Heimilistíminn - 19.07.1979, Blaðsíða 4

Heimilistíminn - 19.07.1979, Blaðsíða 4
Há laun og ævintýraþrá fær unga menn til þess að fara til starfa viö járnbrautarlagninguna I Siberiu Með ærandi hávaða er járnbrautarteinsbútur látinn siga niður í krana og honum komið fyrir á réttum stað í brautinni. Enn hefur bætzt við BAM, járnbrautarlínu framtíðarinnar frá Bajkalvatni til Amursárósa við Kyrrahafið. Ungir verka- menn með appelsínugula öryggishjálma brosa við myndavél- unum og strjúka svitann af enni sér í nístandi vetrarkuldan- um. Það er mikill heiður i Sovétrikjunum að vera BAM-verka- maður, en BAM hefur verið nefnd járnbraut aldarinnar. Þetta mikla brautryðjendastarf á eftir að opna óbyggðirnar svo hægt verði að taka í notkun, og nýta þar öll þau auðæf i, sem þær búa yfir. Vinna hófst viö lagningu járnbrautar- innar áriö 1974. Ætlunin er, aö fyrsta lest- in aki alla leiöina eftir teinunum, samtals 3145kilómetra, áriö 1983. Leiöin liggur frá Austur Kuta vestan viö Bajkalvatniö til Komsomolsk-na-Amur. Þegar lagningu brautarinnar er lokiö hafa Sovétmenn eignazt braut i gegn um Siberlu, i hæfi- legri f jarlægö frá Kina og á mun öruggari staö en nú er taliö um þá braut, sem ligg- ur yfir Siberiu. BAM liggur þar aö auki um svæöi, sem talin eru búa yfir miklum ósnortnum auölindum. „Litla BAM” liggur i rétt horn á BAM. Þaö er 300 kilómetra járnbrautarspotti, sem tengir BAM og núverandi Siberiu- braut, og nær siöan lengra noröur yfir Berkakit aö stóru steinkola svæöunum i nánd viö Nerjungri I Suövestur Jakutia. 4 Fyrsta lestin Skipulagshönnuöir vilja lengja „Litlu BAM” allt aö gullnámunum viö Aldan og siöar til Jakutsk, höfuöborgar I hinu jakutska sjálfstjórnarlýöveldi Sovétrikj- anna. Fyrsta lestin meö steinkol frá Nerj- ungri-námunum fór frá Berkakit I októ- ber I fyrra á 60 ára afmæli æskulýössam- bands kommúnista Komsomol. Nú er ver- iö aö leggja hliöarspor til Nerjungri og áfram til stöðvarinnar Ygolnaja. Frá þvi vinna hófst við járnbrautar- lagninguna hefur tekizt að ljúka viö þriöj- ung þess sem fyrirhugaö er aö leggja. Vinnan stendur yfir beggja vegna frá samtimis. Kostnaöurinn viö lagningu BAM var upphaflega áætlaöur um 10 milljaröar rúblna eö um 5400 milljarðar Islenzkra króna. Þessi áætlun hefur verið endurskoöuö og hafa tölurnar hækkaö verulega, en þó þykir þaö ekki óeölilegt. BAM hefur oröiö eins konar tákn á framtiöarmöguleika Sovétrikjanna, slag- æöin, sem á að veita lifi til eyöimarkanna i austanveröri Siberiu, og ryðja veginn aö auölindunum þar. Meöfram BAM hafa risið nýir byggöakjarnar. Verkamennirn- ir eru fengnir til þess aö koma, eftir aö þeim hefur veriö heitið mikilli vinnu og tækifæri til þess aö vinna sér inn mikla peninga, nóg til þess aö kaupa sér bil og ibúö — já, og svo veröa þeir einnig BAM- hetjur. Framtiðaráætlanirnar eru álika miklar og erfiöleikarnir, sem ráða veröur bót á. Aætlaö er, aö byggöar veröi 50 nýjar borgir viö BAM. Atta risafyrirtæki eiga aö vinna úr jöröu hráefni, og vinna siðan úr þeim vörur bæöi til innanlandsnotkun- ar og til útflutnings. Ósnortnar auðlindir BAM-áætlunin er byggö upp úr átta aöaláætlunum, sem miöast aö þvi aö nota þær auölindir, sem eru umhverfis járn- brautina. Þaö eru: 1. Efra Lena-áætlunin varöandi skóg-

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.