Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Blaðsíða 14

Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Blaðsíða 14
NNING Ingibjörg Guðmundsdóttir, kennari j Það fer oft svo þegar maður fréttir lát góðs vinar, að líkast er sem - eitthvað bresti innra með manni. Þannig fór fyrir mér, er mér var sagt lát fyrrverandi hús- móður minnar, frú Ingibjargar Guðmundsdóttur, kennara. Mér fannst sem traustur strengur í hjarta mínu hefði brostið, streng- ur, sem ekki yrði bættur né end- urnýjaður. Ingibjörg hafði átt við vanheilsu að stríða undanfarið, en hafði fóta- ■vist til síðasta dags. Hún lézt á Landspítalanum að kvöldi 5. janú- ar 1971, og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju hinn 12. sama mánaðar. Ingibjörg Guðmundsdóttir fædd ist í Reykjavu hinn 11. maí 1895. Foreldrar hennar voru Guðmund- ur Guðjónsson f. 23. marz 1872, d. 30. júlí 1927 og Sigríður Davíðs- ! dóttir, Ijósmóðir, f. 30. okt. 1864, d. 14. sept. 1950. Stóðu að þeim góðar og traustar sunnlenzkar ætt ir. Barn að árum fluttist Ingibjörg með foreldrum sínum austur á JöikuldaL Bjuggu foreldrar hennar þar um skeið og gengdi Sigríður þar Ijósmóðurstörfum. Munu oft ihafa verið erfið hennar ljósmóður- ferðalög, en hún var sérstaklega dugmikil kona, traust og örugg og voru störf hennar einkar farsæl. Þau Sigríður og Guðmundur slitu sambúð þarna eystra og fluttu ^mæðgurnar þá aftur til Reykjavik- ur. 1 Ingibjörg var mjög vel gefin og einkar námfús. M loknu barna- Ekólanámi, mun hr. Morten Han- síðastliðinn í Landsspítalanum Reykjavík, hafði þá dvalizt þar í fáa daga. Halldóri var ekkert að vanbúnaði. Hann beið aðeins úr skurðar drottins. Vertu sæll vinur. Magnús Finnbogason. sen, skólastjóri Miðbæjarskólans í Reykjavík, hafa stuðlað að því, að Ingibjörg settist í Menntaskólann í Reykjavík. En í þá daga var frem ur fátítt áð stúlkur sbunduðu menntaskólanám. Stúdentspróf tók hún með ágætiseinkunn árið 1915. Að loknu stúdentsprófi afl- aði hún sér framhaldsmenntunar, sérstaklega málakunnáttu. Hún gerðist 1915—1916 heimiliskenn- ari að Búlandsnesi við Djúpavog. Að því loknu réðst hún kennari að Miðbæjarskólanum í Reykjavík og helgaði þeim sbóla kennslu- krafta sína óslitið frá 1916—1937. Árið 1937—1938 kenndi hún við Austurbæjarskólann 1 Reykjavík. Ingibjörg giftist Þorvaldi Árna- syni. skattstjóra í Hafnarfirði, hinn 17. sept. 1938. Flutti hún þá, ásamt móður sinni, til Hafnarfjarðar og bjó að Lækjargötu 12. Var hún seinni kona Þorvaldar og átti hann fimm börn af fyrra hjónabandi. Voru þau elztu komin vel á legg en það yngsta um fjögurra ára 'gamalt. Hlutverk sitt í þeirra garð rækti hún af samvizkusemi og hlutu þau við það þá mótun, er þau nú kunna vel að meta og þakfca. Frá upphafi Iandsprófs mið- skóla var Ingibjörgu falið að vera trúnaðarmaður Landsprófsuefnd- ar við Flensborgarskólann í Hafn- arfirði og gegndi hún því starfi meðan heilsan leyfði. Stundakenn- ari var hún um skeið við Flens- borgarskóla og einnig var hún þar prófdómari í mörg ár. Við barna- skóla Hafnarfjarðar var hún próf- dómari sömuleiðis í mörg ár. Þorvald mann sinn missti Ingi- björg í apríl 1958, eftir erfið veik- indi. Eftir lát hans bjó hún áfram að Lækjargötu 12 um skeið. Flútti síðan til ReykjavífcuT og bjó í eig- in íbúð að Rauðarárstíg 3, og átti þar heima til dánardags. Nemendur Ingibjargar báru til hennar sérstakt traust og virtu hana, enda var hún framúrskar- andi kennari og mun vandfundinn sá eða sú, er hún hafði búið undir próf, sem ekki hafi staðizt það. Annan kost var mér kunnugt um í fari hennar varðandi nemendur sína. Hún fylgdist áfram með náms ferli margra þeirra og lét sér mjög annt um nám þeirra og hag. Ingibjörg unni listum, bókmennt- um og tónlist og lék vel á hljóð- færi. Dulspeki og dulfræði voru einnig hugðarefni hennar. Gott var að blanda geði við hana í einrúmi og heyra af vörum hennar vísdórn um hin óskyldustu efni. Andlegri faeilsu hélt hún til dánardags. Fyrstu kynni mín af Ingibjörgu og hennar heimili hófust íyrir 28 árum, er ég réðst þangað vinnu- kona. Var óg þá að hefja mina fyrstu veru utan foreldrahúsa hjá vandalausum. Tel ég það hafa ver- ið mér mikla gæfu að forlögin skyldu haga því svo að heimili Ingibjargar og Þorvaldar varð mitt lögheimili um nokkur ár eða þar til ég stofnaði mitt eigið heimili. Ingibjörg var sérstaklega virðu- leg í fasi, háttprúð, kærleiksrík, tryggur vinur og heimilisprýði. Að lokum langar mig að minn- ast eins hins fegursta og göfug- asta sem mér fannst búa rífculega í hjarta Ingibjargar, en það var dagleg umhyggja, tal og breytni við Sigríði móður sína. Af samlífi þeirra mátti vissulega margt gott og fallegt læra. Svo hreint og fag- urt var það. Milli jóla og nýárs heimsótti ég fyrrverandi húsmóður mína í síð- Framhald á bls. 31 14 ISLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.