Heimilistíminn - 19.07.1979, Blaðsíða 25
David Rigert
handhafi 56 heimsmeta
Þungaviktarmaðurinn, David Rigert,
32ja ára gamall, (171 cm á hæð og vegur
96 kg), er fæddur i Nagornyeþorpi
(Kazkhastan) Fjölskyldan stór, faðirinn
er kornræktarmaðurinn Adam Rigert.
Daviðtók aöæfalyftingarárið 1966, þegar
leiðbeinandi hans kom honum I æfinga-
skóla. Rigert, sem þá var 65 kg að þyngd,
gat á þeim tima lyft 50 kg og tekið 55 kg
nokkuð á loft. Þremur árum siðar gekk
hann i flokk Rudolf Plykfelder, eitt sinn
verandi ólympiukeppanda, en sagði
honum að afrek sin væru lltil. Plykfelder
leit á hendur piltsins, traustar og sterk-
legar, og ákvað að hann skyldi flytja til
Shakhty, námuborgar.þar sem þjálfarinn
átti heima. Viku siöar hóf Rigert störf I
YUzhnayanámunni, og á hverju kveldi
æfði hann lyftingar I iþróttaklúbbi námu-
manna. Næsta ár fékk hann bronsverð-
Iaun I heimskeppni i Kolumbiu (Banda-
rikjunum). Þaö var fyrsta þátttaka hans I
alþjóðlegri keppni. 1 nóvember 1970 hvarf
hannfrá létta þungavikt til meðal þunga-
viktar ogtveim mánuðum siðar setti hann
sitt fyrsta heimsmet i þessari nýju grein
sinni.
Arið 1971 vann Rigert sinn fyrsta
heimsmeistaratitil. Hann sigraði fjórum
sinnum I röð i Iþróttagrein sinni f heims-
keppni. Arið 1976 lyfti hann 400 kg.
samanlagt. Enginn i iþróttagrein hans
hafði áðurnáð þvi marki., en hann skrif-
aði á leðurbelti sitt töluna „450”.
,,Hvaö þýöir þessi tala?” var hann
spurður.
„Það sem mig dreymir um,” svaraði
Rigert.
Siðasta ár vann hann heimsmeistara-
titilinn I fimmta sinn I röð. Daviö Rigert,
handhafi 56 heimsmeta og sigurvegari á
Olympiuleikunum i Montreal, æfir nú af
kappi fyrir Olympiuleikana I Moskvu.
Hann heldur aö 420-430 kg. muni nægja sér
til vinnings, en bætir við drýgindalega aö
hann gæti vel hugsað sér að hnekkja öðru
heimsmeti, meti Rudolf Plykfelder,
kennara sins, sem vann heimsmeistara-
titilinn 36 ára gamall.
Sjáðu, þessir tveir hljóta að vera
hljómlistarmenn.
25
i
i