Heimilistíminn - 19.07.1979, Blaðsíða 11
Rolling
Stones
héldu tónleika
fyrir blinda
— Þaö er stórkostlegt að vera aftur-
kominn til Toronto, sagöi Mick Jagg-
er, þegar hann stökk fram á sviöiö t
hljómleikasalnum i borginni, þar sem
hann hitti fyrir Keith Richard og hina
aöra meölimi Rolling Stones. Þetta
voru svo sannarlega heldur óvenjuleg-
ir hljómleikar, þar sem dómari nokkur
haföi kveöið upp þann dóm, aö þeir
skyldu haldnir.
Upphaf málsins var þaö aö i febrdar
1977 höföu Rolling Stones komiö
flugleiöis til Toronto til þess aö taka
þar upp breiöskífu, en þess I staö lentu
þeir i blööunum vegna nýfenginnar
vinkonu, Margaret Trudeau. Verst var
þó, aö Keith Richard var handtekinn
vegna þess aö lögreglan fann 22
grömm af heroini I hótelherberginu
hans. 1 október siöast liöinn fóru svo
fram réttarhöld vegna þessa máls.
Þar kvaö dómarinn Lloyd Grayburn
upp þann dóm, aö Richard skyldi losna
viö aö sitja I 'fangelsi, en þess i staö
skyldi hann halda hljómleika fyrir
blinda, og ekki taka fyrir þá nokkra
þóknun. Hlómleikarnir skyldu fara
fram innan sex mánaöa.
Margir háttsettir menn i Kanada,
þeirra á meöal John Diefenbaker,
fyrrverandi forsætisráöherra, taldi
þetta hræöilegan dóm, sem sýndi allt
of mikla linkind. Meira aö segja
nokkrir forsvarsmenn blindra mót-
mæltu dómnum. Einn hópur þeirra
hótaöi aö grlpa til mótmælaaögeröa á
hljómleikunum, vegna þess aö þeir
geröu ekki annaö en aö draga athygli
fólks enn meira aö hjálparleysi blinds
fólks.
„Steinarnir” höföu komiö víöa aö, til
þess aö taka þátt I þessum hljómleik-
um, og þeir voru haldnir þrátt fyrir
mótmæli ýmissa. Þarna voru sungin
„Steinalög” og flutt á borö viö Shatter-
ed, When the Whip Comes Down og
Miss You, en aö hljómleikunum lokn-
um voru sumir ánægöir en aörir ekki.
Attræö blind kona sagöi t.d. — Ég
heföi heldur viljaö einhvera hugljúfa
tónlist, en ég kæmi aftur til þess aö
hlusta á þá, þótt þeir flyttu sömu lögin.
Taliö er liklegt aö Rolling Stones haldi
ekki aðra sameiginlega hljómleika
þetta áriö. Hér á myndinni sjáiö þiö
Keith Richard upp á sitt besta á hljóm-
leikunum.
11
»
1