Íslendingaþættir Tímans - 16.02.1983, Qupperneq 12
Hellismannaþáttur —
og óðal
i
Fjölfarin þjóðleið til Skálholts og Þingvalla lá
í 8-9 aldir fram hjá Steinkrossi á Rangárvöllum.
Sá bær stóð á gamalgróinni hraunbrún, um það
bil sjö kílómetrum ofar en Gunnarsholt. Þaðan
var miðlungs bæjarleið í næsta vatnsból. Kunnugt
er um þréttán bændur, sem bjuggu á Steinkrossi
eftir 1700. Þaulsætnastur var Bjarni Hannesson
faðir Hannesar afa föður míns. Hann þraukaði
þar í 51 ár, þrátt fyrir Móðuharðindi og
„Langajökul", sem surfu fast að mörgum bónda
á búskaparárum hans. Síðastur bjó þar 15 vetur,
Valtýr Sigurðsson bóndi í Kotmúla, Valtýssonar
í Gfslakoti, Brandssonar í Drangshlíð, Einarsson-
ar. Þá fór Steinkross endanlega í eyði, „harða
vorið 1882“. Þar kæfði þá allt í sand.
II
Valtýr Sigurðsson flúði fram í Holt. Bjó næst
6 ár í Vctleifsholti. síðan eitt ár suður á
Vatnsleysuströnd og annað í Vetleifsholtshelli.
Vorið 1890 flutti hann að Árbæjarhelli, keypti þá
jörð og bjó þar síðan 24 vetur. Þar dó hann 78
ára gamall vorið 1921. Sagður öðlingsmaður.
Hann átti Guðrúnu (1833-1915) Eiríksdóttur í
Tungu á Rangárvöllum, Jónssonar á Rauðnefs-
stöðum, Þorgilssonar bónda í Koti, Þorgilssonar
á Efra-Hvoli, Jónssonar á Skeiði, Þorgilssonar.
Þau Hellishjón áttu eina dóttur barna: Eyrúnu
(1870-1938). Hún giftist Gísla (1864-1918) Gísla-
syni bónda í Helli og víðar, Þórðarsonar að
Miðkoti í Þykkvabæ, Jónssonar í Neðra-Dal,
Auðunssonar. Eyrún og Gísli fóru að búa 1892 -
bjuggu allan sinn búskap í Árbæjarhelli - og þóttu
sómamenn. Þau eignuðust fimm börn, sem
komust upp og til aldurs.
Elsta systirin giftist ung og flutti til bónda síns.
Hin systkinin voru kyrr heima í Helli. Bjuggu fyrst
20 ár með móður sinni - síðan fjögur saman
meðan öll lifðu. Tvö þau yngstu búa enn í Helli:
Guðbjörg sjötug og Guðmundur einum vetri vant
í áttrætt. Þar líður að búskaparlokum, hver sem
þá tekur við. Þrjú elstu systkinin eru gengin til
grafar. Þeirra skal hér minnst í stuttu máli.
III
Guðrún Gísladóttir húsmóðir í Króki fædd 13/12
1889, dáin 6/9 1935, giftist ung Guðmundi syni
Ólafs bónda og síðasta ferjumanns í Króki,
Gunnlaugssonar bónda þar, Bárðarsonar, einnig
bónda þar, Gunnlaugssonar að Jórvík í Flóa,
Pálssonar bónda í Gljákoti, Þórarinssonar. Ólafur
Gunnlaugsson heiðurskarl og óvenju markaglögg-
ur maður, bjó í Króki til æfiloka 1935 - og hafði
12
þeirra
■ Guðrún Gísladóttir.
þá setið 52 ár að búi. Guðrún og Guömundur í
Króki höfðu þá verið um 20 ár, í húsmennsku þar
og sambúð við gamla manninn - og hennar lífi þá
ltka næstum lokið. Guðrún Gísladóttir mun hafa
verið vel gerð kona, hógvær. nægjusöm og
þolinmóð. Hún ól á seytján árum fjórtán börn -
og annaðist þau af öllum kröftum meðan æfin
entist. Mátti segja að það færi vel úr hendi, þrátt
fyrir fátækt og óþægindi í þröngum, gömlum og
köldum bæjarhúsum. Börn hennarvoru heilbrigð
og hraustbyggð - döfnuðu vel og urðu dugnaðar-
fólk. Hún dó frá tíu af þeim óstaðfestum, á
aldrinum frá 3ja til 14 ára. Þá tóku elstu dætur
hennar við uppfóstri yngri systkina sinna, uns öll
voru komin upp.
