Heimilistíminn - 01.09.1977, Blaðsíða 18
Barn eða
fullþroskuð kona
Framhald af bls. 9.
verða. Þarna var Brooke Shields, og
him féil vel inn i umhverfið.
Velgetur verið, að Brooke sé fullorðins-
legog tignarleg á myndum, en hún er eins
og hver annar 11 ára krakki, þegar
maöur sér hana i eigin persónu — og i
þetta skipti var hún greinilega staðráðin i
þvi að njóta siðustu frihelgarinnar sinnar
sem bezt hún gat. Þegar hún hafði leikið
sig þreytta i körfuknattleik, fótbolta og
Mattadori, tróð hún i sig tveimur ham-
borgurum og kók-flösku. Hun er ekki
nema 155 cm á hæð, og nú settist hún
makindalega upp i stól og var reiðubúin
að hefja viðræður við blaðamanninn.
Svipbrigðin á þessu unga andliti komu
viðmælanda hennar ivanda. Stundum var
hún eins og litil skólastúlka, en svo
breyttist andlitið i litið, undurfagurt
konuandlit.
— Mér þykir dásamlegt að sitja fyrir,
og mér þykir lika dásamlega skemmtilegt
að vera i skólanum, sagði hún. — Ég er i
Lenox skólanum á Manhattan. Mér þykir
mjög gaman að vera með öðrum
krökkum. Ef ég er mikið með fullorðnu
fólki, leiðist mér. Mér þykir svo leiðinlegt
að kveðja nú skólafélaga mina. Ég sé þá
ekki afturfyrr en i haust. Þess vegna datt
mér i hug að fara með segulband með mér
i skólann, og ég tók upp raddir allra
krakkanna til þess að hafa með mér.
Og hvað fannst Brooke svo um að leika
hlutverk gleðikonunnar?
— Það hefur engin áhrif á mig, sagði
hún rólega. — Þetta er nú ekki þess konar
hlutverk, sem mig myndi mest langa til
þess að leika. M ig langar mest til þess að
verða gamanleikari. Ég hefði svo gaman
af að fá fólk til-þessað hlægja. Uppáhalds-
leikararnir minir eru Jerry Lewis, Carol
Burnett og WoodyAllen.
— Það er óskaplega skemmtilegt að
leika i kvikmyndum. Ég lék i einni.sem
heitir Communion, hjá Columbia. Hún
verður frumsynd i sumar. Ég fór á for-
18
sýningu myndarinnar með mömmu, og
þegar kom að þvi, að ég var hengd i
myndinni, og kastað i kassa og ég brennd,
sagði ég við mömmu. — Mér er sama þótt
þetta sé ég, sem er þama á tjaldinu, við
skulum koma út héðan. Ég er hrædd.
Vildi hún ef til vill flytjast til Holly-
wood?
— Ó, nei, svo sannarlega ekki, sagði
hún. — Ég elska New York, og ég vil
hvergi annars staðar eiga heima.
—Brooke fæddistá 52. stræti austur, og
við búum nú á 73. stræti austur, og hún
hefurtæpast fariö lengra um ævina, sagði
móðir hennar. — Ég held að það sé hvergi
betra fyrir hana að búa heldur en 1 New
York. Hollywood væri ekki sérlega góður
staður.
Bæði móðir og dóttir eru miklir
safnarar. Þær ganga á mifli fornverzlan-
anna á Manhattan eða aka á svarta jepp-
anum sínum. Teri safnar alls konar smá-
hlutum, en Brooke kaupir helzt
trédúkkur.
— Eg á alls 60 trédúkkur, sagði hún. —
Og ég ætla að fara með eitthvað af þeim
með mér til New Orleans nú, þegar ég fer
að leika þar i kvikmyndinni. Ég gæti alls
ekki skilið þær allar eftirhér i New York.
Kettirnir minir tveir fara lika með mér.
Ibúarnir i fjölbýlishúsinu á Manhattan,
þar sem Brooke býr, eru mjög stoltir af
henni, og ekki aðeins af þvi að hún er
góður nágranni. Eftir þvi sem John Hol-
land segir, fer hún fyrir þá i sendiferðir,
vökvar blómin þeirra, þegar þeir fara i
burtu i sumarleyfi, og hún hefur óskap-
lega gaman af að fá að gefa litla barninu i
næstu ibúð að borða, og margt fleira gerir
hún lika fyrir fólkið i húsinu.
