Íslendingaþættir Tímans - 12.01.1980, Síða 16

Íslendingaþættir Tímans - 12.01.1980, Síða 16
90 ára: Kristín Pálmadóttir Mér finnst það með ólikindum, að Kristin fyrrverandi húsfreyja frá Hnaus- um sé níræð. Ég sé hana fyrir mér unga og glæsta stjórna búi sinu á um- svifamiklu heimili og sé ekki á henni nein ellimörk. En það var fullyrt við mig fyrir nokkrum dögum, að hún væri fædd að Hvammi i Langadal þann 10. april 1889, svo ég verð aðláta i minni pokann. Sem kornabarn fluttist hún með for- eldrum sinum að Vestur-Á i Laxárdal, og þar sleit hún barnsskónum. Foreldrar Kristinar voru Pálmi Erlendsson Guðmundssonar frá Móbergi, sem átti 20 börn. Frá honum er runnin hin mikla Mó- bergsætt, sem er mjög kunn i Húnavatns- sýslu og telur margt mætra manna. Móðir Kristinar var Skagfirðingur, Jórunn Sveinsdóttir frá Starrastöðum i Skaga- firöi. Laxárdalurinn er grösug og vinaleg sveit að sumarlagi, en mikið vetrarriki er þar og búskaparskilyrði erfið. Nú er þessi dalur að mestu kominn i eyði. Sjálfsagt hefur Kristin snemma veriö tápmikl og dugleg við að bjarga sér. Tólf ára gömul er hún lánuð að Hvammi i Langadal til að gæta barna þeirra hjóna, Frimanns og Valgerðar. Um þetta leyti fer að iosna um búendurna á Vestur-A, og flytjast þau hjón með bú og börn til Sauðárkróks. Kristin minnist oft veru sinnar á Króknum, það voru góð umskipti að sjá fyrir sér fagran og viðfeðman Skagafjörð og komast i fjölmennið i stað, þess aö búa i þröngri og afskekktri fjalla byggð. Frá Sauðárkrókskirkju er Kristin' fermd og minningarnar úr Skagafirði eru henni ljúfar. Eftir fárra ára dvöl á Sauðár króki flytur fjölskyldan til Reykjavikur. Kristin tók þegar að vinna fyrir sér þegar til höfuðstaðarins kom og þótti lið- tæk til þeirra starfa, sem hún réðst til. Hún átti jafnan góða húsbændur, en hún minnist með ánægju og þakklæti. Þar ber einna hæst Harald Arnason kaupmann og konu hans en hjá þeim var hún um skeið i vist. Þá starfaði hún einnig á helsta veitingahúsi Reykjavikur, Hótel ísland, bæði viö matreiðslu og framreiðslu. Telur hún, að Reykjavikurdvölin hafi reynst sér notadrjúg, þegar hún sjálf stofnaði bú. Arið 1910 missti Kristin föður sinn, en þær mæðgur dvöldust áfram i Reykjavik, en vorið 1912 urðu hjá henni þáttaskil. Þá réðsthún kaupakona norður að Hnausum i Austur-Húnavatnssýslu. Það vor höfðu frændur tveir keypt þetta fornfræga höfuöból, Jakob Guðmundsson frá Holti i Svinadal, bróðir Magnúsar Guðmunds- sonar ráðherra, og Sveinbjörn Jakobsson frá Sólheimum i sömu sveit. Sveinbjörn var Möðruveliingur, hafði fengist við kennslu og síðar stundað um nokkurt 16 skeið skrifstofustörf hjá Sláturfélagi Suðurlands. Nú stóð hugur hans til bú- skapar. Hnausar eru sem kunnugt er með mestu jörðum i Húnavatnssýslu og þvi á- litleg til búsetu. Er ekki að orðlengja það, að kaupavinn- an var framlengd, og vorið 1916 þann 4. júni giftust þau Kristin og Sveinbjörn. Siðan stjórnaði Kristin þar búi meira en hálfa öld með miklum skörungsskap. Mann sinn missti Kristin haustið 1958, og tók þá Leifur sonur hennar við búskapn- um, en móðir hans hafði áfram alla stjórn innanbæjar. Þar til Leifur giftist og hún flutti með Svövu dóttur sinni til Reykja- vikur 1969. 