Heimilistíminn - 03.03.1977, Blaðsíða 25

Heimilistíminn - 03.03.1977, Blaðsíða 25
Brúnn hélt hiklaust áfram án þess að pabbi þyrfti nokkuð að stjórna honum. Hann þekkti vel þennan skógarstig, sem menn og dýr höfðu farið eftir i mörg hundruð ár. Hann lá meðfram vatninu, og um birki- og furuskóga. Vandinn var aðeins sá að fylgja stignum vel eftir. Þegar þeir höfðu farið um það bil hálfa leið meðfram vatninu, komu þeir að vegamótum, — að stignum, sem lá upp að Akurseli. Þar stanzaði Brúnn og leit til hliðar, eins og hann væri að spyrja: „Hvert ætlið þið nú að fara i dag?” ,,Við höldum eftir stígnum, meðfram vatn- inu, Brúnn minn,” sagði pabbi og tók laust i taumana. Og Brúnn hélt strax af stað, og innan skamms voru þeir komnir út úr skóginum og niður á vellina, neðan við Akursel. Eftir stutta stund komu þeir til tveggja manna, sem voru að ryðja blett nokkurn, rétt ofan við stíginn. Þetta var hann afi i Akurseli, hann Jón gamli, og sonarsonur hans, Litli-Jón. Pabbi stöðvaði Brún, þegar þeir komu til þeirra, og spjallaði stundarkorn við gamla manninn, en Tóti horfði á Litla-Jón, sem tindi steina úr blettinum og bar þá saman i hrúgu. Stundum tók hann lika litlar steinvöiur og kast- aði þeim i hrúguna á nokkru færi. Og hann var bara býsna hittinn. Tóta langaði til að fara af baki og reyna, hvað hann væri hittinn, en hann var á skóm, sem hann mátti ekki skemma, svo að það var ekki hægt. „ Við erum að fara niður i sveit,” sagði hann. „Þú ert i meira lagi heppinn,” sagði Litli- Jón. Hann hefði miklu heldur kosið að mega fara með þeim niður i sveit en að dunda hér með afa gamla, sem alltaf var svo þöguil og þurradrumbslegur. — Annars var Jón gamli ekki neinn vandræðagripur, siður en svo. Hann var bara dálitið einþykkur, og önugur stund- um. Ogþar sem engin breyting var á þvi hátt- erni hans i þetta sinn, héldu þeir Tóti og pabbi fljótt af stað á ný. „Ég kenni svo i brjósti um Litla-Jón, sem á svona önugan afa,” sagði Tóti, þegar þeir voru komnir drjúgan spöl frá þeim. „Það er nú engin sérstök ástæða til þess, góði minn, ” sagði pabbi. „Gamli maðurinn er ákaf- lega duglegur til allra verka, og svo er hann lika frábær veiðimaður.” Þeir feðgar voru nú komnir að suðurenda vatnsins. Morgunninn var enn svalur, þó að veður væri hið fegursta, og Tóta var orðið tölu- vert kalt. „Það er bezt að þú hlaupir ofurlitla stund, svo að þér hitni,” sagði pabbi. Tóti lét ekki segja sér það tvisvar, stökk strax af baki og hljóp á undan. En honum gekk ekki vel að hlaupa á skóm, þvi að hann var þvi alveg óvanur. Hann nam þvl fljótt staðar, fór úr skónum og rétti pabba þá. Pabbi brosti að- eins og tók við skónum, hann sá strax, að þetta voru mjög eðlileg viðbrögð og ekkert athuga- vert við þau. Brúnn ýtti óþolinmótur á bak Tóta með flipanum. „Já, nú skulum við halda áfram, Brúnn minn,” sagði Tóti hlæjandi og kippti i faxið, en klárinn strauk mjúkúm flipanum við vanga hans. Þetta var leikur, sem þeir iðkuðu oft, félagarnir. „Eigum við kannski að reyna okkur?” sagði Tóti og þau af stað niður stiginn. Brúnn hneggjaði litið eitt og brokkaði á eftir honum. Þannig hlupu þeir, þangað til þeir komu I útjaðar skógarins, og sléttan stóra opn- aðist. Þegar þangað kom, rann silfurtær lækur þvert yfir stiginn og hjalaði glaðlega við stein- ana. Tóti lagðist tafarlaust á magann á lækjar- bakkann og teygaði svalandi vatnið. Brúnn nam lika staðar við lækinn, beygði stóra höfuðið sitt niður að vatninu, við hliðina á drengnum, og svolgraði stórum. Þegar klárinn hætti að drekka og lyfti upp höfðinu, runnu stórir dropar úr munni hans niður á hnakka Tóta. „Nú skaltu gefast upp, Brúnn minn,” sagði Tóti hlæjandi og velti sér á bakið. Hann teygði fram handleggina, horfði út yfir sléttuna og siðan til himins, sem var heiður og tær. í gegnum rauðgul blöð haustsins sá hann glitra á alla fjallatindana kringum Bárðar- vatn. A þeim hæstu var jökull, og þeir voru nú ljósrauðir á litinn þeim megin, sem sneri að morgunsólinni, en hinum megin ljósbláir. Tóti horfði i kringum sig, um allan sjón- deildarhringinn, og fannst sem hann lægi á botni stórrar skálar, og fjöllin væru brúnir skálarinnar. Það var svo hátt þangað upp, að hann svimaði og varð að loka augunum. En þegar hann opnaði augun á ný sá hann dökkan blett rétt ofan við Bárðarbungu, sem var hæsta fjall dalsins. Þetta var stór fugl, sem þarna var á sveimi. Hann hreyfði ekki vængina, og það heyrðist ekkert til hans, — hnitaði aðeins stóra hringa á heiðbláu himinhvolfinu. Tóti settist upp. 25

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.