Íslendingaþættir Tímans - 16.02.1983, Blaðsíða 9

Íslendingaþættir Tímans - 16.02.1983, Blaðsíða 9
Valdimar Jónsson veggfóðrarameistari Fæddur 13. maí 1921 Dáinn 5. janúar 1983 Foreldrar Valdimars bjuggu að Fossi í Hrúta- firði og hétu Sigríður Björnsdóttir og Jón Marteinsson. Þau hjónin líkt og flestir af þeirra kynslóð börðust við óblíð kjör sinnar samtíðar, við kreppu, sjúkdóma og óvæginn aldaranda. Með afburða dugnaði og þrautseigju stóðu þau samt meðan stætt var. Þeim varð 11 barna auðið 3 dóu í æsku, sonurinn Pétur lést í blóma lífsins árið 1953 og nú hefur Valdimar kvatt okkur. Valdimar var áttunda barn foreldra sinna og hin óblíðu kjor sem ég hef getið um urðu til þess að hann var látinn í fóstur að Hrútatungu í sömu sveit til þeirra Guðrúnar Jónsdóttur og Tómasar Þorsteinssonar sem þar bjuggu ásamt börnum sínum. Hann var mikið yngri en börn hjónanna og má með sanni segja að hann hafi orðið eftirlætið á bænum. Af þessu gamla Hrútatungu- fólki lifir aðeins ein, Ólöf Tómasdóttir, sem háöldruð dvelur á elliheimilinu á Hvammstanga. Umhyggja hennar og tryggð við Valdimar hélst á meðan nokkrir kraftar leifðu. Þrátt fyrir það góða atlæti sem Valdimar hafði í fóstrinu var langt frá því að böndin slitnuðu við foreldrahúsin enda stutt bæjarleið fyrir léttstíga fætur til fundar við föður, móður og systkini. Þar af leiðandi átti hann með þeim sameiginlegar minningar sem oft voru rifjaðar upp á góðum stundum, minningar um snjóhús og silungsveiðar, minningar um æsku og sólskin. Árin liðu. Árið 1942 hélt Valdimar til Reykja- víkur líkt og svo margir ungir menn, þar sem sveitir lands voru flestar I sárum vegna sauðfjár- sjúkdóma og því ekki margra kosta völ. Um þetta Márus Guðmundsson neinum neitt, gat séð fyrir sér og sínum á sómasamlegan hátt, og er það ekki einmitt það ntesta lán sem hverjum og einum hlotnast. - Það kann að vera hjáleit huggun syrgjendum að hafa yfir þær ljóðlínur úr sálminum alkunna, sem er upphaf þessa greinastúfs, - og þó - „Gleðinnar hátíð vér höldum í dag, Hér þótt sé dapurlegt víða“ - Höggið, sem sláttumaðurinn mikli slær er vissulega þungt fyrst í stað og sárindin mikil, mest hjá þeim nánustu, eftirlifandi eiginkonu og börnum. Græðandi verður þó ætíð að hugsa til þess, að góður maður er kvaddur, maður, sem ekki mátti vamm sitt vita í neinu, maður, sem gerði meiri kröfur til sjálfs sín en annarra. Slíks manns er gott að minnast. Og vita má Hjörtína það, að hún mun ætíð verða umvafin ástúð, hlýju og virðingu sinna nanustu meðan hún bíður endurfundanna. Bjarni Gíslason. ‘Jlendingaþætiir leyti var svo komið að foreldrar hans og systkini höfðu fluttst til borgarinnar í leit að bctri tækifærum. Þá var það að fjölskyldan sameinaðist aftur hér sunnan heiðar og myndaði heimili fyrst að Hverfisgötu 88. Þarna var oft margt um manninn. Fólkið vinsælt og vinmargt, þar að auki búsett I þjóðbraut. Glatt var á hjalla sem vonlegt var, lífið svo aö segja allt framundan, hægara að hlynna að heilsulítilli móður og atvinnumöguleik- ar dágóðir. Fyrst stundaði Valdimar almenna vinnu eftir því scm til féll, cn hóf síðan nám hjá Hallgrími Finnssyni veggfóðrarameistara og þá iðn stundaði hann til æviloka. Hann var vandvirk- ur iðnaðarmaður. langhentur og