Heimilistíminn - 13.07.1980, Page 10

Heimilistíminn - 13.07.1980, Page 10
, .u,tWa^^Va tey^ a Æ v»t >laYÍlfaS^ Vú g&s^ ....wa eV^w si^V etvft ReriV S«>‘l'vl'" Tania sveif eftir gangstéttinni, þrátt fyrir mannmergðina, sem alltaf var á þessum tima dags. Hún ætlaði að hitta Martin. Hún var komin aftur til London eftir að hafa starfað á smáblaði norður i landi i eitt ár. Hún hafði sinnt þarna margvislegustu störfum, en nú hafði henni boðizt starf á táningablaði, og það fyrsta sem henni datt i hug, þegar hún fékk til- boðið var að segja Martin frá þvi. Nú átti hún skammt eftir ófarið, og hún neyddi sjálfa sig til þess að fara hægar. Það veittist henni ekki auðvelt, enda var hún að springa af tilhlökkun eftir að sjá Martin aftur. Það rann ekki upp fyrir Taniu hversu vitfirr- ingslegt þetta tiltæki hennar var fyrr en hún stóð i anddyri bókaútgáfunnar Jennings & Porter og spurði þar eftir Martin. Hvað skyldi Martin eiginlega halda? Kannski þekkti hann hana ekki einu sinni aftur — að minnsta kosti ekki við fyrstu sýn. Ekkert var jafnkjánalegt að þjóta nú til manns, sem stóð nákvæmlega á sama um hana. Þetta yrði skammarlegt fyrir hana, og hún hefði svo sem bara gott af þvi. Við sjálft lá, að hún legði á flótta, en um leið hafði skrif- stofustúlkan lagt frá sér simtólið og sagði. — Hr. Beverley getur tekið á móti yður núna. Vitið þér hvar skrifstofan hans er? Hún er númer 27 á þriðju hæð. Þér getið farið i lyft- unni, hún er þarna fyrir handan. Hún skalf i hnjáliðunum á meðan lyftan þaut upp á hæðirnar.Þetta var brjálæðislegt. Hvað átti hún að segja? Ef skrifstofan væri til dæmis full af rithöfundum, og hann væri að ræða við þá? Lyftan stöðvaðist. Hún þurfti svo sem ekki að fara inn á skrijstofuna hans. Hún gæti gengið beint framhjá dyrunum, og farið svo heim og gleymt þessu öllu. Hann hafði ekki skrifað henni eitt einasta orð. Hefði hann viljað, hefði hann getað fengið heimilisfangið hjá foreldrum hennar. Eitt ár var langur timi. Hann var áreiðan- lega búinn að finna sé einhverja aðra.... — Skrifstofa hr. Beverley er sú þriðja héðan frá, sagði lyftuvörðurinn vingjarnlega. Hann stóð og horföi á eftir henni þegar hún skjögraði í átt að dyrunum og barði. Allt var hljótt. Bara að hann væri ekki inni. En stúlkan niðri i móttökunni haföi hringt til hans. Martin beið hennar. Nú var orðið of seint .að snúa við.

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.