Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 06.03.1976, Qupperneq 6

Íslendingaþættir Tímans - 06.03.1976, Qupperneq 6
r Asta Jónsdóttir húsfreyja Arkarlæk, Skilmannahreppi Fædd: 6. april 1901. Dáin: 15. sept. 1975. Það undrar vist engan þótt daprar hugrenningar hvarfli að hugum manna við andlát góðra vina eða vandamanna, einkum ef um er að ræða nánustu ættmenn föður eða móð- ur en hennar er jafnan sárast saknað af börnum og maka. Og hver skyldi þá ekki, þegar um húsfreyjuna og móður- ina er að ræða, minnast hinna fögru ljóðlina er hljóða á þessa lund: Fósturlandsins freyja fagra vanadis móðir kona meyja meðtak lof og pris. Blessað sé þitt bliða bros og gullin tár þú ert lands og lýða. ljós i þúsund ár. Þykir þá mönnum ljóðlinurnar ein- mittekki fullgild sönnun þeirrar stað- reyndar er ljóðið bendir á, að góð kona og móðir sé vissulega bjartasta ljósið og hollasti ylgjafinn sem hverju heim- ili má beztur hlotnast. Að eiga heimili verndað af umhyggju og ást góðrar konu er vissulega sú mesta hamingja sem hlotnazt getur einum manni á ævibraut hans. Það er þvi ljóst að um örlagastund er að ræða er húsfreyjan fellur skyndi- lega frá ævistarfi sinu. Þá skapast eyða og töm, allt verður á annan veg háttað en áður var. Söknuður og sær- indi nista hjörtu ástvinanna og sorg þeirra ogannarra vandamanna veldur beiskju og þrá eftir einhverju óorðnu um óráðin timamörk. Þó er það svo að þetta er staðreynd sem ekki verður dulin augum manna. Dauðinn gerir hvergi stanz. Þvi verður ævi manna jafnan óráðin gáta og miskunnarlaust strið og þannig kemur það mér fyrir sjónir. Margskyns orsakir geta legið til þess að menn verði siðbúnir með eitt eða annað verkefnið. Þó vist megi telj- ast að það verði að vinnast þrátt fyrir ýmsar óviðráðanlegar tafir. Og svo hefur nú orðið um mig. Þess vegna er ég enn ekki farin að minnast látinnar velgjörðakonu minnar Astu Jónsdótt- 6 ur húsfreyju að Arkarlæk. En þar er einmittein af hinum óviðráðanlegu or- sökum sem að framan greinir er valda þvi að ég hefi enn ekki komið þvi i verk að skrifa um hana nokkur minningar- og saknaðarorð, og ástæðan er frómt frásagt sú, að ég hefi ekki trúað þvi til þessa og geri vart enn að hún Asta sé látin, þótt ég hafi fyrir mánuðum fylgt henni siðasta áfangann i kirkju- garðinn. Þvi bið ég ástvini hennar og vandamenn velvirðingar á þessum skammarlega drætti á fyrirætlun minni og fylgja henni úr hlaði með þessum fátæklegu minningarorðum. Asta er fædd að Belgsholtskoti i Melasveit i Borgarfjarðarsýslu þann 6. april 1901. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Sigurðardóttir og Jón Þorláksson. Asta fluttist með foreldr- um sinum að Arkarlæk i Skilmanna- hreppi á þriðja aldursári og mátti segja að þar dveldi hún til æviloka að undanskildum ellefu árum sem hún bjó með manni sinum að Litla Lamb- haga i sömu sveit. Ég þekkti ekki ættir Ástu neitt að ráði en veit þó að móðir hennar var komin af hinni landskunnu Bergsætt og að allra dómi hin ágætasta kona i hvivetna. Faðir Ástu var eins og að framan getur Jón Þorláksson viðkunn- ur maður að dugnaði og atorku, svo að fáir urðu honum að . jafnaðarmanni. Þann 23. júni 1929, steig Ásta það spor er hún æ siðan taldi mestu eæfu lifs sins er hún gekk að eiga eftirlifandi mann sinn Guðmund Björnsson, kunn- an sjómann og bónda að Litla Lamb- haga i sömu sveit, en þar bjuggu þau emsog að framan getur i ellefu ár, unz þaukeyptuogfluttu að Arkarlæk vorið 1940 og reistu þar stórbýli, sem þau hafa siðan setið með stórmennsku og myndarbrag. Þeim hjónum varð sex barna auðið sem öll eru upp komin, myndarfólk hið mesta að allri gerð, sem foreldrar þeirra en þau eru þessi: Guðjón, tækjastjóri búsettur á Akra- nesi, kvæntur Huldu Pétursdóttur frá Kötlustöðum i Vatnsdal. Björn, framkvæmdastjóri búsettur að Hólabraut i Reykjadal kvæntur Gúðnýju Kolbeinsdóttur af Skútu- staðaætt. Sesselja gift Gisla Búasyni hrepps- stjóra að Ferstiklu á Hvalfjarðar- strönd. Bjarnfriður búsett á Akranesi gift Sigurði Magnússypi vélvirkja ættaður af Akranesi. Valdemar, vinnuvélastjóri ókvænt- ur. Ásmundur bóndi að Arkarlæk ókvæntur. Asta og Guðmundur höfðu verið i farsælu hjónabandi i f jörutiu og sex ár er hún lézt og voru niðjar þeirra þá orðnir þrjátiu og átta að tölu við lát hennar. Leiðir okkar Ástu lágu fyrst saman vorið 1941, en hún og Sólbjörg kona min voru fóstursystur og átti ég upp frá þvi marga aufúsu stund á heímili þeirra hjónaá Arkarlæk. Eink- um nú á hinum siðari árum siðan kona min lézt og hafa þau hjón bæði vafið mig að sér af ástriki og umönnun. Það þarf þvi engan að undra þótt komið hafi yfir mig tómleika kennd við and- látsfregn vinkonu minnar. Ásta átti i íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.