Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Page 9

Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Page 9
nægir þessi uppíalning til að sýna, hversu miikið álit Valdemar hefur haft, bæði utan hrepps og innan. Óuindeilanlega hefur hann unnið meir en nofckur annar að félags- málum Saurbæjarhrepps, enda var oft leitað eftir liðveizlu hans, þeg ar mikið var í húfi, jafnvel í einka- málum, og þóttu ráð hans ætíð gefast vel. Valdemar var greindur, gætmn, íhugull og heill í starfi. Haun hélt málum sínuim fram af festu og lagni en ekki ofriki, og var jafn- an hlustað á málflutning hans. Hann vann að undirbúningi ým- issa stærstu framfaramála hrepps ins svo sem lagningu síma, raf magns, vega, brúargerða o.fl. og einmitt þessi atriði reyndust svo þýðingarmikil fyrir uppbyggingu sveibarinnar. Ef til vill var það erf- iðasta starf Valdemars að vera deildarstjóiri K.E.A. í hreppnum. Bændur áttu í miklum fjárhags örðu'gleikum á árunum miíli heims styrjaldanna. Deildin var ábyrg fyrir úttekt þeirra hjá kaupfélag- inu, og deildarstjórnin ákvað út- tektarheimild fyrir hvern og einn í ársbyrjun. Þegar !eið á sumar tók deildarábyrgð oft að þrjóta, og varð mönnum þá tíðförult til deild arstjórans í því skyni að fá ábyrgð sína hækkaða, því að annars gat bjargarskortur verið yfirvofandi. Valdemar gekk oft nokkuð langt til rnóts við þarfir bænda miðað við áhættu deildarinnar. Ég heyrði eit.t sinn á fundi deildarstjórnar innar, að Valdemar sagði við með- stjórnendur sína: „Ég hef kannslci gengið fulllangt, en það e*- svo erfitt að neita undir þessum kring- un stæðurn". Ég tek fram, að þe ia kom efcki að sök. Valdemar var lí'ka dugmijoil bóndi og hafði augun opin pyrir ný 'ungum á sviði búrekstrar, bvgg ingum, ræktun og vélvæðingu. Möðruvellir kölluðu lífca eftir þessu. Þetta forna höfuðból hefur aldrei svikið landsetana, enda jafn an búið þar velmegandi memi. Valdemar og Guðrún sátu þar með rausn og skörungsskap, sem minnti á hina fornu héraðshöfð- ingja. Samt er ebki hægt að segja, flð búskaparsaga þeirra hafi náð yfir neitt uppgangstímabil í land búnaðinum. Þau hófu ekki búskap á allri jörðinni fyrr en 1918 og hættu að mestu 1935. Þetta voru erfið ár, en samt voru bændur farnir að þreifa fyrir sér á sviði framfaramála. Sjálf aldan var þó enn að balki, og Valdemar var horf inn úr röðum bænda áðiir en hun brunaði yfir landið. Hann lifði sarnt að sjá bændur réttast úr kútn um og vinna stórvirki á jörðum sínum, og hann gladdist yfir fram- förunuim alveg eins og fólkið, sem fékk að njóta þeirra. Valdemar var aldrei í efa um, hvaða afl það var, sem studdi mest að framfaramáluim bændanna. Það var samvinnuhreyfingin í formi Kaupfélags Eyfirðinga, enda vann hann henni vel. í stjórnmálum var hann heldur aldrei neitt hikamii. Framsóknarflokburinn hóf göngu sína sem sókndjarfur umbótaflokk ur á meðan Valdemar var enn ung ur að árum. Foringjar hans voru gáfaðir og eldheitir hugsjónamenn og Valdemar slóst í för með þeim einhuga og ákafur, svo s©m hon- um var eiginlegt. Valdemar var ágætur verkmað ur, en efcki að sama skapi þolinn til erfiðis, bjó að veikindum, sem höfðu nær lagt hann í gröfina á skólaárum hans, en þrefcið var mik ið og stóðst hann raunina. Hann var glaður og gamansamur, sagði skemmtilega frá, féll vel að félags- skap og átti því marga vini. Ekki stóð Valdem.ir einn uppi í lífsbaráttu sinni. Konan hans, hún Guðrún Jónasdóttir, var aldrei neitt letjandi um ævina, og er ég viss um, að til hennar sótti hann styrk og hvatningu. Hjónaband þeirra var ætíð hið ástúðlegasta, og eftir lát hennar var hann aldrci sami maður. Lífsgleði hans var horfin, og þó hann nyti umhyggju1 og ástúðar Ragnheiðar, dóftur sinn ar og f'jölskyldu hennar, gat það ekki bætt honum það, sem hann hafði misst. Hann þráði samveru við konuna, sem var dáin og beið óþolinmóður rftir, að fundum þeirra bæri saman á ný. Guðrún, kona Valdemars fædd ist á Þórustöðum í Öngulsstaða- hreppi 9. ágúst 1886, dóttir hjón anna Sigurlínu Hallgrímsdóttur og Jónasar Jónassonar, sem bjuggu lengi á Völlum í Saurbæjarhreppi. Sigurlína var allvel greind og skór ungur hinn mesti hvað einkamál snerti, en ekki er mér kunnugt um, að hún gæfi sig að félagsmál um almenif. Jónas var gáfaður maður og ágætur hagyrðingur. Hann hafði hlotið fötlun og var ó- hægt um vinnu og ferðalög, komu því ýmis erindi út á við í hlut húsfreyju. Guðrún var tekin til fósturs á fyrsta aldursári sínu af föðursystur sinni Guðrúnu og manni hennar, Jóhanni Jónassym, sem bjuggu þá á Rútsstóðum í Öngulsstaðahreppi, en síðar all lengi á Hólurn og Möðruvóllum. þeim varð ekii barna auðið. Guð- rún naut mikils •í'S'tríkis hjá fóst (SLENDINGAÞÆTTIR 9

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.