Heimilistíminn - 25.09.1975, Side 3

Heimilistíminn - 25.09.1975, Side 3
Kæri lvitur! Mig langar til að tá svör við eftir- farandi spurningum: 1. Hvað heitir konan hans Kris Kritoffersson? 2. Hvernig eiga strákur og stelpa i fiskamerkinu saman? 3. Hver er happatala og happalitur þeirra, sem eru i fiskamerkinu? 4. Hvcrnig er skriftin og hvað lestu úr henni? Mýsla. Svar: 1. Hún heitir Rita Coolidge eða Coolich, 'ég hef séð hvorutveggja á prenti. 2. Þau eiga alls ekki saman og það er vissara fyrir hana að gæta sin. 3. Happaliturinn er fjólublár, en happatöluna finn ég hvergi þessa stundina. 4. Skriftin er skýr og góð, úr henni les ég ákveðni og kjark, heiðarleika og nákvæmni. Alvitur Kæri Alvitur! 6g er hérna með nokkrar spurningar: 1- Hvaða stjörnumerki á bezt við vatnsberastelpu? 2. ffvcr er happalitur og happatala hennar? 3. Hvernig ciga öll stjörnumerkin við hana. 4. Er liægt að taka stúdentspróf með þvi að vera hálfgagnfræðingur og þá hvar? 5. Hvað heldur þú að ég sé gömul og hvernig er skriftin. Ein úti á landi. svar: 1. Liónið eða vogin. 2. Happa- liturinn er dökkblár, en ég er hættur að birta happatölur af gildum ástæðum, sem ég skýrði i siðasta blaði. 3. Hrútur og vatnsberastelpa laðast gjarnan að hvort öðru, en sambandið verður aldrei dans á rósum, heldur eilif barátta. Af þvi nautið er svo ólikt henni, verða þau annað hvort ákaflega hamingjusöm eða óhamingjusöm saman, svo það er happdrætti. Hún gérir lifið spennandi hjá tviburastrák, en bæði eru þrasgjörn, svo ekki er hætta á að þeim léiðist saman. Hún æsir krabbastrák allt of mikið og þvi er hætta á að þau fari fljótt i taugarnar hvort á öðru. Skin og skúrir skiptast á i sambandi við ljónsstrák. En þar sem hvorugt kann vel við eilift jafnviðri, hentar þetta báðum vel. Meyjar- strákur og vatnsberastelpa eru bæði metnaðargjörn, en endast illa saman, þar sem hann er of litið rómantiskur. Yogarstrákur vill njóta allra þæginda lifsins og ekkert getur breytt þvi. Ef hún gerir sér grein fyrir þvi, mun ástin blómstra. Með sporðdrekastrák gengur mikið á en fyrir kemur að allt er rólegt og þá of rólegt. Bogmaður á engan veginn við vatnsberastelpu. Steingeitarstrákur hefur margt til að bera,sem vekur aðdáun hennar og hún hefur kætina, sem hann vantar, en þeim hættir til að rifast svo neistarnir fljúga. Samband við við vatnsbera- strák er undir viljastyrk hennar komið. Hann er erfiður viðureignar. Fiskastrákur er ekkert fyrir hana. Hún skyggir á hann að flestu leyti og það veldur báðum leiðindum. 4. Ég veit ekki almennilega hvað hálf- gagnfræðingur er, en ef það er yfirleitt ekki nóg til stúdentsprófs, veit ég ekki um annað en áframhaldandi gagn- fræðaskólanám eða öldungadeild menntaskóla. Ég get imyndað mér að þú sért um tvitugt og skriftin er einkar falleg og persónuleg. Alvitur. Kæri Alvitur. Mig langar að spyrja þig nokkurra spurninga: Hvar get ég fengið mynd af Baldri Brjánssyni? Hvað er hann gamall? Hvar á hann heima? Er hann kvæntur? Hvað lestu úr skriftinni, Ai- vitur minn og hvað heldurðu, að ég sé gömul. VEG. svar: Baldur er 26 eða 27 ára, kvæntur og á tvær dætur og á heima i Reykja- vik. Annars geturðu fengið að vita miklu meira um hann i Vikunni, blaði sem kom út siðast i ágúst eða byrjun september. Or skriftinni les ég kæru- leysi hvað varðar daglega lifið, en hins vegar áhuga á þvi ókunna. Þú ert svona 13 ára. Alvitur. —— ......... Meðal efnis í þessu blaði: Leonardoda Vinci..................... Bls. 4 Bjó uppi í tré í 31 ár................ — 8 /-Túpulinan" er það nýjasta........... — 10 Pop—George og Gwen McCrae............. — 12 Einkastjörnuspáin .................... — 13 Týnda prinsessan, barnasaga........... — 17 Hvaðveiztu?.......................... — 19 Börninteikna....................... — 20 Tommy, smásaga..................... — 22 Spé-speki ............................ — 25 Heklaða blúndu er hægt að nota víóa .... — 26 Sittaf hverju ísvanginn............... — 28 Eru þær eins?..................... • • • • — 30 Föndurhornið, skipalestin.............. — 31 Magnús í hættu (5) .................... — 33 Aðeinseinn kostur (11) ................ — 35 Pennavinir............................. — 38 Ennfremur Alvitur svarar bréfum, krossgáta, skrítlur o.fl. Forsíðumyndina tók Gunnar V. Andrésson í sumar af strákum á Djúpavogi.

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.