Íslendingaþættir Tímans - 16.02.1983, Blaðsíða 1

Íslendingaþættir Tímans - 16.02.1983, Blaðsíða 1
ÍSLENDINGAÞATTIR Miðvikudagur 16. febrúar 1983 — 6. tbl. TÍMANS Jóhanna Ogmundsdóttir frá Olafsvík Fædd 3.júlí 1919 Dáin 1. janúar 1983 Fyrir skömmu fór fram frá Hallgrímskirkju útför Jóhönnu Ögmundsdóttur. Jóhanna Ög- mundsdóttir cða Hanna eins og hún var kölluð lést þann 1. janúar. Andlát hennar kom okkur nokkuð á óvart þó að við vissum að hún hafði átt við veikindi að stríða. Maður á líka dálítið bágt með að átta sig á því að þessi lífsglaða kona, sem létti okkur svo oft í skapi með sínu glaða viðmóti, sé allt í cinu horfin okkur. I’að var svo stutt síðan við sáum hana glaða og hressa að því er okkur virtist. En er þetta ekki gangur lífsins. Við skulum þakka fyrir þær björtu og góðu minningar sem hún skilur eftir í hugum svo margra. Hanna var ættuð af Snæfellsnesi. Foreldrar hennar voru HermaníaJónsdóttir frá Hrísum í Fróðárhreppi og Ögmundur Jóhannesson sjómað- ur í Ólafsvík. Hanna missti móður sína er hún var tveggja ára og var þá komið í fóstur. Lengst var hún í Látravík í Eyrarsveit hjá þeim mætu hjónum Kristbjörgu Helgadóttur og Sigurði Jónssyni. Árið 1929 flyzt Hanna svo til Ólafsvíkur til föður síns, sem þá var kvæntur seinni konu sinni, Þórdísi Ágústsdóttur. Hanna átti fimm hálfsystkini og einn albróður. Um 17 ára aldur missir Hanna svo föður sinn svo það má segja að bernsku og æskuár hennar hafi ekki verið reynslulítil. 6. september 1941 giftist Hannna cftirlifandi eiginmannai sínum, Runólfi Kristjánssyni frá Ólafsvík, hinum mætasta manni. Fau eignuöust fjögur börn og eru þau þessi: Ögmundur, kvæntur Þóreyju Þorkelsdóttur og eiga þau tvö börn. Kristján. kvæntur Kristínu Pétursdóttur og eiga þau tvö börn. Hörður. kvæntur Mundu Jóhanns- dóttur og eiga þau fjögur börn. Sigurður, kvæntur Guðrúnu Gísladóttur og eiga þau tvö börn. Barnabörnin eru því orðin tíu, svo að það er ekki orðinn svo lítill afkomendahópur. Að endingu vil ég flytja kveðju frá mér og fjölskyldu minni fyrir allt gott á liðnum árum. Ég votta eiginmanni, börnum og barnabörnum mína dýpstu samúð. Jóakim Pálsson + Fimmtudaginn 13. janúar 1983. var jarðsungin frá Hallgrímskirkju Jóhanna Ögmundsdóttir. sem var fædd í Ólafsvík 3. júlí 1919, dóttir hjónanna Hermaníu Jónsdóttur og Ögmundar Jóhannes- sonar. Þau hjón áttu tvö börn Jóhönnu og Brand. Hermanía dó 1921 þegar Hanna var aðeins tveggja ára. Þá var hún tekin í fóstur að Vík í Eyrarsveit. Þar var hún til 11 ára aldurs eða þar til faðir hennar giftist Þórdísi Ágústsdóttur. Með henni átti hann fimm börn: Jóhannes Hermann, Eirík Leif, Hólmkel Sigurð. BergmundogÖglu. Hanna átti góðar og bjartar minningar um veru sína í Vík og talaði oft um hvað gott fólkið þar hafi verið við sig. En hún var líka ánægð yfir því að fá að vera hjá pabba sínum, sem henni þótti mjög vænt um, og rifjaði oft upp minningar um hann. Hún vildi að við systurnar vissum hve góður maður