Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Side 11
um við skólann. Felldu þau hugi
saman og giftust þann 23. október
1910. Og fór Stefán með hina
gjörvilegu konu sína heim á ættar-
óðalið til foreldra sinna, Baldvins
hreppstjóra Jóhannessonar og konu
hans Ingibjargar Stefánsdóttur
bónda í Stakkahlíð, Gunnarssonar,
en hann var bróðir þess n afn
ikunna klerks Sigurðar Gunn-
arssonar á Hallormsstað.
Það hefur án efa verið allmikill
vandi sem féll á herðar umkomu
lítilli konu af fjarlægu landshomi,
að setjast að í þessu nýja um-
hverfi, festa þar rætur, samlagast
ólík-Uim viðhorfum, venjum, siðum
og hugsunarhætti. Þennan vanda
tókst henni að leysa með aðdáun
arverðri hógværð, stillingu, prúðri
framkomu og festu skapgerðarinn
ar, án árekstra eða hávaða en við
vaxandi traust, þar sem taumarn-
ir lögðust svo að segja siá'fkrafa
í hennar hlýju, starfsömu, gjörvu
og græðandi hendur.
í meira en hálfa öld unnu hjón
in í Stakkahlíð saman og samhuga
að því að skapa þar annáiað mynd-
ar og rausnarheimili otg ala upp
stóran og mannvæaiegan barna
hóp, jafnframt hvíldi á þvi heim-
ili margháttuð störf í þágu sveitar
og héraðs. Þar var símstöð og póst
stöð og húsbóndinn hafði á hendi
hreppstjórn og sýsluaefndarstörf,
var einn af stofnendum kaupféíags
Austfjarða og átti sæti i stjóm
þess um mörg ár, auk fjöida ann-
arra starfa í þágu sveitar sinnar,
Allt þetta hafði það í för með sér,
að á húsfreyjuna bióðust annir og
lumsvif vegna bess hve gestkvæmt
var á heimilinu, enda áttu þangað
margir erindi og aðrir hylltust til
að koma þangað vegna frábærrar
gestrlsni hjónanna beggja. Og í
fjarvistum húsbóndans við marg
háttuð störf vegna sveitar og hér-
aðs hvfldi oft einnig á henni öll
stjórn heimilisins jafnt utan húss
sem innan. Mun það allra mál,
sem til þekktu, að bæði störf og
stjóra hafi farið þeirri konu jafn
vel úr hendi. Hún var í senn frá-
bær húsfreyja, eiginkona og móð
ir.
Þeim hjónum varð sjö barna
auðið, sem öll eru á lífi. En þau
eru: Baldur Trausti bóndi á
Sævarenda nú búsettur á Seyðis
firði, kvæntur Margréti fvarsdótt-
ut bennara. Sigurður bóndi óg
hreppstjóri í Stakkahlíð, nú á Seyð
isfirði. Kristbjörg, gift Ástnundi
MINNING
Eyjðifur Jðnsson
frá Skagnesi
Fæddur 12. apríl 1895
Dáinn 2. januar 1971.
Kveðja.
Vinum fækkar hér í heim
— hljóðna þættir minniniganna.
Er nú farinn einn af þeim
æðri sviðin til að kanna.
Æskuglaða átti hann lund,
upplag kunni af þefckum sögum.
Mér hafa yljað marga stund
minningar frá æsku dögum.
Ungur reyna aflið fékk
orku og sniBi saman vafði.
Móti vanda mörgum gekk
magnaði vilja og sigur hafði.
Á Vestra-Nesi vor í sál
vaxið fébk í hlýjum ranni.
Góðvild, speki og gamanmál
glæða þroska snót og manni.
Þáttur hans var þaraa stór
— þótt að fleiri legðu saman.
Er á kostum æskan fór
áræðin við starf og gaman.
Berast víða brautir manns,
byggðin rís í kjarna þétita.
Virtu smiðir verkin hans
völundaTÍns handa netta.
Lengi og vel til liðsemdar
lífs í örmum fimur barðist.
Og í þrautuin ellinnar
Eins og betja doða varðist.
í stóra bylinum stanzar far,
slokknar líf á andartaki.
En á brautum eilífðar
englar Drottins hjá þér vaki.
Einar J. Eyjólfsson.
ólsen kaupmanni á Patreksfirði.
Ingibjörg síðari kona Andrésar
Andriéssonar klæðsxerameistaT-a í
Rvík, sem nýlega °r látmn. Hulda
gift Jóhanni Valdimarssyni á
Þrándarstöðuim í Fljótsdalshér
aði. Ólafur vélaverkfræðingur í
Danmörku. kvæntur danskri konu.
Ásta gift Magnúsi Sigurðssyni bu-
sett á Seyðisfirði
Ákveðið hefur verið að hjónjn i
Stakkahlíð öðlist sameiginlegan
hvílustað í ættargrafreitnum þar
og verður duft hennar flutt þang
að. Það er vel, að sú hvíla sé
reidd þar sem ævistarf þeirra var
unnið, þar sem minningarnar vaka
og þar sem „sólarherrann“ hafði
birt þeim almátt sinn í dýrð gró-
anda lífs og blessað störf þeirra
um langa tíð.
Við hjónin og börn oicior þökk
um henni Ijúfa kvnningu, vinfesti
og tryggð og vottum samúð börn-
um hennar, aldnrhniginni systur.
ættingjum og vinum nær og fjær.
Sveinn Víklngur.
ÍSLENDíNGAÞÆTTIR
11