Heimilistíminn - 25.09.1975, Blaðsíða 6

Heimilistíminn - 25.09.1975, Blaðsíða 6
Þegar Leonardo var þritugur, fannst honum Flórens hafa veitt honum allt.sem þar var hægt að fá. Hann varð eirðarlaus og leitaði burt. Þegar hann frétti, að höfð- ingi Milano, Lodovico fursti vildi ráða ýmsa listamenn — meðal þeirra hern- aðarlegan verkfræðing, myndhöggvara, listmálara og arkitekt — sótti hann um allar stöðurnar. t hinu fræga umsóknarbréfi, sem ekki má gleyma, að var skrifað fyrir 500 árum, setti hann fram margar stórkostlegar hugmyndir um verkefni þau, sem hann vildi taka að sér að leysa — öldum á und- an sinum tima. Leonardo skrifaði eftir- farandi um „hernaðarleyndarmál” sin: 1) Ég hef áætlanir um brýr, mjög léttar, sterkar og hentugar fyrir flutninga... 2) Þegar setið er um stað, veit ég hvernig á að tæma sikin og smiða haka og önnur tæki til að komast inn. 3) Ég hef uppkast af fallbyssum, þægileg- um og auðveldum til flutnings. Með þeim er hægta að þeyta steinum eins og högl- um. 4) Ef barizt er á sjó, hef ég uppdrætti af mörgum árásar- og varnartækjum, ásamt skipi, sem staðið getur af sér hörð- ustu árásir. 5) Ég get lika framleitt yfirbyggða vagna sem eru öruggir og ómögulegt er að ráð- ast á. Þeir geta þrengt sér gegn um raðir óvina og stórskotaliðseld. Að baki þeirra kemur fótgönguliðið óskaddað og mætir engri mótstöðu... 6) A friðartimum get ég boðið yður jafn góða hluti og nokkur annar á sviði arki- tektUrs. Hvort sem um er að ræða opin- berar eða einkabyggingar og vatnsveitur. Einnig get ég gert styttur i marmara og leir og málað málverk. Starf mitt er á við starf hvers annars, hver sem hann kann að v era. Ekkert af þvi sem Leonardo skrifaði var grobb og hann fékk allar fjórar stöðurnar. Hann olli ekki Lodovico fursta vonbrigðum, þvi Leonardo var einn mesti listamaður i mannkynssögunni. Úr frjó- sömum hugarheimi hans streymdu upp- finningar og vfsindalegar uppgötvanir með slikum hraða, að þess eru engin dæmi fyrr né siðar. Hugmyndir hans voru oft öldum á und- an samtiðinni. Brynvarin skip hans og vagnar voru hins vegar ekki framleidd fyrr en i fyrri heimsstyrjöldinni og draumurinn um aðsmiða flugvél varð að biða alveg þar til Wright-bræður flugu ár- ið 1903. Það var á þessum árum að Leonardo skapaði frægustu málverk sögunnar, Monu Lisu og Siðustu kvöldmáltiðina. Skömmu eftir komuna til Milano bað Lodovico fursti hann að mála kvöldmál- tiðina á endavegginn i matsal munkanna i litla klaustrinu, sem var tengt eftirlætis- kirkjunni hans, Santa Maria della Grazie. Málarinn Til að skapa spennu i málverkið, valdi Leonardo að mála það augnablik, þegar Kristur segir, að einn af postulunum sé svikari. 1 ótta og skelfingu spyr hver og einn þeirra: — Er það ég? Mánuðum saman reikaði Leonardo um götur Milano og teiknaði skissur af mönn- um, sem hann ætlaði að hafa að fyrir- myndum postulanna. Sérstaklega olli JUdas honum erfiðleikum, næstum eins miklum og Kristur, sem hann kaus loks að hafa ekki fullgerðan, heldur þokukenndan. Arangurinn varð málverk, sem ekki að- eins vakti geysilega athygli samtiðarinn- ar, heldur varð takmark ferðalaga frá öll- um heimshornum i margar aldir eftir það. Þvi miður hefur raki, ófriður og skortur á viðhaldi gegn um árin nær þurrkað þetta listaverk Ut. Meðan kvöldmáltiðin var máluð i Milano, var Mona Lisa máluð á þriggja ára timabili, frá 1503-1506, skömmu eftir að Leonardo var snúinn aftur til Flórens. Konan með dularfulia brosið er Madonna Lisa Gherardini, eiginkona þekkts kaup- manns i Flórens Francesco del Giconda. Aftur og aftur sat hún fyrir hjá Leonardo i vinnustofu hans. Hún kallaði saman tón- Dýrmætasta og frægasta málverk heims er málverk Leonardos af Monu Lisu, sem nú er i Louvre-safninu i París. listarmenn til að leika fyrir sig og Leonardo vann að myndinni i þrjú ár. Samt hélt hann þvi fram, að hún hefði aldrei verið búin. Það er brosið sem hefur aflað henni frægðarinnar. Er það bros móður, sem hugsar um barnið, sem hún var að missa? Er þetta tilraun Leonardos til að sjá inn i konusál? Leonardo lét þessa mynd aldrei frá sér. Hann tók hana með sér, þegar hann sem aldraður listamaður þáði boð Frakkakon- ungs árið 1516, um að setjast að i konungs- bænum Amboise við Loirefljótið, suðvest- an við París. Frans I konungur keypti málverkið og bætti þvi i safn sitt á Fontainebleu. Nú hangir það i Louvre og er talið dýrmætasta og frægasta listaverk sögunnar. Manneskjan Hvernig manneskja var svo þessi alls- herjarsnillingur? Sagt er að hann hafi verið einn glæsileg- astimaður sinnar samtiðar. Hann klajdd- ist iburðarmiklum fatnaði, lifði rikmann- lega, var rammur að afli og gat beygt skeifur með berum höndum. Hann var einkennileg blanda af bliðu og grimmd. Hann mótmælti dýradrápi, keypti fugla i búrum til að sleppa þeim og hann var af- skaplega næmur gagnvart umhverfinu. Hins vegar gat hann, til dæmis, þegar hann var að finna upp striðsvélar sínar, sýnt grimmd, sem gefur ekki eftir þvi versta í sögunni. Meðan hann var hernaðarverkfræðingur i þjónustu Borgia-ættarinnar i byrjun 16. aldar, stakk hann upp á að setja „voðalega ljái á hliöar vagnanna og einn enn hræðilegri framan á öxul. Þeir munu fella menn eins og korn á akri....” eða ,,það er hægt að Frh. á bls. 38 Leonardo var einstakur hernaðarfræðingur. Hér eru nokkrir uppdrættir af stríðsvélum hans — vagn með banvænum Ijáum, sem áttu að fella óvini eins og korn á akri — og fyrsti brynvarði vagninn, sem ýtt var áfram af hermönnum, sem gengu innan í lionum. Alla sina ævi dreymdi Leonardo um að smiða flugvél. Hér er skissa hans af þyrlu. 6

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.