Íslendingaþættir Tímans - 26.09.1969, Side 13

Íslendingaþættir Tímans - 26.09.1969, Side 13
ir eru þeir er þau réttu hjálpar hlönd á einn eða annan hátt, en œtíð þannig, að sem minnst bæn á. Bæði voru þau þannig gerð, að þau hlutu að eignast vini, hvar sem þau fóru. Og allir áttu heim boð á Sólvöllum, hvort sem þeir bjuggu nærri eða fjarri. Og alla fýsti að þiggja slíik heimboð. Var því gestkvæmd mikil á heimilinu. Gestamóttakan sjálf kom vitanlega meir í hiut húsfreyju .Mátti segja að heimilið stæði um þjóðbraut þvera, þar sem beini var veittur hverjum sem var, e n húsfreyja laðaði gesti, svo sem sagt er uim hinar fornu höfðingskonur er slíka rausn sýndu. Og Kristín kunni vel að taka á móti hverjum sem var, jafnt þeim sem heldri menn köll- uðust, og hinum sem lægra þóttu settir. En aldrei var þó alúð meiri en þá er gesturinn þarfnaðist raun- verulega hjálpar eða hlýju .Þessi umhyggja var henni í blóð borin En einnig hafa valdið miklu náin kynni hennar af kjörum manna, erfiðleikum og áhyggjum er hún hafði kynnzt svo vel á vaxtarárum sinum og þekkti síðan alla tíð. Ég átti því láni að fagna að kynnast þeim Markúsi og Kristínu mjög vel og heimili þeirra Mátti segja að ég væri þar heimagangur árum saman. Er sjaldgæft að kynn- ast slíku heimili sem þeirra hjóna. Ek'kert heimili að mínu eigin und- anskildu, varð mér kærara .Eru mér margar þær stundir ógleyman- legar, ekki sízt samræður við heimafótk. Að Sólvöilum var gott að koma, hitta heimamenn að máli og ræða við þá sér ti! sálubótar og margfaldiegs gagns. Ætíð héldust náin kynni milii Kristínar og vina hennar og ætt ingja þar eystra í Árnessýslu, þótt sjálf væri hún flutt úr héraðinu. Vinum var kært að koma á heimili þeirra hjóna á Sólvöllum Og sjálf vitjaði Kristín oft, og þau hjón bæði, á fornar slóðir á vit frænda og vina og voru hvarvetna sannir aufúsugestir. En þessi tími er liðinn og ekki kemur hann aftur fremur en ann að sem fram hjá er farið. En gott er gengins að minnast. Bldr er beztr með ýta sonum ok sóiar sýn, beiiindi sitt, ef maðr hafa náir, án við löst at lifa. H.M. Með örfáum orðum langar mig að kveðja Kristínu Andrésdóttur, frændfconu miína, ekkju . Markúsar ívarssonar. Móðir mín og hún voru systra- dœtur, og báru sama nafn, nafn Kristínar Loftsdóttur í Austurhlið í Gnúpverjahreppi, en hún var amima þeirra. Um Kristínu í AusturMíð var það sagt, að hún hafi verið kvenna fríðuist og nettust og svo snyrtileg, að orð var á gert. Var það haft fyrir satt, að hún færi aldrei á teiginn öðruvísi en næla á sig skott húfu. Hún var glaðvær, söngvin og vel hagimælt. Austurhlíðarsvst- ur, dœtur Kristínar, voru miklir aufúsugestir hvar sem þær komu. Þœr voru svo söngvísar, að þær lærðu hvert nýtt lag, sem þær heyrðu, og kenndu svo þeim er á vldu Mýða. Guðrún frá Austurhlíð, móðir Kristínar Andrésdóttur giftist að Heillnahjiáleigu í Gaulverjabæjar- hreppi. Hún var fljúgandi hagmælt, enda má rekja þessa ætt, Reykja- ætt, beint til séra Kolbeins í Mið- dal, en Guðrún dóttir hans giftist Eiríki á Reykjum á Skeiðum. Guðrún er kunn af Gil'sbakka