja karla er samþykkt og réttlætt. Af öryggi og áræði

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.