hann afi okkar var, en hann dó 1937. Árið 1941 giftist Hanna eftirlifandi manni sínum, Runólfi Kristjánssyni. Foreldrar hans voru Lára Eiíasdóttir og Kristján S. Jónsson. Hanna og Runni eignuðust fjóra syni, þeir eru: Ögmundur Hermann, sem giftur er Þóreyju Þorkelsdóttur, Kristján Lárus, sem giftur er Kristínu Pétursdóttur, Hörður, sem giftur er Mundu Jóhannesdóttur. og Sigurður Kristján, sem giftur er Guðrúnu Gísladóttur. Barnabörnin eru 10 og var Hönnu mjög annt um þau. Hjónaband Hönnu og Runna hefur verið mjög gott og þau verið sérstaklega samhent og hamingjusöm. Samband föður okkar, Bergmundar Ögmunds- sonar og Hönnu hefur alltaf verið mjög gott og mikill samgangur á milli hcimilanna. Þess vegna höfum við systurnar fengið að njóta þessarar bestu frænku okkar, frá fæðingu. Við vorum oft hjá hcnni þegar hún bjó í Ólafsvík og þeirra daga er gott að minnast. Hún gaf sér góðan tínia til að kenna okkur mörg spil og kapla, en hún hafði mikla ánægju af að spila, aðallega vist. Einnig kenndi hún annarri okkar, sem þá var aðeins 6 ára aö prjóna. Hanna og Runni fluttu til Reykjavíkur 1970, en þrátt fyrir það rofnaði ekki sambandið milli heimilanna. Þau komu oft hingað vestur og héldu þá til hjá foreldrum okkar. Þau komu á hverju sumri til að fara til berja og voru dugleg viö aö tína ber og búa til berjasaft og sultu handa fjölskyldu sinni. Þau komu alltaf vestur til að gleðjast með okkur á merkisdögum s.s. við fermingar, brúðkaup og afmæli og finnst okkur nú, þegar við hugsum til baka, að þau séu tengd öllum gleðistundum okkar. Það var svo gott að hafa þau í návist sinni, því þau voru alltaf svo glöð og skemmtileg. Við munum lengi muna hve innilega Hanna gat hlegið og komið fólki í gott skap. Eftir að við fórum suður í framhaldsskóla, þá var Hanna alltaf að hugsa um velferð okkar. Hún hringdi til að vita hvernig okkur liði og hvort okkur vantaði eitthvað. Þau hjónin komu oft við hjá okkur og þá var verið að skjóta inn einhverju góðgæti s.s. kleinuboxi eða hveitikökum. Nú síðast fyrir jólin komu þau með jólasmákökur til að lofa okkur smakka. En svona var Hanna alltaf að gleðja og svo var hún svo elskuleg í viðmóti. Það þurfti ekkert tilefni til að fara til Hönnu og Runna. Jafnan var einsog beðið væri eftirgestum, því það voru alltaf til heimabakaðar kökur. Og mörg matarboðin höfum við og fjölskylda okkar þegið hjá þeim. Hanna vann talsvert við hannyrðir, hún prjónaði hcklaði og saumaði út. Hún starfaði af alhug í kvenfélagi Hallgrímskirkju og gaf fallega og vel gerða muni á basar félagsins. Þau hjónin voru dugleg að ferðast og mikið fyrir að vera á meðal fólks, enda er vinahópur þeirra stór. Við vissum að Hanna var oft lasin, en við bjuggumst ekki við að hún mundi kveðja svona fljótt, því kom fréttin um lát hennar sárt við okkur. Elsku Runni, missir þinn er mikill og þú saknar Hönnu þinnar mikið, en við vitum öll að hún trúði

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.