Heimilistíminn - 01.09.1977, Blaðsíða 13

Heimilistíminn - 01.09.1977, Blaðsíða 13
Blomin okkar Græðið saman ýmsar tegundir kaktusa Flestir hafa einhvern tima séö eöa áttkaktusa, enda er Ur nógu aö velja f flestum blómabúðum. Blómabækur eru lika yfirfullar af myndum af þess- um merkilegu plöntum, og blóm katusanna sjást þar iitrikari og fegurri en blóm fiestra annarra planta. Kaktusa er hægt aö græða saman, hvern á annan á hinn margbreytileg- asta hátt. Meö ágræöslu getið þið eign- azt plöntu sem á engan sinn lika. Þaö sem þarf til þess að framkvæma ágræðsluna erutveirkatkusar, beittur hnifur, teygjur og þykkir hanzkar, ef þið eruð hrædd við að fá i ykkur kaktusnálar. Margbreytilegt Utlit er hægt að fá með ágræðslu. Hægt er að græða hvern katusinn á annan, og einnig er hægt að taka jólakatus og græða hann ásúlu-eða kúlukaktus, sem likist mest greinóttu tré. Veldu þér nú sterklegan súlu- eða kúlukaktus. Akveddu hversu háan þú vilt hafa hann, og griptu svo til hnifs- ins og skerðu toppinn ofan af, svipað ogsynterá meðfylgjandi myndum. Ef þér hefur ekki tekizt nægilega vel aö skera kaktusinn sundur, og sárið er ekki slétt, verðurðu að skera aðra sneið ofan af, en þvoðu hnifinn á milli aðgerða, til þess að koma i veg fyrir mögulega smitun. Ef bitinn, sem þú hefur skorið ofan af kaktusnum er a.m.k. 3 cm skaltu ekki kasta honum, heldurláta hann þorna i f jóra daga, og stinga honum svo 1 rakan sand. Þar mun hann róta sig og taka að vaxa á nýjan leik. Inni i kaktusnum er nokkurs konar „vaxtarsúla”. Vaxtarsúlur beggja plantanna þurfa að standast á og falla vel saman. Ef plönturnar falla ekki saman, eða eru misstórar verður að tálga þær til likt og gert hefur veriö á teikningunum, þannig að þærséu jafn- ar. Nú er að þvi komið, að festa plönt- urnarsaman. Annaðhvort strekkið þið teygjuna yfir plönturnar og undir blómapottinn. eða þið takið stórar og sterkar kaktusnálar, stingið þeim i stofninn, og strekkið teygjuna niður undir nálarnar hvorum megin. Setjið svo plastpoka yfir allt saman og setjið teygju um pottin og pokann, svo rak- inn haldist innan pokans. Einu sinni á dag er rétt að opna pokann, svo loft getileikið um plöntuna. Látið plöntuna ekki standa i sói á meðan ágræðslan á sér stað. Opnið pokann einu sinni á dag, og leyfið lofti að leika um kaktus- inn. Eftir ca tvær vikur er rétt að athuga, hvort ágræðslan hefur heppn- azt, og þá má taka teygjuna af, ef kaktusarnir eru orðnir samgrónir. Sé jólakaktus græddur t.d. á súlu, þá er skorið niður i súluna og jólakatus- greininni stungið niður i sárið, og siðan er teygja sett utan um allt saman. fb

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.