1 mörg horn var að lita á þessu stórbýli, en ofan á það bættist, að Kristin annaðist simavörslu, sem var ekki litið álag ofan á það, sem fyrir var. Hér var um að ræða simaþjónustu fyrir tvær f jölmennar sveit- ir, Þing og Vatnsdal og oft var leitað sima frá fremstu bæjum i Torfalækjarhreppi. Þegar ég fluttist að Þingeyrum 1923, kom margt á daginn, sem ég hafði ekki fyllilega gert mér grein fyrir, og var þar á meðal simaleysið. Heima á Akureyri hékk siminn á þilinu, svo hægt var að gripa til hans hvenær sem var, en i sveit- um varþvi öðruvisi farið. Frá Þingeyrum þurfti til dæmis að fara 6 km leið og hefur vist ekki þótt mikið miðað við aðra og þó aðeins á vissum timum dags. Eftir að ég hafði dvalist um tima á Þingeyrum tók mig að lengja eftir fréttum að heiman frá Akureyri. Ég kveið fyrir þessum sima- leiðangri, öllum ókunnug og vissi naum- ast hvernig ætti að bera upp erindið. En Jón, maðurinn minn, sagði, að ekki væri mikið að óttast i Hnausum, slikt fólk byggi þar, sem yrði ekki lengi að greiða úr hverjum vanda. Ég lagði af stað á Funa minum og ferðin gekk að óskum. W" hitti ég Kristinu i fyrsta skipti, fallega og glaðlega. Hún var fljót að ná sambandi við mömmu og svo beið kaffið frammi i stofu. Ekki spillti Sveinbjörn þessarix fyrstu heimsókn minni i Hnausum sem verður mér ávallt minnisstæð, hvort- tveggja var að heyra i mönim. ^ \ . ið eignast slika vinkonu i sveitinni, þar sem ég var öllum ókunnug og fávis um hætti manna. Mörg ár liðu, þar til simi kom að Þing- eyrum, og margar urðu ferðirnar að Hnausum á þeim árum til að komast i sima, og aldrei brugðust viðtökurnar. Það var raunar mikil tilbreyting að koma að Hnausum, þar var iðulega fjölmenni úr þessum simalausu sveitum, og þarna varö oft góðra vina fundur, þvi að anna- samt var og biðin gat orðið nokkuð löng. Og svo var veitt kaffi eins og maður væri kominn á Hótel Island, en ekki veit ég til að reikningum hafi verið framvisað. Ef biðin tók að lengjast verulega skauzt ég stundum inni baðstofu til gömlu konunn- ar, móður Kristinar og spjallaði við hana, þvi aö ég hef alltaf haft dálæti á gömlu fólki og hún var engin undantekning. Þegar ég hugsa til þess, hvilíkur ágang- ur fylgdi simaþjónustunni i Hnausum og hversu frábærlega hún var af hendi leyst, þykir mér það undarlegt, að slminn, þetta mikla fyrirtæki, skuli ekki hafa veitt þeim hjónum einhverja viðurkenningu fyrir sitt ^ óeigingjarna starf. Simaafgreiðslan fór fram i litlum gangi, sem gekk inn úr bæjargöngunum. Skiptiborð og simi voru á baðstofuþílinu og á kistu þar fyrir fram- an sat sá, er simans gætti. Viðskipta- ménnirnir voru inni um allt. Þetta þætti vist ekki góður aðbúnaður i dag. Mér er Kristin minnisstæð fyrir margt annað en viðtökurnar i Hanusum. Hún var meðal stofnenda Kvenfélags Sveinsstaðahrepps og var formaður félagsins um langt ára- bil. Tók hún við formennsku af Steinunni Jósefsdóttur á Hnjúki, þegar hún fluttist til Reykjavikur, en Steinunn var fyrsti formaður félagsins. Þótt kvenfélagið okk- ar væri hvorki fjölmennt né auðugt, vann það gott starf. Konurnar i sveitinni kynnt- ust, deildu saman geði og urðu betri vinir en orðið hefði, ef hver hefði húkt i slnu horni. Félagið reið á vaðið með að halda jólaskemmtanir bæði fyrir börn og gamla fólkið i sveitinni. Þá stóð það fyrir öðrum skemmtisamkomum innan sveitar. 1 fábreyttu sveitalifi þótti það ekki litil tilbreyting, þegar kvenfélagskonur tóku að sýna leikrit og sömdu þau jafnvel sjálf- ar. Þá æfðu þær söng. Alltaf verður mér minnisstætt eitt leikritið, heimatilbúið, Kvöldvaka i sveit. Þaö var sýnt við mik- inn fögnuð áhorfenda. Þegar tjaldið var dregið frá, sást baðstofa, þar sem fólkið Framhald á bls. 15 islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.