Heimilistíminn - 03.06.1976, Page 11
Röndótta sláið
Efni: 4 hnotur hvíttCombi Crepe garn og
rúmlega X hnota af rauðu og bleiku, en
eins má nota tvo bláa eða tvo brúna liti.
Prjónar nr. 4.
Prjónfesta: 10 m garðaprjón með tvöföldu
garni eru 5 cm á prjóna 4, eða þá stærð
sem þarf til að fá þessa festu.
Rendurnar: 4 prj. hvitt, 2 prj. rautt, 4 prj.
hvitt,2prj. rautt,4 prj. hvitt, 2prj. bleikt,
4 prj. hvltt, 2 prj. bleikt. Þetta er endur-
tekið i öllu sláinu.
Sláið: (prjónuð tvö eins stykki) Fitjiö upp
44 1 með tvöföldu garni og prjónið garða-
prjón (allir prj. sl) og beint áfram, þar til
stykkið er 14 cm. Fellið af í byrjun næsta
prjóns (hálsmál) alls 61. Prjónið siöan 2 1
saman hálsmegin, alls þrisvar á öðrtim
hvorum prjóni. Siðan eru fitjaðar upp 6
nýjar 1 háísmegin, alls 3svar, á öðrum
hvorum prjóni, þar til 44 1 eru á. Prjónið
þá beint áfram, þar til stykkið er 14 cm
frá nýju lykkjunum, fellið af á næsta
prjóni og prjóniö hitt stykkið alveg eins.
Samsetning: Saumið aðra öxlina saman.
Hálsmáiið:Takið upp 100 lkring um háls-
málið með hvitu og prjónið 10 cm snúning
(2sn, 2 sl.) Fellið laust af á næsta prjóni,
saumið hina öxlina og kragann saman.
Setjið kögur i 4. hverja umf. hvern dúsk úr
6þráðum, 25 cm. löngum. Pressið seinast
axlasaumana.
n