Heimilistíminn - 08.03.1981, Qupperneq 8
ÁTTURNAR
í fljótu bragöi sýnast kon-
urnar átta, sem hér verður um
fjallað, allar vera eins. Þær
eiga allar heima I Kaliforníu,
eru allar með fallega hár-
greiðslu, og hafa allar verið
giftar repúblikönum og
milljónamæringum um árabil.
Þær hafa mikla ánægju af þvi
að berast á og sýnast, en eru
lika allar góðar eiginkonur i
þess orðs gamla og góða skiln-
ingi.
Konurnar átta btfa allar nálægt hvor
annarri ifinustugötum Los Angeles-borg-
ar og smekkur þeirra er ótriilega likur um
margt. Þær kaupa fötin sin I sömu
verzlunum, og þeim ekki af lakara taginu.
Þær verzla lika viö sama loðskinnasalann
,og fara og fá sér matarbita á sömu veit-
.'ingastöðunum i hádeginu. Á kvöldin fara
þær lfka á sömu veitingastaöi til þess að
fá sér kvöldverö-Blómin sin kaupa þær
hjá sama blómasalanum.
— Það sem er þó kannski hvað merki-
legast viö þessar konur, er gagnkvæm
tryggð þeirra, segir Wanda McDaniel,
sem skrifar um fina fólkiö i eitt af blööun-
um i Los Angeles. — Konurnar hafa hald-
iö saman svo lengi, aö helzt má likja sam-
bandi þeirra viö leynilegt systrafélag eöa
Virginia Tuttle kynntist Reagan fyrst áriö
1946 eftir aö eiginmaður hennar Holmes,
sem er einn af helztu Ford-bilasölunum
vestra, haföi selt Reagan bil.
8
einhvern annan dularfulian félagsskap.
Konurnar, sem hér um ræöir, eru vin-
konur Nancy Reagan, forsetafrúar
Bandaríkjanna. Konurnar átta hafa verið
sáluféiagar hennar og trúnaðarvinir i
meira en tvo áratugi. Allar eru þær komn-
ar yfir fimmtugt. Og i næstu fjögur ár
veröa Atturnar eins og þær gjarnan eru
kallaöar^viö hliö Nancy Reagan og eiga
eflaust éftir aö styöja hana og styrkja,
hvenær sem þörf krefur. Konurnar heita
Betsy Bloomingdale, Bonita Granville
Wrather, Martha Lyles, Jean Smith, Jane
Dart, Virginia Tuttle, Marion Jorgensen
og Betty Wilson.
— Loksins eigum við aö fá aö sjá raun-
verulegan stii i Washington, segir Julius
Bengston, sá sem sér um hárgreiðslu
Nancyar og Attanna allra. — Þetta er
still, sem mikiö þarf á sig aö leggja til
þess aö ná, og einnig þarfnast hann mik-
illar reynslu.
Atturnar búa yfir þessum sérstaka stfl.
Þær eru bæði veizlugestir og veizluhald-
arar á heimsmælikvarða og allar eru þær
framakonur i llfi fina fólksins i Kaliforn-
iu. Fjdrar eru félagar — og þrjár varafor-
setar i félagsskap, sem kallast Amazing
BlueRibbon 400. Það er góðgeröarfelags-
skapur sem allir vilja komast i sem eitt-
hvaö finna til sin I Los Angeles. Reyndar
er Nancy Reagan ekki i þessum félags-
skap, en hún er fyrst á meðal jafningja
þegar hún er meö þessum átta vinkonum
sinum. — Ég hef alltaf litiö upp til
Jane Bryan sigraði Jane Wyman fyrri
konu Reagans I vinsældakeppni árið 1939
og fékk hlutverk i kvikmyndinni We Are
Not Alone. Hún er gift Justin Dart.
Nancyar, segir Martha Lyles, eiginkona
kvikmyndaframleiðandans A.C. Lyles. —
Meö útliti sinu og klæöaburöi mun hún
ávinna Hvitahúsinu virðingu meöal allra.
Nancy velur sér vini á sama hátt og viö
gerðum, segir Bill Libby, sem skrifaði
meö henni ævisögu hennar, Nancy.— Við
veljum okkur vini, sem sjá heiminn i
sama ljdsi og viö gerum. Hún er ein úr
hdpi gamaldags kvenna, sem eru þeirr-
ar skoðurnar, aö konur gangi of langt nú
oröiö, og aö þær séu aö missa sjónar á
gildi hlutanna.
Vinkonur hennar allar eiga þetta sam-
eiginlegt. Þrátt fyrir þaö, að Wrather og
Dart hafi báðum tekizt vel upp sem leik-
konum áöur en þær giftust, og Wrather
hafi siöar fariö aö framleiöa kvikmyndir
og sjdnvarpsþætti, þá hafa Atturnar látiö
sé nægja hlutverk eiginkonunnar. Þær eru
ihaldssamar i skoðunum um þessi mál.
— Mér fellur ekki jafnréttislöggjöfin,
segir Martha Lyles hreinskiinisiega. —
Ég er kona, og ég hef náð eins langt og
mig langar til þess aö ná.
Eiginmennirnir hafa fengiö aö helga sig
stjtírnmálunum án ihlutunar kvenna
sinna en Nancy og Atturnar hafa þess i
stað lagt alla áherzlu á glæsileika og góð-
an smekk I klæðaburði og gestamóttöku
og veizluhöldum. Betti Wilson segir, að
fatasmekkur þeirra sé hagnýtur og
Marion Jorgensen er gift stálkóngi frá
Kaliforníu, einum að aðstoðarmönnum
Reagans á sviði stjdrnmálanna.