Íslendingaþættir Tímans - 14.02.1976, Blaðsíða 6
Guðmundur
Eyjólfsson
frá Þvottá
Guðmundur Eyjólfsson var fæddur 20.
september 1889 á Kambshjáleigu i
Hálsþinghá. Hann lézt 2. september
s.l. á Landakotsspitala tæpra 86 ára að
aldri eftir stutta sjúkralegu. Foreldrar
hans voru Sigurbjörg Einarsdóttir og
Eyjólfur Jónsson bóndi á Geithellum,
Jónssonar á Skálafelli i Suðursveit,
Þorsteinssonar á Felli, Vigfússonar.
Móðir Eyjólfs hét Guðrún Sigurðar-
dóttir bónda i Hamarsseli i Hamars-
dal, Antoniussonar á Hálsi. Einar faðir
Sigurbjargar var Magnússon bónda á
Lambleiksstöðum á Mýrum, Jónsson-
ar. En móðir hennar var Ragnheiður
Guðmundsdóttir bónda á Starmýri,
Hjörleifssonar sterka, Árnasonar i
Höfn i Borgarfirði eystra, Gislasonar
prests á Desjarmýri. Móðir Ragnheið-
ar hét Sigriður Arnadóttir bónda á
Starmýri, Jónssonar.
Eyjólfur og Sigurbjörg gjuggu i
nokkur ár i Kambshjáleigu, en þaðan
fóru þau, fyrst í Borgargarð, en siðan
að Hlið við Djúpavog, og þar áttu þau
heima til æviloka. bau náðu bæði há-
um aldri, komust fast að niræðu. Þau
eignuðust sex börn, fjóra syni og tvær
dætur.synirnir eru nú allir látnir. Þeir
voru Guðjón i Framnesi, Guðmundur
sem hér er minnzt, Ragnar á Hlið og
Emil i Hliðarhúsum. Dæturnar eru
enn á lifi, þær eru Ingibjörg i Hrauni
nú orðin 87 ára að aldri og Sigriður á
Hlið nær áttræð.
Guðmundur Eyjólfsson ólst upp hjá
móðurbróður sinum og nafna Guð-
mundi Einarssyni og konu hans
Kristinu'Jónsdóttur. Hann var á öðru
ári þegar hann kom til þeirra. Þá
bjuggu þau i Markúsarseli, sem var
dalabýli i Flugustaöadal i Álftafirði,
en er nú komið i' eyði. Um aldamótin
fluttust þau að Hofi til séra Jóns
Finnssonar, en fóstri Guðmundar
gerðist ráðsmaður þar á staðnum. A
Hofi voru þau i fjögur ár, en þegar
séra Jón fór frá Hofi og settist aö á
Djúpavogi, fóru þau að Kambsseli i
6
Geithellnadal og bjuggu þar i sjö ár,
þangað f ór Guðmundur með þeim. En
einmanaleiki dalsins heillaði ekki
mann á hans aldri. Hann þráði viðari
sjónhring, og eftir nokkurra ára dvöl i
Kambsseli kvaddi hann dalinn, lagði
land undir fót og hugðist kanna nýjar
slóðir. Hann hélt til Reykjavikur og
dvaldi þar eitthvað fyrst, en fór svo að
Hesti i Borgarfirði og var þar um tima
hjá séra Arnóri presti Þorlákssyni. En
þótt honum likaði vel að vera bæði i
Reykjavik og Borgarfirði, þá vitjaði
hann þó átthaganna á ný og fór austur
i Alftafjörð. Þegar þangað kom voru
fósturforeldrar hans farin frá Kambs-
seli og komin aftur i Markúsarsel,
þangað fór hann til þeirra. 1
Markúsarseli bjuggu þau ekki lengi i
það sinn, þaöan fóru þau að Flugustöð-
um og siðan að Múla. Arið 1917 keypti
Guðmundur hluta af jörðinni Starmýri
og hóf þar búskap það ár, þangað
fluttu fósturforeldrar hans meö hon-
um, þau voru þá tekin að eldast og
fóstri hans þá þegar orðinn sjóndapur.
Þar dó Kristin i hárri elli, en Guð-.
mundur lifði til ársins 1948, var þá orð-
inn 88 ára og hafði verið blindur i
aldarfjórðung.
Kona Guðmundar var Þórunn Jóns-
dóttir vel greind kona og sönggefin,
hún var fædd 5. september 1888 á
Rannveigarstöðum. Faðir hennar var
Jón bóndi Björnsson, sonur Björns á
Flugustöðum, Antoniussonar á Hálsi.
En móðir hennar var Vilborg Jóns-
dóttir, Jón faðir Vilborgar var kallað-
ur söngur, vel gefinn maður og söng-
maður góður, hann var Jónsson ættaö-
ur úr Skaftafellssýslu. En móðir Vil-
borgar hét Sigriður Ofeigsdóttir bónda
á Starmýri Arnasonar. Móðir Jóns
Björnssonar var Kristin Sigurðardótt-
ir bónda og alþm. á Múla, Brynjólfs-
sonar prests i Heydölum Gislasonar.
Guðmundur og Þórunn gengu i
hjónaband árið 1919. Þau bjuggu á
Starmýri i 25 ár og eignuðust 9 börn,
sem öll eru á lifi: Kristinn, bóndi að
bvottá, kona hans er Unnur Guttorms-
dóttir. Eggert, búsettur i Reykjavik.
Stefán, framkv.stj. Reykjavik, kvænt-
ur Mattheu Jónsdóttur, listam. Val-
borg, gift Ingvari B. Guðnasyni,
húsasm. Reykjavik. Egill, starfsm.
hjá Seltjarnarneshr., kvæntur Elisa-
betu Gunnlaugsdóttur. Leifur,
húsasm. Reykjavik. Sigurbjörg, henn-
ar maður er Arnór Karlsson, búsett á
Sauðárkróki. Þorgeir, starfsm. hjá
Iðunni, Akureyri, kvæntur Arnfriði
Gunnarsdóttur. Ingibjörg, hennar
maður er Snæbjörn Þorvarðarson,
bóndi Þiljuvöllum, Berufjarðarströnd.
Arið 1942 keyptu þau jörðina Þvottá og
bjuggu þar, eftir það, meðan bæði
lifðu. Þórunn átti við vanheilsu að
striða siðustu árin, sem hún lifði. Ilún
andaðist á Þvottá 20. nóvember 1956,
68 ára að aldri.
Guðmundur hafði áfram heimili á
Þvottá eftir að hann missti konu sina.
En siðustu árin dvaldi hann i Reykja-
vik að vetrinum, en þegar voraði fór
hann austur að Þvottá og var þar yfir
sumartimann. Til Reykjavikur kom
hann nú sina siðustu ferð .þann 21.
ágúst s.l. og lagðist inn á sjúkrahús,
þaöan átti hann ekki afturkvæmt. En
þótt hann vissi fullvel að hverju dró þá
var hann hinn kátasti, og var ekki á
honum að sjá að hann kviði um-
skiptunum. Guðmundur var alla tið
Frh. á bls. 15
islendingaþættir