Heimilistíminn - 25.09.1975, Page 34

Heimilistíminn - 25.09.1975, Page 34
Hann stóð upp og tróð síðustu tómu flösk- unum í pokann. Siðan batt hann spotta um og bar pokann út að kerru, sem stóð utan við skúrinn. — Nú legg ég af stað, sagði hann og strauk skeggið. — En þið megið koma i heimsókn seinna, þegar þokan er ekki svona svört. Hann tók kerruna og hélt af stað, en Magnús og Patti stóðu og horfðu á eftir honum. Þá tóku hundarnir að geita aftur og Magnús flýtti sér að draga Patta með sér aftur upp á sléttuna. — Við komumst aldrei út að höfn, ef þú heldur áfram að hlaupa svona i allar áttir, sagði hann strangur. — Nei, svei mér þá, sagði Patti. — Nú flýtum við okkur, þvi klukkan er orðin margt og frændi minn má ekkert vera að þvi að biða eftir mér allan daginn. Skilurðu það? — Já, svei mér þá, sagði Patti. Magnús andvarpaði og hélt áfram i áttina að stórum kolahrúgum, sem glitti i gegnum þokuna. Hann ákvað, að strax og hann kæmi aftur i bæinn, ætlaði hann að fara og heim- sækja skipstjórann. Honum fannst skipstjórinn vera dálítið einmana. Magnús gat lika sagt honum fréttir frá Hænueyju. Þeir flýttu sér framhjá kolahrúgunum og innri hluta hafnaripnar. Siðan héldu þeir áfram meðfram svörtum og sótugum hafnar- bakkanum. Þar voru bara tvö svört og sótug skip, annað frá Póllandi og hitt frá Belgiu. Háir kranarnir stungu gini sinu niður i lestar þeirra og sóttu í það kol. Það skrölti og buldi i, þokan var þétt, sjórinn i höfninni svartur og járn- brautarvagnarnir, sem stóðu i röðum og biðu, voru líka svartir. Þegar Magnús leit i kringum sig, sá hann allt í einu, hvað allt var svart og stórt i þessari þoku. Það eina ljósa var eitthvað hvítt, sem sást lengra burtu milli járn- brautarteinanna, eitthvað sem leit út eins og blað eða ullarreifi. Annars sást beint yfir ána yfir á nesið fyrir handan. Þar mátti sjá stór skip á leið upp eða niður fljótið og svartar og hvitar ferjur á leið til bæjarins eða frá. Sólin var vön að skina yfir litla fiskiþorpið þarna hinum megin, þar sem gamlir sjómenn og konur þeirra áttu heima i rauðum og gráum húsum. En i þetta sinn var ekki hægt að sjá meira en svolitinn hluta af hafnarbakkanum, svörtu bátana, kranana sem hurfu upp í þokuna og kolabingina. Magnús óskaði þess allt i einu að pabbi hans eða mamma hefðu verið með honum. Hann var skelfing einmana og það stoðaði ekkert, þó hann héldi i hönd Patta. 34 Patti var allt of Iítill. Ef það hefði að minnsta kosti verið Matthias, sem var sautján ára og stór og sterkur, i leðurjakka. En nú var Matthias fluttur i annan bæ, sem var marga kílómetra i burtu. Magnús andvarpaði aftur og hélt áfram með Patta út með hafnarbakkanum. Það skrölti allt i kringum þá og Magnúsi féll allur þessi hávaðl illa. Maður gat fengið illt i eyrun af þessu. En Patti gekk hægt og dró á eftir sér fæturna. Þegar þeir nálguðust þetta hvita, sem lá á milli járnbrautarteinanna, sáu þeir að það var ekki blað og heldur ekki ullarreifi. Það var gamalt flekkótt skinn, sem einhver hafði týnt. En þegar þeir komu enn nær, virtist það heldur ekki vera skinn, en eitthvað ennþá annað.V Magnús nam varlega staðar. — Hvað er nú? spurði Patti. — Það er eins og... sagði Magnús. — Það er eins og það liggi eitthvað þarna. Hann sleppti hönd Patta og benti. — Ég held, að það sé bezt fyrir okkur að snúa við, sagði Patti. — Þetta er kannski eitthvað hættulegt. Pabbi segir, að það séu margir hættulegir hlutir við höfnina. — Það ér næstum eins og þetta sé hundur, sagði Magnús. — Og þeir eru næstum alltaf hættulegir. En ef við snúum við, komumst við ekki þangað,sem Frans frændi bíður eftir mér, þvi hann er úti i smábátahöfninni. — Nú veit ég það! hrópaði Patti. — Við göngum bara hinum megin við skemmuna þarna og þá komum við á aðra götu, sem liggur út að smábátahöfninni. Ég veit það, því ég hef oft gert það, þegar ég hef verið hjá ömmu. Magnús kinkaði kolli. Ekki af þvi hann var hræddur við hundinn. Auk þess virtist hann sofa og þá vaknaði hann kannske ekki og þá gerðist ekkert. En ef hann hefði bara Iokað augunum, án þess að sofa, þá yrði hann ef til vill gramur, þegar þeir kæmu, þyti á fætur og færi að gelta. Magnús tók i hönd Patta og þeir lögðu af stað i hina áttina. — Halló, hrópaði maður, sem stóð við bakkann. — Urðuð þið hræddir við hundinn? Magnús og Patti svöruðu ekki. Þeir stóðu og horfðu á manninn, sem að likindum var að vinna við einhvern vagninn. Hann var i bláum vinnufötum og með derhúfu og hélt á rauðu flaggi. — Farið bara, hann er ekki hættulegur, sagði maðurinn. — Hann er búinn að liggja hérna i tvo daga. — En við getum alveg eins farið hinum Framhald

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.