Íslendingaþættir Tímans - 14.02.1976, Side 5

Íslendingaþættir Tímans - 14.02.1976, Side 5
Pálína S. Jónsdóttir Syðri Löngumýri F. 9.2. 1889 D. 14.12. 1975. Segja má að það sé aðeins gangur lifs- ins að aldnir hverfi af sjónarsviðinu, en þóer það svoað þegar að þvi kemur oft fyrirvaralaust, þá er eins og venzlafólk þeirra og velunnarar séu þvi aldrei fullkomlega viðbúnir. Með Pálinu er gengin góð kona og gegn sem ætið hafði lag á þvi að gleðja oglifga i kring um sig þrátt fyrir ýmis- konar mótlæti m.a. algjört sjónleysi um margra áa skeið. Hún andaðist á Héraðshæli Hún- vetninga 14. des. s.l. og var jarðsett að Svinavatni 20. sama mánaðar að við- stöddu fjölmenni. Pálina var fædd að Fremri Hnifsdal i Eyrarhreppi vestra og voru foreldrar hannar Jón Björns- son sjómaður og k. h. Jóhanna Pálsd. Hún ólst upp i Fremri Hnifsdal hjá frænda sinum Kjartani Guðmundssyni útvegsbónda ogdvaldist þar fram yfir tvitugsaldur, en sumarið 1913 réðst hún sem kaupakona hér austur i Húna- þing að Syðri Löngumýri til Jóns bónda Gislasonar og k.h. önnu Jóns- dóttur, þar sem hún kynntist eftirlif- andi manni sinum Eyþóri Guðmunds- syni Húnvetningi að ætt sem þá var þar vinnumaður, en þau gengu i hjóna- band 5. marz 1914 og voru þá vinnuhjú Syðri Löngumýararhjóna. Varla hefur þeim hugkvæmzt þaö, hinni vestfirzku kaupakonu og hinum húnvetnska vinnumanni þegar þau voru að fella hugi saman á Syðri Löngumýri sumarið 1913 að þessi jörð ætti eftir að verða eign sonar þeirra og heimili þeirra sjálfra um áratuga skeið. Fljótlega réðust hin ungu hjón i að hefja búskap á eigin spýtur og voru m.a. við búskap á Eiðsstöðum i Blöndudal i 3 ár, en árið 1920 flytjast þau vestur i Hnifsdal á æskustöðvar Pálinu og bjuggu þar i 17 ár þar sem maður hennar stundaði alla algenga vinnu til lands og sjávar, og ekki hefur þeim dugaðað liggja á liði sinu á erfið- um árum með allmikla ómeg5 en þeim varð 7 barna auðið og eru nú 5 þeirra á lifi. Aftur leituðu þau hjón Húnaþings ásamt börnum sinum og voru m.a. á Auðkúlu hjá sr. Birni Stefánssyni og viðar. En árið 1947 hóf Halldór sonur þeirra búskap á Syðri Löngumýri ásamt konu sinni Guðbjörgu Agústs- dóttur (nú látin) og keyptu þá jörð og hafa hin öldnu hjón átt þar heimili ávallt siðan. Það er alkunn saga þó að nú fyrnist ef til vill óðum yfir hana i kapphlaupi um veraldargæði hver kjör fátæks al- þýðufólks voru á landi hér á fyrri ára- tugum þessarar aldar, kjör þess leyfðu ekki mikil þægindi eða rými til at- hafna, hugsunin hefur orðið að snúast um það fyrst og fremst hvernig það gæti helzt séð sér og börnum sinum fyrir brýnustu nauðsynjum. Þessi kjör þekkti Pálina vel, enda er mér minnis- stæðsú setning sem hún sagði eitt sinn við mig fyrir nokkrum árum „Þessi þjóð hefur ekki lifað lengi öll við alls- nægtir, en það væri betur að hún gerði það ætið hér eftir”. Pálina var um margt sterkur per- sónuleiki og hafði ákveðnar og bjarg- fastar skoðanir á ýmsum málefnum ef hún lét þær i ljósi. Trúarskoðanir hennar voru ákveðnar og óhagganleg- ar og stundum lét hún i ljósi nokkra áhyggju yfir þvi að hin yngri kynslóð stæði þar ekki nægilega traustum fót- um. Aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkurri manneskju, heldur taldi hún aö það góða væri allsstaðar i meiri- hluta ef rétt væri að farið. Hún varð fyrir þvi þunga áfalli eins og fyrr er sagt að missa sjónina næst- um algjörlega fyrir allmörgum árum, en var lengst af mjög heilsugóð að öðru leyti, og gat ég tæpast annað en undrast það hvað hún bar sjónleysið með miklu æðruleysi, enda var maður hennar henni mikil hjálparhella i þessu og óþreytándi að segja henni hvers hanssjáandi augu urðu áskynja, endá er hann lipurmenni að allri gerð. Þá var og til fyrirmyndar sú aðbúð sem þessi öldnu hjón áttu á heimili sonar sins og tengdadóttur, þar til fyr- ir rúmum tveimur árum að þau fóru á elliheimili Héraðshælis Húnvetninga sökum veikinda og siðar vegna fráfalls tengdadóttur þeirra. Þar brást sú stoð sem vel hafði staðið undir dvöl þeirra aldraðra á Syðri Löngumýri. Ég vil færa þessari látnu konu minar beztu þekkir fyrir góða viðkynningu og trausta vináttu á liðnum árum. Ég votta eftirlifandi manni hennar og af- komendum öllum samúðog óska þeim farsældar i lifi og starfi. Sig.L. islendingaþættir 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.