Krókur var mögur bújörð í þann tíma. og
fjarri því að vera til tvískiftanna. Þau Guðmundur
höfðu fyrstu árin töðu fyrir aðeins eina kú - en
sóttu síðan kúahey handa annarri, langar leiðir -
ýmist niður í Safamýri eða útá Skeið. Guðmundur
vildi komast á betri jörð. En hreppsnefndin bað
hann, að skilja eigi svo við gamlan föður sinn -
sem treysti sér þá ekki til að sitja jörðina einn -
þótt búa vildi. Fyrir þá sök sat Guðmundur kyrr
í Króki. Það var engin furða, þótt hann á
krepputíð þryti fé til að ala alla önn fyrir fjórtán
börnum. í þá tíð var hvergi líknar að leita, nema
hjá sveitarsjóði. Og það gerði Gvendur í Króki
hiklaust, í nauðsyn barna sinna. Hann sótti
þangað á seytján árum tæplega sjö þúsund
krónur. Mér finnst það með ólíkindum lítið! Það
var ekki keyptur óþarfi í Króki. Þessir peningar
fóru allir fyrir staðgóðan mat.
Guðrún og Guðmundur í Króki áttu þessi börn:
1. Guðrún Lovísa f. 1915, gift Magnúsi Kr.
Magnússyni verkamanni í Reykjavík.
2. Guðrún Viktoría f. 1916 - gift Jóhannesi
Albert Kristjánssyni frá Súðavík, verka-
manni í Reykjavík.
3. Guðbjartur f. 1918 - bílstjóri í Reykjavík
kvæntur Önnu Sveinsdóttur frá Viðfirði.
4. Ólafur f. 1920, verkamaður í Reykjavík
kvæntur Jóhönnu Kristjánsdóttur ættaðri úr
Skagafirði.
5. Eyrún f. 1921, gift Þórði Gestssyni bónda á
Kálfhóli á Skeiðum.
6. Hermann f. 1922, bóndi í Forsæti í Út-Land-
eyjum kvæntur Guðfinnu Helgadóttur frá
Forsæti.
7. Kristín f. 1923, gift Einari Inga Hjálmtýssyni
verkamanni í Reykjavík.
8. Dabjört f. 1924, gift Jóhannesi Bjarnasyni
frá Stokkseyri verkamanni í Reykjavík.
9. Sigurbjörg f. 1926, gift Ásgeiri Magnússyni
pípulagningamanni í Reykjavík.
10. Ingólfur f. 1927, bóndi í Króki í Holtum.
Fimmti bóndi þar í beinan karllegg á 174
árum. Kona hans heitir Lára af finnskri ætt.
11. Valtýr f. 1928, bflstjóri í Reykjavík. Kvæntur
Sigmundu Hákonardóttur úr Reykjavík.
12. Ragnheiður f. 1929. Var gift Sigurði Frímanns
syni frá Oddhól á Rangárvöllum. bílstjóra i
Reykjavík.
13. Gísli f. 1930 d. 1980, bílstjóri í Reykjavík.
Kvæntur Dagbjörtu Snæbjörnsdóttur.
14. Sigrún f. 1932. Gift Ólafi Benediktssyni úr
Eyjafirði.
Það fór líkt um Krókssystkin og þorra
Rangæinga af þeirri kynslóð: Ellefu þeirra
höfnuðu í Reykjavík. Og þangað fór einnig faðir
þeirra, eftir nærri 40 ára búskap. Hann er þar hjá
Ólafi syni sínum, ern og hress á 94. aldursári.
Niðjar Guðrúnar Gísladóttur eru orðnir margir:
14 börn, 41 barnabarn og 50 barnabarnabörn.
Samtals 105 - og allir á lífi nema einn sonur
hennar sem dó fimmtugur. Þrettán af börnum
hennar eiga niðja. Þetta er að verða fjölmenn ætt,
sem verður þó líklega hvorki kennd við Krók né
Árbæjarhelli. Nú gleypir Reykjavík allar ættir og
hrærir þeim saman af handahófi í eina litlausa
allsherjar ættarblöndu.
IV.
Valdís Gísladóttir bústýra í Árbæjarhelli -
Fædd 23/6 1896. Dó 30/5 1979. Valdís átti alla
æfi heima í Árbæjarhelli. Var heimasæta fram um
fertugt, en síðan bústýra önnur fjörutíu ár. Miðað
við Guðrúnu systur hennar, sýndist hún eiga hæga
æfi, erfiðleika- og áhyggjulitla, en þó eigi nærri
raunalausa. Eigi veit ég hvort hún hafði nokkurn
hug á að eignast bónda og með honum bú og börn.
islendingaþættir