Ekki er útséð um það enn, hvort Brooke
tekst að lifa áfram á sama hátt og hún
hefur gert til þessa, þegar hún verður
komin út i' hringiðu kvikmyndanna. Aður
en langt liður fer hún að leika i enn einni
kvikmyndinni, Morning, Winter and
Night, þar sem hún á að leika æskuást
Maxwells Andersons. Hún fékk ekki hlut-
verk i mynd Roberts Wise um Audrey
Rose, en sú mynd er byggð á metsölubók
um endurholdgun. Wise sagði: — Ég þarf
að fá barn i' þetta hlutverk, en Brooke
erbarn ikonumynd. Brooke varþó fengin
sem fyrirsæta að kápumynd bókarinnar.
— Hvað sem verður i framtiðinni, verð
ég að viðurkenna, að ég hef breytt um
skoðun á barnastjörnum, sagði blaða-
konan að loknu viðtalinu. — Brooke
Shields er sannarlega óspiilt 11 ára barn.
Hún er gáskafull, og hefur ótrúlega mikla
kimnigáfu. Dag nokkurn hringdi hún i
John Holland og sagði:
— Þú verður að koma hingað þegar i
stað, og gera það, sem aðeins karlmaður
getur gert.
— Hvað er það? spurði Holland, og var
brugðiö.
— Nú, hvað er þetta, auðvitað binda
fyrir mig skólabindið mitt.
(b.fh i
Við notum allt of litið grænmeti hér á
landi. Sennilega er meginástæðan sú, að
grænmetið er svo óheyrilega dýrt. Hver
veit nema það lækkaði, ef við keyptum of-
urlltið meira i nokkurn tima, en þá ættu
grænmetisframleiðendur hérlendis ekki
lengur að þurfa að kasta á haugana eins
miklu magni af grænmetinu og þeir nú
gera, og verðið lækkaði. Ef til v® kallið
þið þetta „hundalógik” en það er þvi miö-
ur anzi margt sem flokkast undir hana nú
til dags.
1 dag ætla ég að gefa ykkur þrjár græn-
metisuppskriftir. Sú fyrsta er að rósa-
kálssalati, næsta er fyrir selleri, og sú
þriðja er fyrir paprikur. Selleri og paprik-
ur fáum við nýjar i búðunum, og kannski
rósakálið lika að haustinu. A.m.k. fæst
það fryst i flestum búðum, en það er þá
nokkuð dýrt, þvi miður.
Rósakálssalat
Það þarf ekki neitt út á þetta salat um-
fram safann úr greipaldininu. Þó gæti
verið til bóta að strá svolitlu kryddi yfir
salatið, eftir þvi sem hverjum fellur bezt.
1/2 meðalstórt hvitkálshöfuö, 200 gr
nýtt eða fryst rósakál, 1 litil grapealdin.
Rifið hvitkálið niður I smáa strimla.
Takið rósakálið, hvort sem það er nýtt eða
frystog skerið það i tvennt. Skerið greip
ávöxtinn i tvennt, takið skeið og
spænið ávöxtinn upp. Setjið þetta allt
saman i skál. Þvi næst er safinn pressað-
ur yfirsalatið i skálinni. Salatið er bezt að
bera fram vel kælt. Það fer vel með hvaða
kjöt- eöa fiskrétti sem er.
Sellerí með ostafyllingu
Ég hef ekki orðið vör við, aö fólk hér
lendis noti selleri mjög mikið. Erlendis er
þaö notað mun meira, og þá gjarnan sem
smáréttur meö hanastéli, eða með kjöti
og fiski eins og nokkurs konar salat.
Selleriið er mjög gott, ef það er fyllt með
nokkurs konar ostafyllingu. Hana má búa
til á margan hátt.
Takið selleristönglana og þvoið þá, og
skerið þá siðan niöur i þriggja til 6 cm
langa bita. Siðan er tekið til við aö búa til
fyllinguna. Ef við reiknum með að þið
notið 4-5 selleristöngla er rétt að nota ca
200 gr af smurosti. Þið getið valið ykkur
hvaða ost sem ykkur likar, gjarnan má
hræra saman viðhann 25 gr af smjc®i eða
ofurlitlum rjóma til þess að þynna hann.
Slðan er osturinn kryddaður aö vild, með
þvi kryddi, sem hverjum og einum fellur
bezt. Hvitlaukur eða hvitlaukskrydd eru
mjög góð út i flestar tegundir smurosts.
Einnig getur verið gott aö krydda með ný-
möluöum svörtum pipar.