Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Síða 19

Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Síða 19
Bakkabræðram bændur í Öxnadal saimtímis og sá fimmti var kennari þar. Sigurjón, faðir Önmu, lifði í blýju skjóli dóttur og tengdasonar til æviloka, en hann náði níræðis- aldri. Þá var Ólöf, móðir Ármanns, einnig síðustu æviárin hjá þeim hjónum og naut hjúkrunarhanda tengdadóttur sinnar. Var þess mik- il þörf, því að hún var þá ósjálf- bjarga. Auðskilið er, að slik um önnun hefur ekki verið lítil viðbót við venjuleg húsmóðurstörf. Ég heyrði Önnu nokkrum sinnum minnast á þennan þátt starfs síns og ætíð með þakklæti til forsjón- arinnar fyrir að henni skyldi leyfit ' að veita tengdamóður sinni þessa hjálp í lok ævinnar. Auk Hermanns, sem áður getur, eignuðust þau Þverárhjón annan son. Hann fæddist 1938 og hlaut nöfn afa síns og ömmu, Ólafur Þorsteinn. Árin liðu. Búskapurinn blómgað ist. Ræktað var og byggt, starfað áð félagsmálum og notið mann- fagnaðar bæði á heimili og utan þess. Synirnir stunduðu báðir nám í Laugaskóla, en Hermann var síð- ar einn vetur við búnaðarnám í Noregi. Hann hefur nú fyrir nokkru tekið við búi á Þverá. Kvæntur er hann Ásdísi Berg, ættaðri af Vestfjörðum. Ólafur er smiður og býr á Akureyri, kvæntur Önnu Árnadóttur. Anna á Þverá var heilsugóð fram til fimmtugsaldurs. Þá verkt- ist hún af svokallaðri Akureyrar- veiki, sem var einhver tegund löm unarveiki. Eftir það náði hún ekki fullu þreki. Það var þess vegna, að hún hætti Ijósmóðurstarfinu fyrr en hún mundi annars hafa gert. Heilsan mátti þó teljast bæri- leg, og Anna stóð í húsfreyjustöð- unni með fullri sæmd og sömu reisn og áður. Hár hennar varð hvítt, oig við það fékk andlitið mildari svip. Um mörg ár var það venja mín að koma að Þverá einhvern tíma á hverj'u sumri. Stundum dvaldi ég þar nokkra daga. Mér fannst alltaf eins og sól skini, þegar Anna birtist í dyrunum til þess að taka móti mér, og kveðjan var hlý eins og sunnan andvarinn í Öxnadal. Loks kom að því, að gesturinn, sá er fyrr eða síðar heimsækir al'ia, gerði vart við si'g. Hann var hævenskiur í fyrstu, — gerði hennd þó ljóst, að hér eftir skyldi hún ÍSLENDINGAÞÆTTIR MINNING Gustav A. Gustav Adolf 'Sveinsson hæsta- réttarlögmaður andaðist á Borgar- spítalanum nú í ársbyrjun, eftir ianga vanheilsu. Með honum er genginn einn af höfðingjum ís- lenzkrar lögmannastéttar, einn af þeim mönnum, er segja má um, að hafi sett sinn svip á stéttina und- anfaraa áratugi, maður sem sam- ferðamennirnir ósjálfrátt báru virðingu fyrir og sýndu hana að verðleikum. Hann ólst lengst af upp í Hvammi við Mýrdal, en þar bjuggu foreldrar hans. Móðir hans, Vil- borg Einarsdóttir, andaðist hér í bæ mjög háöldruð, hlý kona og svipmikil. Bræður Gustavs heitins voru þeir Karl rafmagnsverkfræð- ingur, sem andaðist ungur, og próf essor Einar Ólafur Sveinsson. Próf essor Einar Ólafur hefir ritað merkilega grein um föður þeirra bræðra, Svein Ólafsson, sem birzt hefir bæði í ritsafninu Faðir minn og ritsafni Einars Ólafs, Ferð og förunautar. Þar skýrir hann frá eigindum föður þeirra bræðra, Sveins Ólafssonar. Hann getur þess að afi þeirra, Ólafur Sveinsson, bóndi að Lyngum í Meðallandi hafi verið trúfastur í lund tryggðin sennilega óbilandi. Faðir þeirra, Sveinn, var einkenndur af viti, en var ekki mikill félagsmaður, var gefinn fyrir kyrrláta gaumgæfilega athugun og fasta sannfæringu, var gagnorður og skýrmæltur, en eng- inn málskrafsmaður. Þessa er hér getið vegna þess, að þetta máttu Sveinsson heita einkenni Gustavs heitins, ætt ararfur hans. Hann var vitmaður, gætti margs og gengdi sínu starfi, en fór ekki út fyrir það. Gustav fæddist 7. janúar 1898 að Höfðabrekku í Mýrdal. Hapn varð stúdent úr Menntaskólanum í Reykjavík 1918, en lögfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík 9. júni 1928. Á þeim árum, sem á milli voru, hefir hann lagt hönd á margt, var um tíma í Kaupmanna- höfn og lagði þar stund á guð- fræði og við lýðháskólann á Hvít- árbakka í Borgarfirði og var þar skólastjóri. Kom þar glöggt fram reisn hans og sjálfstæður hugur, en ekki varð hann þar starfsgró- inn. En strax og hann útskrifaðist í vera viðbúin. Þegar ég heyrði hana segja frá því, að urn ólæknandi sjúkdóm væri að ræða, minntist ég systur hennar, Sigurrósar. Sama æðruleysið hjá báðum. „Mér er ekkert að vanbúnaði,“ sagði Anna. Og það var rétt. Hún hefði skilað mifclu og góðu dagsverki. Synir hennar voru báðir fullorðn ir menn, höfðu staðfest ráð sitt, og annar þeirra tekið við búi af foreldrunum. Enn liðu þó nokkur ár. Hún dvaldi nokkrum sinnum í sjúkra- húsi en þó aldrei lengi í senn. Éig hitti hana síðast í Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri á ágúst 1968. Hún komst enn heim en aðeins um fáar vikur. Hún andað- ist í sjúkrahúsinu 22. nóv. eftir skurðaðgerð. Útför hennar var gerð frá Bakka 28. nóv. og hvílir líkami hennar í kirkjugarðinum þar. Hún hafði gefið Öxnadal meir en helming ævi sinnar, hann átti hana. En ég hygg, að fleiri en mér hafi fundizt sem dimmdi yfir Dranga við hvarf hennar. Eirikur Stefánsson. 19

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.