Heimilistíminn - 03.06.1976, Qupperneq 30
Steingeitín
21. des — 19. jan.
Þú skalt ekki vanmeta tilfinningar
vissrar manneskju til þln, þær eru
meiri en þú heldur. Þér finnst ein-
hver mega hugsa minna um
sjálfan sig og meira um þig.
Skemmtu þér ekki fyrirfram. Pen-
ingarnir, sem þú væntir, geta kom-
ið núna, en það er óvíst. Ef verk
gengur hægt, vertu þolinmóður,
þetta lagast bráðum.
Hvað ástina varðar, áttu að gefa
jafn mikið og þú þiggur. Einhver
nákominn horfir á allt frá sinum
sjónarhóli, sem er ákaflega tak-
markaður. Þú verður að þola
nokkra sultardaga, en I vikulokin
færðu meiri peninga. Hugsaðu um
núverandi aðstæöur og skipuleggöu
verk þln, þá er framtlðin á traust-
um grunni.
Það er undir þér komiö hvort þú ert
heppinn I ástum. Það dugar ekki að
sitja bara og biða eftir aö eitthvað
gerist. Ættingi eða nágranni getur
þurft á aðstoð að halda og þú skalt
veita hana. Þegar neyðin er stærst,
er hjálpin næst — peningar á leið-
inni. Farðu þinar eigin leiðir og
kærðu þig kolióttan um hvað aðrir
hugsa. Láttu vinnuna bara ekki
tefjast, þá verður árangurinn góð-
ur.
Ef afbrýði verður vart, getur verið
um nýja ást að ræða, eða þá aukna,
gamla. Vinur, sem talar án þess að
hugsa, getur valdið vanda, en
sannleikurinn kemur þó fram.
Eyddu ekki um efni fram I bráðina,
en fjarhagurinn lagast. Þú ert
starfsglaðari en venjulega og getur
hafizt handa um erfið verkefni.
1 stöku tilfellum virðist sem ástin
sé eitthvað blandin. Allt of uppá-
þrengjandi vinur er að gera út af
við þig og það er sama hvað þú
reynir til að forðast hann.
Peningarnir aukast og þér hættir
við óþarfa eyðslusemi. Nú færðu
meiri tima til að hugsa um vinnuna
og það verður tekið eftir þvl.
Flestir I þessu merki róast um
þessar mundir og verða frið-
samari. Þér kemur betúr saman
við kunningja, sem þú hefur þrasað
mikið við. Sennilegt er að pening-
arnir gangi til þurrðar og þú þurfir
að bíða tvo daga eða svo eftir við-
bót. Þú hefur verið á uppleið I vinn-
unni og viss aðili hrósar þér.
Krabbinn
21. jún. — 20. júl.
Allt bendir til sátta og fyrirgefn-
ingar, ef einhver ágreiningur er
uppi. Einhver af beztu vinunum
bætir úr einmanakenndinni og
lagar skapið. Þú færð óvænta pen-
inga, en gleymdu ekki sparnaðar-
áætlununum. Viss vandamál I
vinnunni er ekki hægt að forðast, en
þér tekst vonum framar að leysa
þau núna.