Íslendingaþættir Tímans - 21.09.1972, Síða 12

Íslendingaþættir Tímans - 21.09.1972, Síða 12
Sigurður Jónsson Stafafelli Þótt nokkuð sé nú liðið frá andláti frænda mins og vinar, Sigurðar á Stafafelli, er lézt að heimili sinu hinn 1. júni s.l., þá má jafnframt segja, að ekki sé of seint að minnast hans, þvi enn er i fullu gildi hið gamla spakmæli Hávamála, „Orðstir deyr aldregi, hveims sér góðan getur”. Sigurður var fæddur að Bjarnanesi i Nesjum i Austur-Skaftafellssýslu 22. marz 1885 og var þvi rúmlega 87 ára er hann lézt. Voru foreldrar hans þau merku hjón sr. Jón prófastur þar og siðar á Stafafelli og fyrri kona hans, Margrét Sigurðardóttir Gunnarsson- ar, prófasts á Hallormsstað, og konu hans Bergljótar Guttormsdóttur Páls- sonar, prests i Vallanesi. En foreldrar sr. Jóns voru Jón , bóndi, Jónsson á Melum i Hrútafirði, sonur Jóns Jóns- sonar, sýslumanns, og kona hons Sig- urlaug Jónsdóttir, bónda á Helgavatni i Vatnsdal, ólafssonar. Sést af þessu, að hér er i báöum ætt- um um stórbrotið gáfufólk að ræða, er sumt hefir verið þekkt að afrekum á sviði bóklegra fræða og andlegrar menningar. Má þar fyrst nefna föður Sigurðar, sr. Jón á Stafafelli, er af sumum var kallaður hinn fróði, sem dæmi þess að það hafi ekki oflof verið skal nefnt, að auk starfs sins sem prestur og prófastur i Austur- Skaftafellssýslu um 45 ára skeið,þing- mennsku um árabil auk margra ann- arra starfa, er einatt hafa hlaðizt á vinsæla sóknarpresta, þá tókst honum að láta eftir sig visindarit, er halda munu nafni hans á lofti um langa framtið. Skulu hér nefndar ritgerð.. um islenzk mannanöfn, er birtist i Safni til sögu fslands 1899 og Vikinga- sögu, er út kom 1915. Ennfremur fjölda greina um fornsöguleg efni, er aðallega birtust i Timariti Bók- menntafélagsins og Skirni, en einnig i erlendum timaritum. Til gamans skal þvi aðeins bætt við hér, að þegar einn af greindustu bænd- um i sýslunni hafði lesið Vikingasögu, bað hann kunningja sinn fyrir eftirfar- andi skilaboð til sr. Jóns: „Heilsaðu sr. Jóni frá mér og segðu honum, að heldur hefði ég viljað vera talinn minni búmaður en ég er, og svona verk lægi eftir mig”. Var þetta Guðmundur Jónsson i Borgum, siðar i Nesi i Sel- vogi. Þá má þess og geta, að tvisvar sinnum hlaut sr. Jón verðlaun fyrir verk sin af gjöf Jóns Sigurðssonar, og sýnir það bezt hverrar virðingar fræðistörf hans nutu. Þá vil ég einnig minnast tveggja kvenna, er voru náfrænkur Sigurðar og báðar urðu landskunnar. Er þar fyrst föðursystir hans, frú Ingunn Jónsdóttir frá Kornsá, er eftir að hafa lokið venjulegu ævistarfi, gerðist rit- höfundur og auðgaði islenzkar bók- menntir að verkum, sem örugglega má teljast meðal hinna beztu á sinu sviði. Hin er frú Sigrún Pálsdóttir Blöndal, er þekktust er fyrir uppbyggingu og stjórn húsmæðraskólans á Hallorms stað, en hún og Sigurður voru systra- börn. Enn fremur voru þeir syskinasynir sr. Jón og Björn ólsen, prófessor þvi Magnús Ólsen á Þingeyrum, faðir Björns, var kvæntur Ingunni, föður- systur sr. Jóns. Hér skal ekki lengra farið i að telja ættmenni Sigurðar á Stafafelli enda nægir þetta til þess að sýna,að hann átti til fjölhæfs gáfufólks að telja i báð- ar ættir. Eins og fyrr segir, var Sigurður fæddur að Bjarnanesi i Nesjahreppi. En vorið 1891 fluttist hann með for- eldrum sinum að Stafafelli i Lóni þá sex ára gamall, og við þann stað var hann jafnan kenndur siðan, enda var það heimili hans til æviloka, og þar vann hann sitt aðalævistarf. Fyrst sem bústjóri á heimili föður sins og stjúp- móður, og siðar bóndi. Móður sina missti hann um fermingaraldur og má nærri geta hvilikur missir það hefir verið, enda var frú Margrét hin mikil- hæfasta gæðakona. En skömmu siðar kvæntist sr. Jón annað sinn. Var siöari kona hans Guðlaug Vigfúsdóttir frá Arnheiðarstöðum i Fljótsdal. Mun flestra kunnugra mál, að vart hefði það skarð getað verið betur fyllt. Svo vel kynntist hin nýja húsmóðir á Stafa- felli bæði heimilisfólki og syeitungum. Enda minnist sr. Jón þess i endur- minningum sinum, hve vel hún hafi reynzt bæði sem eiginkona og stjúp- móðir. Snemma mun hafa á þvi borið, að hugur Sigurðar hneigðist til búskapar. Ekki fór hann þó til náms i þeirri grein, heldur i gagnfræðaskólann i Flensborg, og lauk þaðan gagnfræða prófi vorið 1903. Heyrði ég hann eitt sinn minnast á það, að fullan kost hefði hann átt þess, að halda áfram til lang- skólanáms, en ekki haft löngun til þess, þar sem búskapurinn hafð þá þegar tekið hug hans. Og aðeins tvi- tugur að aldri tók hann við bústjórn á hinu stóra heimili og fórst það þegar vel úr hendi. Byrjaði hann þegar á um- bótum, bæði hvað húsagerð og ræktun snerti. Auðvitað voru túnasléttur á þeim tima fyrst og fremst unnar með hinni gömlu þaksléttuaðferð og var þar mikið verk að vinna, þvi að Stafa- fellstún var stórt og stórþýft að mestu leyti. Siðar þegar gamla túninu höfðu verið gerð góð skil hóf hann nýrækt i stórum stil, með nýjum aðferðum, bæði á valllendi utan túns og fram- ræstu mýrlendi. Sama má segja um húsabætur. Á fyrstu áratugum aldarinnar risu af 12 íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.