þuilunni, sem séra Kolbeinn faðir bennar orti um hana. Hagmælska, söngnæmi og glað- værð hafa gengið í erfðir i þess- ari ætt, og get ég nefnt sem dæmi systkinin frá Hellnahjáleigu, Loft og Kristínu Andrésdóttur með vísu á vör, hvenær, sem tilefni gafst, og Kristín, söngvin og glaðvær svo af bar. Ég minnist þess, er ég barn að aldri heimsótti Kristínu frænku miína ásamt móður minni .Fyrst í Aðalstræti, síðar vestur á Bakka stíg og loks á Sólvaldagötu 6. Heim- ili hennar þar, ©r mér hugfólgnast, enda átti ég lengsta dvö) á því heimili. Hún tók mér strax opn- um örmuim og hennar heímili var mitt heimili. Þau hjónin Markús ívarsson og Kristín, höfðu átt hús við Túngöt- una. Þar var skemmtilegt að búa fyrir konu, sem alin var upp í sveit og þráði að sjá í kring um sig gróður og græn tún. Þetta hús létu þau af hendi, þegar Markús stofnaði vélsmiðjuna „Héðinn“, á- samit Bjarna Þorsteinssyni .Þau fluttust þá niður í Aðalistræti og bjuggu á loflinu yfir védsmiðjunni En mikil hafa þau viðbrigði verið, að fflytja úr frjálsræðinu við l'ún- götuna, niður í steinsteypt Aðal- strætið og sífelldan dyn vélsmiðj unnar. Kristín sagði seinna, að það hefði verið eins og gripið væri um hjart- að í sér, þegar hún fluttist af Tún- götunni. En hún stóð dygg við hli'ð manns síns þá eins og endranær, enda get ég ekki hugsað mér ástúð legra hjónaband. Þar fór saman ást, virðing og vinátta. Árin liðu. Ég fór suður til Reykjavíkur í Kvennaskólann. Við vorum bek'kjarsystur frænkurnar Guðrún, elzta dóttir KriS'inar og ég. Þá var það sjálfsagt, að ég fylgd ist með henni og borðaði heima hjá henni á Sólvalagötu 6. Þetta var svo eðlilegt, að um það þurfti ekki að ræða. Og um borgun var eklki að tala. Hvað skyldu þeir vera margir, unglingarnir, sem áttu sitt fyrsta heimili í Reýkjavík hjá Kristmu og Markúsi? Ég minnist svo margra gleði stunda á Sólvalagötu 6. Ég minnist páskamorgna. þegar hitzt var í Fríkirkjunni kl. 8, páska sálmarnir sungnir af hjartans list, og síðar farið heim á Sólvallagötu 6. Eða jólahátíðin. Aftansöngur i kirkjunni kil. 6 á aðfangadagskvöld og svo farið heim með Markúsi og Kristínu. Þar leið aðfangadags- kvöld með söng og mikilli jóla- gleði. Það var spilað á orgei og allir sungu. Aldrei sungum við nema jólasálma það kvöld Mér er minnisstætt að Kristín söng mllirödd við hvert lag, enda hafði hún mjög góða söngrödd. Um jólin voru jafnan margir gestkomandi á Sólvallagötii 6. Það var frændfólk og vinir, sem ekki áttu fjölskyldu til að dvelja hjá. En hjá Kristínu og Markúsi var hjartahlýja og húsrými fyrir alla-. En þetta átti ekkj eingöngu við uim jólin. Fjöldi fólks átti athvarf hjá þeiim hjónum allt árið um kring. Listmálarar voru þar tíðir gestir, og suimir dvöldu þar lengri eðu skemmri tíma. Þessari miklu gestakomu fylgdi líka mikii glaðværð. Hið Ijúfa og glaða skap húsráðendanna dró þar ekiki úr. Þær hafa lika sagt dætur þeirrs. hjóna: „Við þvrflum ekki að fara í bíó þegar við vorum ungar. Það var alltaf svo gaman heiima“. Inni fSLENDINGAÞÆTTIR 13

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.