Heimilistíminn - 01.09.1977, Side 10

Heimilistíminn - 01.09.1977, Side 10
BORGFIZK LAUNDÓTTIR HÓLABISKUPS 1 Ferðalög voru erfið og timafrek fyrr á öldum. Allt var fariö á hestum, og þurfti mikil og góð föng og útbúnað til að allt yrði i lagi betta orsakaði þaö að i löng ferðalög var ekki ráðizt nema að mikla nauðsyn bæri til.Ýmsir embættismenn landsins, svo sem biskupar, lögmenn, sýslumenn, prófastar og jafnvel prestar uröu oft á tiðum að fara i erfið og löng fprðalög milli landshluta og fjórðunga. Yfirreiðar biskupanna, jafnt Hóla- og Skálholtsbiskupa, voru umfangsmikil fyrirtæki og kostuðu offjár og mikinn og góðan útbúnað. Hólabiskup fór yfir sitt biskupsumdæmi einu sinni á ári, en Skál- holtsbiskup fór yfir sitt biskupsdæmi á þremur árum. Langerfiðast var að fara austur i Múlasýslur, var þá farið yfir óbyggðir og öræfi austur, en i byggð til baka. A stundum lentu biskup og leiðangur hans i villum á öræfunum, og komust jafnvel i byggðir útilegumanna, eins og frægt er með Odd biskup Einars- son i' Skálholti. Eins og nærri má geta urðu biskupar að hafa með sér mikið og fritt föruneyti, reynda menn i feröalögum óg ratvisa. Allt varð að skipuleggja fyrirfram og út- búnaður allur varð að vera hinn traust- asti, haldgóður og öruggur. Vissar skyldur hvilduá prestssetrum og prestum og voru aðallega innifaldir i aö útvega hesta og endurnýjun á ýmiss konar út- búnaði, jafnframt aö hafa til taks leið- beinendur og leiðsögumenn ef svo bar undir. Um þetta voru gamlar gildandi reglur er voru mótaðar frá miööldum. 10 Ferðir embættismanna áður fyrr milli landsfjórðunga voru hinir erfiðustu. Þeim fylgdu margs konar erfiðleikar og vanda- mál. Það var ekki alltaf skemmtilegt að þurfa vikum saman að gista i tjaldi, jafn- vel i misjafnri tið. Allur tjaldútbúnaður var hinn frumstæðasti og mjög erfitt og nær þvi útilokaö að þau væru held og örugg. 1 raun var þetta ekki hent nema ungum og hraustum mönnum. Vosbúð i ferðalögum var hin versta, kuldi og kalsi sótti að mönnum af fullum krafti, og or- sakaði siðar meir alls konar kröm og veikindi. Ungum mönnum var það eftirsóknar- vert fyrst I stað að fara i löng og erfiö ferðalög. Skólasveinar og nývigðir prest- ar voru oft i ferðum biskupa og varð þeim oft mikið gagn að yfirferðum þeirra um héruð og fjarlægar sveitir. Þar kyntust þeir mörgu sem þeim varð að miklu haldi siðar i ævistarfi sinu. En öðru máli var að gegna með em- bættismennina. Þeim varð ferðalagið oft hreinasta kvöl. Þeir urðu langdvölum að dvelja frá heimili sinu, konu og börnum. Þeim varö þetta auðvitað mest til raunar, þegar þeir voru nýkvæntir og höfðu mikla þörf til að vera hjá konu og fjölskyldu. Það var þvi von, að þeir leituðu eftir ýmiss konar ævintýrum á leið sinni, og eru af þvi ýmsar sögur. 2 Sagan greinir að Guðbrandur Hóla- biskup Þorláksson hafi þurft einhverra erinda suður i Skálholt. skömmu eftir að hann varð biskup á Hólum i Hjaltadal. Hann var þá nýkvæntur og búinn að koma sér sæmilega fyrir á staönum. Þess er ekki getið, hverra erinda hann fór suður, enda skiptir það ekki máli i þessari frá- sögn. Þessi ferð var farin yfir hásumarið, þegar bezt var aö ferðast um fjöll og firn- indi. Hann fór að visu byggð að mestu, eins og hægt var, enda var það heppilegt fyrir hann, þar sem hann var nýskipaður biskup og þurfti að vekja á sér athygli reisn sinni og höfðingsbrag. Biskup fór um uppsveitir Borgarfjarðar og norður Arnarvatnsheiöi frá Kalmanstungu. Ferð hans gekk greiðlega og varð fátt til frá- sögu um atvik hennar. En annað varö i efni, sem lifað hefur i vitund og sögum kynslóðanna. Kvöld eitt kom Guðbrandur biskup með föruneyti sinu I Kalmanstungu og tók sér þar náttstað rétt við völlinn, skammt frá stöðli bæjarins. Þarna var ákjósanlegur áningar- og gististaður. Slógu biskup og sveinar hans upp tjöldum og sváfu af um nóttina. I þennan tima bjó ekkja fremur fátæk með börnum sinum mörgum i Kalmans- tungu. Börnin voru sjö og var elzt dóttir, erHelga liét og var hún á nit jánda ári. Hún hafði þann starfa að gæta búsmala. Um morguninn vaknaði biskup árla og svein- ar hans. Þeir fóru til að gæta að hestum og varð biskup einn eftir i tjaldi sinu, og var það opiðþvihann vildi fylgjast með þvi er fram gæti farið þarna á stöðlinum. Ekki leið löng stund, þar til bikup sá stúlku unga, forkunnar fagra reka fjárhóp allvænan til stöðulsins. Biskup varð þegar

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.