Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 23.03.1972, Qupperneq 10

Íslendingaþættir Tímans - 23.03.1972, Qupperneq 10
Vigfúsína Vigfúsdóttir Eins og logntær lækur, sem rennur um sléttar grundir, finnst mér lif þessarar konu hafa veriö, sem hér er minnzt. bessi rólynda kona, sem aldrei hugsaði um að hreykja sér hátt, en vann sin störf i kyrrþey. Þess vegna vann hún sér traust og virðingu allra þeirra, er henni kynntust. Vigfúsina var fædd i júli 1894 á Búlandi i Skaftártungu, yngsta barn hjónanna Vigfúsar Runólfssonar og Oddnýjar Sæmundsdóttur siðari konu hans, en þau voru bræðrabörn. Hann var sonur Runólfs Jónssonar hrepp- stjóra i Holti á Siðu, en hún dóttir Sæmundar Jónssonar hreppstjóra á Borgarfelli. Mann sinn, Vigfús, missti Oddný siöari hluta vetrar árið 1894. Vigfúsina sá þvi aldrei föður sinn. Stóð þá Oddný móðir hennar ein með sin fimm börn öll ung. Þá voru ekki tryggingarnar til að létta undir með ekkjunum. En fljót- lega fór til hennar sá mæti maður Siguröur Jónsson, sem varð hennar siöari maður, og gekk börnum hennar i föður stað með miklum sóma, og ég veit að Vigfúsina leit alltaf á hann sem föður sinn. 011 eru nú alsystkin hennar horfin hér af jarðvistarsviðinu. Fjögur börn eignuöust þau Sigurður og Oddný: Guðjón, sem dó mjög ungur, Gisla bónda á Búlandi, Kristinu Jóninu og Pál trésmið, sem kvæntur er Jóhönnu Kristjánsdóttur og býr hér i Reykjavik. Alla tið hinni ókunnu strönd hefur þér verið fagnað. „bar biða vinir i varpa, sem von er á gesti”. Eg vona að vinirnir og skyldmennin, sem á undan eru farin, hafi fengið leyfi til að taka á móti Siggu sinni. Ég veit lika, að þótt þú sért flutt á annað tilverusvið, leggur þú ekki árar i bát. Þú verður áreiöan- lega hlutgeng i starfi þar eins og hér. Svo bið ég hina eilifu algæzku að styrk- ja þig og styðja á þroskabrautinni og varðveita og hugga ástvini þina, sem nú syrgja þig og sakna þin svo sárt. Vertu sæl vina min. Guð blessi minningu þína. Þin Jana. dvaldist Vigfúsina að mestu á Bú- landi hjá móður sinni og stjúpa, meðan þau bjuggu, en siðar bústýra hjá Gisla bróðursinum, eftirað hann tók þar viö búi. Sigurður á Búlandi var sérstaklega vinsæll maður og vinmargur, og þau hjón bæði, og sérstakur greiðamaður. Það var haft eftir Þorsteini Pálssyni, sem bjó nokkur ár i Svartanúpi: „Hann Siggi á Búlandi, hann getur allt”. Og ekki var það siður hjá þeim systkinum eftir að þau tóku þar við búi,viljinn sá sami. en getan meiri. Bræðurnir sérstaklega laghentir og smiðir góðir og sama var að segja um syturnar, enda var oft leitað til þeirra og alltaf var sjálfsagt að gera allt fyrir þá, sem til þeirra leituðu, sem hægt var. Það var oft leitað til Vigfúsinu þegar illa stóð á á heimilum og stúlku vantaði, hvort sem voru veikindi eða af öðrum ástæðum. Þá var hún fljót að koma til hjálpar, ég held að hennar hugsun hafi alltaf verið sú að hjálpa öörum án þess að hugsa um daglaun að kvöldi. Vigfúsina var vel gerð kona ákaflega rólynd og skapgóð en gat þó verið létt i lund þegar við átti, dugleg til allra verka jafnt úti sem inni. Margir unglingar hafa verið á Búlandi yfir sumartimann, og öllum liðið þar mjög vel, enda hafa margir, sem þar hafa dvalið, sýnt þeim syst- kinum mikla ræktarsemi. Pétur Sveinsson, nú bifreiðarstjóri I Reykjavik, var alinn þar upp og var þar alveg fram yfir 20 ára aldur, og svo var Sigurður Oddur sonur hans tekinn þangað 2ja ára, og hefur nú Verið þeirra styrkasta stoð siðari árin og reynzt þeim mjög vel. Þess skal getið, að þegar Pétur Sveinsson frétti að Vigfúsina lægi mik- ið veik fór hann og hans góða kona i samráði við Pál bróður hennar og sóttu hana og komu henni i Lands- spitalann, meira var ekki hægt að gera. Þetta sýnir þann góða hug, sem hann bar til hennar, og sem hún hefur sannarlega átt skilið af honum. Vigfúsina lézt i Landsspitalunum 20. febrúar siðastliðinn. Hún var jörðuð við Grafarkirkju. Við hjónin þökkum henni innilega fyriralla þá miklu hjálp, sem hún auð- sýndi okkur, og allar skemmtilegar samverustundir. Systkinum hennar sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Vigfús Gestsson. 10 islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.