Íslendingaþættir Tímans - 14.02.1976, Page 1
ÍSLENDINGAÞATTIR
Laugardagur 14. febrúar 1976 — 7. tbl. 9. árg. No. 241 TIMANS
Guný Helga Guðmundsdóttir
Emil Theódór Guðjónsson
Guðný Helga
Guðmundsdóttir
f- 6. ág. 1896
d. 16. júní 1974.
Emil Theodór Guðjónsson
f. 10. mai 1896
d. 11. janúar 1976
Fyrir örfáum dögum frétti ég, að
Emil frændi minn hefði verið fluttur
suður til Reykjavikur mikið veikur og
skömmu siðar, að hann væri látinn. Þá
komu i hug minn margar minningar
frá æskudögum minum,eréglék mér i
hlaðvarpanum i Hátúni i Seyðis-
fjarðarhreppi ásamt bömum hans,
eða við sátum i hnapp kringum hann á
kvöldvökunni og hlýddum á lestur
ýmissa góðra bóka er hann las fyrir
okkur sem og annað heimilisfólk sitt,
oft eftir erilsaman dag. Ekki spillti
það heldur ánægjunni, hve húsmóðirin
var ávallt blið og skilningsrik, og vildi
öllum gott gjöra, enda var oft til henn-
ar leitað með vandamál erupp komu i
hópnum.
Það er liðinn timi og löngu i eyði
bærinn þar sem þau bjuggu. Nú eru
þau bæði komin yfir móðuna miklu og
þvi eigi hægt á þau að hlýða né til
þeirra að leita með ágreiningsefni sem
upp kynnu að koma. Samt munu þær
æskuminningar ylja mér þau ár eða
daga sem ég kann að lifa þau hjón.
Emil Theódór Guðjónsson var fædd-
ur að Árnastöðum i Loðmundarfirði
10. mai árið 1896 og hefði þvi orðið átt-
ræður að vori hefði hann lifað. Faðir
Emils var Guðjón Gislason bóndi þar,
en móöir Jórunn Björnsdóttir kona
hans. Sem ungbarn missti hann föður
sin og ólst þvi upp að Úlfsstöðum i
sömu sveit, hjá Guðrúnu Jónsdóttur,
r
i
á i o
móðurómmu sinni og Jóni Þorleifs-
syni, er hún giftist eftir missi unnusta
sins. Um fermingu fluttist Emil til
Jóns Jónssonar móðurbróður sins og
Guðrúnar Stefánsdóttur að Klippstað
einnig i Loðmundarfirði.
Til Seyðisfjarðar lá siðan leiðin en
þar kynntist hann lifsförunaut sinum
Guðnýju Helgu Guðmundsdóttur frá
Brimbergi. Hún lézt fyrir einu og hálfu
ári og var Emil aldrei samur eftir
fráfall hennar.
Þau hjónin eignuðust tólf börn, sem
öll eru á lifi. En þau eru: Guðjón og
Friðrik starfsmenn i Héðni, Gisli
starfsmaður i Blaðaprenti, Guðrún og
Asdis búsettar i Keflavik, Valgeir,
Guðmundur, Asgeir, Valgerður og
Emil öll búsett á Seyðisfirði,
Vilhjálmur búsettur á Egilsstöðum og
og Jórunn sem er búsett I Færeyjum.
Þegar Emil lézt átti hann orðið 101 af-
komanda.
Einnig ólu þau hjón upp tvær stúlk-
ur, þær Jóninu hún, dótturdóttur sina,
búsetta i Grindavik, og Jóhönnu
systurdóttur Guðnýjar búsetta i Kefla-
vik.
Emil stundaði lengst af búskap og
stóð hugur hans ætið til þess starfa.
Hann var natinn og umhyggjusamur
við dýrin, en þó áttu ærnar mest rúm i
huga hans, enda var hann talinn af-
bragðs fjármaður.