Heimilistíminn - 13.07.1980, Page 8
Nú er hafin
leit að Titanic
á hafsbotni
Frank J.W. Goldsmith man vel eftir nóttinni, þegar Titanic sökk. Hann var
þá aOeins niu ára gamall, og fór um borO I einn sfOasta björgunarbátinn, sem
frá skipinu komst meO móOur sinni, en faöir hans stóö eftir á þilfarinu, og mun
hafa farizt meö skipinu, þegar þaö hvarf I hafiö.
Goldsmithfjölskyidan, eins og flestar aörar fjölskyldur, sem voru á þriöja
farrými skipsins, haföi ætlaö aö flytjast búferlum til Bandarikjanna. Titanic
heföi getaö boriö um 4000 manns þessa nótt aöallega á þriöja farrými, en svo
var ekki, vegna þeirra takmarkana, sem brezk stjórnvöld höföu sett um
brottflutning manna úr landi. Farþegar voru þvi aöeins 2224.
■ Farmiöi á þriöja farrými kostnaöi
-aöeins 30 dollara, en John Jacob Astor
-greiddi fimm þúsund dollara fyrir glæsi-
(búö þá, sem hann haföi um borö. Þaö sem
hann haföi einnig umfram allan þann
fjölda fólks, sem lét fyrir berast neðar i
skipinu, var aögangur aö velbúnum söl-
um, dýrölegum matsölum, þar sem enn
dýrölegri réttir voru bornir fram á hverj-
um degi, og siöan aö alls konar
tómstundagamni. Alitiö er, aö eigur aö
verömæti um 250 milljónir dollara hafi
farið meö skipinu, en þær voru aöallega i
fórum farþega á fyrsta farrými, segir
William Tantum IV, forseti Titanic
Historical Society í Indian Orchard i
'Massashusetts.
Þegar litiö er til baka, má segja, aö þaö
hafi verið bæöi kjánaskapur og ögrun viö
máttarvöldin, aö skipinu skuli hafa veriö
siglt hraöbyri áfram þessa nótt þrátt fyrir
þá hættu, sem gat stafað af ísjökum, sem
alls staöar voru á reki á þessu svæöi.
En þess ber aö gæta, aö Titanic, þetta
stórkostlega brezka farþegaskip, sem
þarna var I sinni fyrstu ferö, var sagt
ósökkvandi. Aö minnsta kosti héldu eig-
endur þess, White Star Line, þvl fram.
Tvöfaldur botn skipsins og 16 vatnsþétt
rúm áttu aö tryggja þaö, aö skipið gæti
ekki sokkiö. Þaö átti meira aö segja aö
geta haldizt á floti meö aöeins fjögur
þessara rúma lokuö.
Goldsmith, sem nú býr I hjólhýsaný-
lendu i Florida minnist leikja barnanna
um borð dagana fyrir slysiö. — Viö krakk-
arnir reyndum annað slagiö aö komast
upp I björgunarbátana og leika okkur þar,
segir hann. — Hvöss rödd kallaði þá til
okkar. — Drengir haldiö ykkur i burtu frá
björgunarbátunum.
Svogerðistþaðkl. 11:40 um kvöld, þann
14. apríl, 1912 aö Titanic rakst i isjaka og
fimm vatnsþéttu hólfin rifnuöu. Þetta átti
sér staö rétt eftir aö skipið haföi sveigt
til hliðar til þess aö komast hjá árekstri
viöstóran fsjaka, sem allt i einu var I sigl-
ingaleiöinni. Næstu tvær klukkustundir og
40 minútur sökk stefni skipsins hægt og
sigandi i hafiö. Frank litli og móöir hans
auk 38 annarra farþega komust i björg-
unarbát, sem var látinn siga fyrir borö
örfáum augnablikum áöur en Titanic
sökk. Sumar konurnar voru i kápunum
utan yfir náttkjólana, segir Goldsmith. —
Teikning af plötuumslagi, sem á aö sýna Titanic iþann
mund er skipiö sökk.
8
Kafbáturinn Aiuminaut.
Michaet I