útsjónarsamur - bar virðingu fyrir verkum sínum. Valdimar giftist Ebbu Þorgeirsdóttur, dugmik- Gunnsteinn Gíslason Framhald af bls. 16. vakti almenna athygli. Kom þar margt til. En ég hefi sagt það áður og endurtek það hér, að sú hjálp og fyrirgreiðsla sem Gunnsteinn veitti okkur þá átti ekki minnstan þátt í hvað vel tókst til. Hann tók á sig og kaupfélagið alla fyrirgreiðslu um efniskaup og launagreiðslur vegna manna- ráðningar. Það var svo vel leyst af hendi að aldrei varð töf að eða vandræði með greiðslur. Það var stórra þakka vert. Á afmælisdaginn var fjölmennt heima hjá Gunnsteini. Þar var gestum hans búin vegleg veisla. húsráðendum til sóma. Þar voru honum illi konu ættaðri vestan af Breiðafirði og var heimili þeirra alltaf í Reykjavík. Þau eignuöust 9 börn sem eru þessi: Marteinn sveitastjóri í Búðardal, giftur Maríu Eyþórsdóttur húsmóður, þau eiga 3 dætur. Hugrún tannsr.iiður Kvíarhóli Ölvusi, gift Gunnari Baldurssyni kennara, þau eiga 3 dætur. Sigríður iðjuþjálfari Osló, gift Róar Wik skipamiðlara, þau ciga 2 drcngi, Þorgeir veggfóðrari Reykjavík giftur Sigurbjörgu Norð- fjörð húsmóður, þau eiga 2 dætur. Björgvin veggfóðrari Reykjavíks, giftur Elínu Ásgríms- dóttur fóstru, þau eiga einn son. Anna hjúkrunar- kona Ólafsvík gift Guðmundi Svavarssyni sjó- manni, þau eiga einn son. Jón vélstjóri Suðureyri við Súgandafjörð giftur Ragnheiði Guðmunds- dóttur bankastarfsmanni. Yngstu börnin Hafdís og Börkur eru ennþá við nám. Þctta er stór og fallegur hópur sem liefur tileinkað sér kosti foreldra sinna. kjark og dugnað, blíðlyndi og þægilegt viðmót. Eftir að þau Ebba slitu samvistum bjó Valdimar fyrst cinn en hóf síðan sambýli rheð Önnu Laxdal að Hólmgarði 3 hér í borg. Anna hafði misst mann sinn og komið upp börnum sínum. Þetta er vcl gerð og greind kona scm nú á við þung veikindi að stríða. Innan veggja sjúkrahúss fékk hún þessi sviplegu tíðindi, tíðindi sem allir eiga von á en cnginn er viðbúinn að fá. Ég vil scnda Önnu innilegar samúðarkveðjur og ósk um góðan bata. Ég las eitt sinn greinarkorn eftir Halldór Laxness þar sem hann lét þá skoðun í Ijós að eftirmæli væri frekar bautasteinn þess sem skrifar en þess sem skrifað er um. Það væri afstaða þess sem skrifar er kæmi skírast í Ijós. - Þá það - Ekki minnkar minn vegur þó afstaða mín til Valdimars mágs rníns komi í Ijós. Ég man mest og best þetta þægilega viðmót. Ég man glæsilega klæddan mann á hátíðastundum, skcmmtilegan ferðafélaga og ákafan veiðimann. Ég man umhyggjusaman tengdabróður. Ég scndi börnum Valdimars, tengdabörnum, barnabörnumog sysikinunt mínar bestu samúðarkveðjur. llanna Haraldsdóttir. færðar þakkir sveitunganna fyrir mikið og heilla- drjúgt starf fyrir sameiginlega hagsmuni byggðar- lagsins, sem hvílt hefur á herðum hans á þriðja áratug, og árnaðaróskir. Um leið og ég þakka Gunnsteini vini mínum fyrir persónulega vináttu og samstarf á liðnum árum óska ég honum og fjölskyldu hans allra heilla og blessunar. Ég lifi í þeirri von að honum auðnist að bæta enn drjúgum við það starf, sem hann hefur varið bestu árum ævinnar til framgangs. Lifðu heill í gæfu og gengi utn ókomin ár, góði vinur og frændi. Guðmundur P. valgeirsson. 9

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.