Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Blaðsíða 21

Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Blaðsíða 21
Kristín Ingimundardóttir, SANDLÆKJARKOTI Fædd 5.ág»st 1890., Dáin 24.desembci 1970. Felum drottins föðurhönd harma vora og hjartaþunga, — hann á sjálfur gamia og unga, frjáls að leysa líkamshönd. Jónas Hallgrímsson. Á aðfangadag jóla s.l. andaðist að heimili sínu, Sandlækjarkoti í G-núpverjahreppi, húsfrú Kristín Ingimundardóttir eftir langa van heilsu. Betri jólagjöf en lausn úr Mkamsfjötrum hefði Kristín vaiia 'getað kjörið sér til handa, úr því sem komið var. Þó að hún nyti og hefði notið umhyggju og ástríkis dætra sinna, tengdasona og barna barna í ríkum mæli og væri þeim þakklát fyrir nærgætni og góð- vild, þá vissi hún sjálf, að heils- an var þrotin, og ekki þess að vænta, að hún næði aftur nein- um verulegum bata. Árið 1920, er hún var 24 ára að aldri, réðst Kristín Ingimund- ardóttir að Sandlækjarkoti. Átti það fyrir henni að liggja að vinna lífsstarf sitt á þeim bæ. Á Jónsmessu 1921 giftist hún Ei- ríki Jónssyni bónda í Sandlækj- arkoti, Bjarnasonar. Höfðu þeir langfeðgar búið þar hver fram af öðrum í marga ættliði og vegnað vel. Guðbjörg Kristín, — svo hét hún ful'lu nafni, •— fæddist að Kiðabergi í Grímsnesi 5. ágúst 1896. Voru foreldrar hennar Ingimundur Guðmundsson. sem lengst bjó í Andrésfjósum á Skeiðum, og kona hans, María Gísladóttir. Ingimundur var ætt- aður úr Laugardal í Árnessýslu, er María úr FTjótshlíð. Voru þau hin mestu atgervis- og sæmdarhjón. Ingimundur var maður hár vexti og þrekinn, enda afrendur að afli. María kona hans, var fríð kona sýnum og hvers manns hugljúfi. Bæði voru þau hjón alkunn að góð- mennsku og greiðvikni. Áttu þau mörg börn, sem upp kom- ust og urðu nýtir menn. Kristín Ingimundardóttir bar það með sér, hvar sem hún fór áð hún var af góðu bergi brot- in og hafði alizt upp við góð- an heimilisbrag. Hún var fríð kona og fönguleg, einkar svip- hrein, þægileg og óþvinguð í framkomu og bauð af sér góðan þokfca, enda var hennar innri maður eigi síðri hinum ytra. Góð- vild, sarnúð og hjálpfýsi voru ríkir þættir í skaphöfn hennar. Jafnan var hún glaðlynd og gam- ansöm, svo að úlfúð eða þras gat ekki þrifizt í návist henn- ar. Meðan Kristín naut fullrar heilsu, var hún hamhleypa til allra verka, að hverju sem hún gekk, hvort heldur var úti eða inni. Heimilið í Sandlækjarkoti var 1 tíð tengdafóreldra Kristínar, þeirra Margrétar Eiríksdóttur og Jóns Bjarnasonar, rómað fyr- ir gestrisni og myndarbrag. Hélzt svo um alla búskapartíð þeirra hjóna, Kristínar og Ei- ríks, og raunar allt fram á þenn- an dag. Maður Kristínar Ingimundar- dóttur, Eiríkur Jónsson, vat sex tán árum eldri en hún, fæddur 2. febrúar 1880. Lézt hann 14. maí 1966. Áður en Eiríkur kvæntist, hafði hann um langt árabit veitt forstöðu búi foreldra sinna. Var hann talinn maður vel efn- aður um þær mundir, sem þau Kristín giftust. Þó að við ýmsa örðugleika væri að etja hjá þeim hjónum, eins og öðrum, á kreppuárunum á fjórða áratugi aldarinnar, þá mun óhætt að segja, að þau hafi lengst af búið við góðan efna- hag, enda voru þau mjög sam- hent og samhuga. Búið var stórt, ræktunar- og byggingarfram- kvæmdir miiklar. Margt var að starfa, að mörgu að hyggja og tómstundir fáar. Ekki var fyrst og fremst verið að spyrja um eigin hag. Hitt var látið sitja í fyrirrúmi, að allir heimilismenn mættu vel una sínum hag og nytu þess, áð blessun var í búi. Þeim hjónum, Eiríki og Krist- ínu í Sandlækjarkoti, varð tveggja dætra auðið. Ilin eldri, Margrét, er gift Eiríki Bjarna- syni, bónda Kotbeinssonar frá Stóru Mástungu. Tóku þau ungu hjónin við búi i Sandiækjarkoti fyrir rúirium tuttugu árum. ÍSLENDINGAÞÆTTIR 21

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.