Heimilistíminn - 25.09.1975, Page 17

Heimilistíminn - 25.09.1975, Page 17
Týnda prinsessan EINU SINNI var kóngur, sem átti fallega dóttur. Hún hét Engill. Nafnið hæfði henni vel, þvi i rauninni var hún jafn blið og góð og engill. Þegar hún varð fullorðin, komu biðlarnir streymandi til 1 allarinnar. Það voru prinsar frá löndum í norðri og suðri, austri og vestri, hver öðrum auðugri og myndarlegri. En Engill prins- essa gat ekki hugsað sér að giftast neinum þeirra. Henni fannst þeir allir svo merkileg- ir með sig og leiðinlegir. En dag nokkurn kom Leifur prins til hallarinnar og Engli prinsessu gazt þegar i stað mjög vel að honum. Ekki það að hann væri svo afskaplega myndarlegur, eða svo mjög auðugur. En prinsessan, sem var vel greind, gerði sér grein fyrir, að hann var prýðispilt- ur, góður i sér og skemmtileg- ur. Það fannst henni mikil- vægara en peningar og gull. Þess vegna vildi hún fá Leif fyrir mann og engan annan. En kónginum pabba hennar likaði þetta ekki. Hann vildi, að prinsessan veldi sér ein- hvern auðugan prinsanna og vildi ekki heyra á það minnzt að Leifur prins yrði tengda- sonur hans. Það gekk meira að segja svo langt, að hann rak Leif úr landi og hugsaði með sér, að Engill myndi bráðlega gleyma honum og velja einhvern hinna prins- anna. En þannig varð það bara ekki. Engill prinsessa varð ó- sköp óhamingjusöm, vesling- urinn. Hún varð bæði föl og mögur og aldrei heyrðist leng- ur glaðvær hlátur hennar eða söngur i sölum hallarinnar. Hún sat lengst af i herberginu sinu og horfði út um gluggann, eða fór i langar gönguferðir i skógum föður sins. Ennn fagran sumardag var hún á göngu i skóginum, en sá þó ekki öll fallegu blómin eða heyrði glaðværan söng fugl- anna. Hún var alltaf að hugsa um Leif prins og óska þess að hann væri kominn til hennar. Eí ih- langa göngu kom hún að vatni, sem hét Djúpatjörn og settist á tjarnarbakkann til að hvila sig. Þegar kvölda tók, gerðist kóngurinn hræddur af þvi að Engill prinsessa var ekki komin aftur. Hann sendi her- menn sina út að leita. En nótt- in leið — og næsti dagur, en hvergi fannst prinsessan. Þegar liðin var heil vika, gerði kóngurinn það sem allir kóng- ar eru vanir að gera, þegar þeir eru i vandræðum. Hann lofaði bæði prinsessunni og hálfu kóngsrikinu þeim, sem gæti fundið hana aftur. En þrátt íyrir mikla leit, fann enginn Engil og loks var ailri leit hætt. Fréttin um að Engill prins- essa væri týnd, barst loks til landsins, þar sem Leifur prins átti heima. Hann skrifaði þeg- ar kónginum, föður Engils og bað um að fá að koma aftur til landsins til að leita hennar. Kóngurinn sagði strax já og dauðsá eftir þvi að hafa vísað honum úr landi. Leifur kom og lagði þegar af stað út i skóginn og hóf leitina. Dag einn sat hann á steini og hvildi sig, kom stór björn lötrandi. Prinsinn varð svolít- ið hræddur, en bangsi gekk ró- lega tii hans og fór að sleikja hönd hans aftur og aftur. — Þú hlýtur að vera sér- staklega blíður og góður bangsi, hugsaði prinsinn — og þú litur út fyrir að vera álíka einmana og ég. Þeir bangsi vu-ðu verulega góðir vinir og bangsinn elti Leif á öllum ferðum hans um skóginn. Þá var það eitt sinn að þeir komu að Djúputjörn og settust á bakkann, einmitt þar sem Engill hafði eitt sinn setzt. Það var hlýtt og gott i sólskininu og Leifur fékk sér svolitinn blund. En skyndilega hrökk hannupp! Tjörn in, sem verið haíði spegilslétt, tók allt í einu að ólga. Öldurnar stækkuðu og stækkuðu og svo — beint framan við prinsinn — stóð 17

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.