Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 25.09.1975, Qupperneq 5

Heimilistíminn - 25.09.1975, Qupperneq 5
Ein af fáum sjálfsmyndum, sem til eru af Leonardo og sýnir hann sem virOulegan, roskinn vitring. vatni milli skinns og hörunds á fólki, og þetta fór hann meö inn i herbergi sitt. í hálfmyrkri og fýlunni af dýrunum skapaði Leonardo meistaraverk, skelfi- lega ófreskju, sem spýtti eitri og galli, meöan eldur og reykur vall út úr kletta- sprungu. Þegar faðirinn kom til að sækja skjöldinn, setti Leonardo hann upp við vegginn úti i horni, þar sem ljósrák féll á hann frá glugganum. Faðirinn hrökk til baka, skelfdur af þeirri ógn sem stóð af málverkinu. Þegar hann hafði jafnað sig, ákvað hann að eiga þetta snilldarverk sjálfur og kaupa annan skjöld handa vini si'num. Auk þess ákvað hann að koma syni sinum i læri. A þeim tima var málaralistin ekki talin gagns- laust starf, eins og margir álita nú á tim- um. Það var góð, traust iðn, sem notuð var til að skreyta kirkjur, hallir og góð, borgaraleg heimili. Leonardo var örvhentur og það er dæmi úm frjálslegt uppeldi hans, að enginn, hvorki faðir hans né kennarar reyndu að hreyta þvi. Hann skrifaði ekki aðeins með vinstri hendi, heldur skrifaði hann frá hægri til vinstri — á austurlenzkan máta — og spegilskrift. Allsherjarsnillingur Þegar Leonardo var 15 ára, fór faðir hans með hann til málarans, mynd- höggvaransog gullsmiðsins Verrochiosar i Flórens og bað hann taka drenginn i læri. Verrochi var einn fremsti listamaður þeirra tima og hann var frábær læri- meistari hins verðandi snillings. Hann lét Leonardo mála engilinn til vinstri á hinni frægu mynd sinni Skirn Krists.Þá varð málarinn svo hugfanginn af fegurð engils- ins og snilld nemandans, að hann gerði sér grein fyrir ófullkomleika sinum og sagt er að hann hafi sjálfur hætt að mála eftir það. Leonardo, sem var einn af hæfi- leikamestu ungum mönnum i Flórens, heyrði til kliku borgarinnar af lifsglöðum og vinsælum piparsveinum. Hann var skinandi lútuleikari oghafði fallega söng- rödd. Flórens i þann tið var ein af fjörug- ústu borgum Evrópu, leikvöllur þeirra riku og glöðu og miðstöð listarinnar, verzlunar og visinda. Þetta var frjáls borg og þar var nær hvað sem er leyfilegt. Hópar glaðra ungra manna skemmtu sér, héldu veizlur, fóru úr einni i þá næstu, sungu á götunum, héldu hestaveðhlaup, skiptust á ástkonum og reyndu sitt af hverju. Leonardo var einn þeirra fjörugustu, bezt klæddu og hann bar af sem skylmingamaður, knapi og listamaður. Aðeins var eitt, sem hann hafði engan áhuga á — konur. Alla sina ævi kaus hann fremur að umgangast unga pilta og fram hafa fariö miklar umræður um það öldum saman, hvort hann hafi verið kynvilltur, án þess aö nokkuö hafi veriö sannað eða afsannaö. Þegar hann var 24 ára, varö nafnlaus tilkynning til þess að honum og 4 úngum vinum hans var stefnt fyrir rétt, ákærðum um að haa haft mök við 17 ára kunningja sinn. Málið tók 10 mánuði og Leonardo var haldið i fangelsi á með- an. Fallið var frá ákæru, en auðmýkingin haíði mikil áhrif á Leonardo. Hann fyrir- gaf Flórens þetta aldrei. Leonardo hafði áhuga á öllu, sem hægt er að vita. Hann var ekki aðeins listamað- ur, heldur var á furðulegan hátt saman- komin i honum svo fjölþætt snilld, að aldrei hefur fyrr né sfðar komið fram annar eins persónuleiki. Hann var lista- maður af guðs náð, stærðfræðingur, stjörnufræðingur, arkitekt og verk- fræöingur, hann gerði merkilegar upp- götvanir i li'ffærafræði, grasafræði, Þegar Leonardo málaði engilinn á mynd Verrochiosar af skirn Krists, varö málar- inn svo hugfanginn af fegurð engilsins og snilld nemanda sins, að hann hætti sjáifur að máia upp frá þvi. flatarmálsfræði, landafræði, vatnsorku- fræði og fann upp ýmsa hluti i vopn og til hernaðar. Hann var hljóðfæraleikari, tón- skáld, söngvari, sérfræðingur i að halda finar veizlur og skipuleggja götupartý. Hann fann upp ótal verkfæri, hann dreymdi um að smiða flugvél og kafbát og hann fann upp fallhlifina. Snilligáfa hans virtist ekki hafa önnur takmörk en þau sem timinn og aðstæður settu. Leonardo eyddi æskuárunum og fyrstu fulloröinsárunum i Flórens. Á þessum ár- um fyllti hann þúsundir blaðsiðna með at- hugasemdum um rannsóknir sinar, hugsanir sinar og uppfinningar. A hverju blaði eru margfaldar teikningar og skiss- ur til að koma mynd á hugsanirnar. Mikill hluti þessara blaða er varðveittur i lista- safni Bretadrottningar i Windsorkastala. Segja má, að Leonardo hafi lifað i þremur heimum: Hann hafði náið sam- band við föður sinn, sem var mikils met- innlögfræðingurhjá borgarstjórn Flórens og fulltrúi góðra borgara. Þegar náminu hjá Verrochio lauk, dvaldi hann lengi hjá honum og deildi með honum vinnustofu þar sem jafnaðarlega komu saman mestu snillingarnir og skörpustu heilarnir. Auk þess var Leonardo heimilisvinur hjá æðstu fjölskyldu borgarinnar, Medici- fjölskyldunni. Hún var sterkasta vald þeirra tima og átti sand af fé. Sérfræðingurinn Það var á þessum árum, að hann byrj- aði á einu af stærstu og merkustu lista- verkum sinum, Tilbeiðslu vitringanna. Þrátt fyrir að þvi varð aldrei lokið, er það talið eitt mesta meistaraverk endur- reisnartimabilsins. Nú hangir það hálfút- máö af timans tönn i Ufizzi-safninu i Flórens. 5

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.