NT - 05.05.1984, Qupperneq 5
jl
Uppboðá
myndverkum
á Hótel Borg
■ Næsta sunnudag kl. 3 e.h.
munu ungir myndlistarmenn
standa að uppboði á verkum
sínum að Hótel Borg.
Verkin eru unnin á hefðbund-
inn hátt þó stíllinn sé líflegri og
höfði til morgundagsins s.s.
dúkrista, sáldþrykk, æting,
klippimyndir og olía.
Hressir myndlistarunnendur
eru hvattir til að fjölmenna í
Gyllta salinn að Hótel Borg,
uppboðsdaginn frá kl. 1-3 e.h..
■ Píanóleikarinn Martin
Berkofsky heldur fyrirlestur og
hljómleika í Norræna húsinu á
þriðjudagskvöldið kl. 20.30.
Sýning á verkum
Jóns Engilberts
á Akureyri
■ Laugardaginn 5. maí verður
opnuð í Listsýningarsalnum,
Glerárgötu 34, Akureyri, sýn-
ing á verkum Jóns Engilberts
listmálara, sem nefnist Brot úr
lífsspegli. Á sýningunni verða
64 verk, þar af 24 olíukrítar-
myndir úr myndaröðinni Mynd-
ir úr lífi mínu frá tímabilinu
1954-1966. Einnig verða þarna
tréristur, fágætar mjög.
Sýningin stendur til 13. maí
og er opin virka daga kl. 20.00-
22.00, og um helgar kl. 14.00-
22.00. Allar myndirnar á sýn-
ingunni eru til sölu.
Laugardagur 5. maí 1984 5
Átak til sjónverndar
■ Lionsmenn í umdæmi 109 B Óli G. Jóhannsson halda sýningu
hafa gengist fyrir almennri söfnun á 31 grafík mynd og mun hluti af
nú í vor, í þágu augnlækninga- þeirri sölu rerina til söfnuriar
deildar Fjórðungssjúkrahússins á Lionsmanna.
Akureyri. Söfnunin munstandatil Verndari söfnunarinnar ér
6. maí. biskup íslands, herra Pétur Sigur-
í sambandi við söfnunina mun geirsson.
Skemmtanir í Þórscafé
■ I kvöld mun söngrtríóið
Stjúpsystur, skemmta í veit-
ingahúsinu Þórscafé. „Hér er á
ferðinni tríó sem stofnað var
síðastliðið haust og hefur getið
sér gott orð fyrir söng og grín“,
segir í fréttatilkynningu. Fyrir-
hugað er að þær Stjúpsystur
skemmti næstu laugardagskvöld
í Þórscafé.
Ákveðið hefur verið að endur-
taka tónleika þá er Lúdósextett og
Stefán héldu fyrir viku í Þórscafé.
Tónleikarnir verða eingöngu fyrir
matargesti.
Átthagafélag Strandamanna:
Vorfagnaður
og kaffiboð
■ Átthagafélag Strandamanna í Reykja-
vík heldur vorfagnað í kvöld í Domus
Medica.
Kaffiboð fyrir eldri Strandamenn verður
á sama stað, sunnudaginn 13. maí, en
aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtu-
daginn 17. maí.
Margt fleira er að gerast hjá félaginu.
Nefna má, að Strandapósturinn er að koma
út næstu daga og plata og kasetta með kór
átthagafélagsins er væntanleg á næstunni.
Formaður félagsins er Gísli Agústsson.
Kvenjógi í heimsókn
■ Bandarískur kvenjógi er kominn hingað
til lands í boði Tantra kvenna á íslandi.
Jóginn mun halda fyrirlestur um beitingu
hugleiðslu til aukinnar lífshamingju, sjálfs-
þekkingar og jákvæðra lífsviðhorfa. Fyrir-
lesturinn verður í stofu 40 í MH á mánudags-
kvöld kl. 20.30. Aðgangur er ókeypis.
Líffræðistofnunin
10ára:Meðopiðhús
■ Líffræðistofnun Háskólans hefur opið
hús að Grensásvegi 11 og 12 kl. 14-19 í
tilefni af tíu ára afmæli sínu. Fluttir verða
fjórir stuttir fyrirlestrar og sýnd kvikmynd
um Mývatn.
Fyrirlestur
um jarðfræði
■ Mánudaginn 7. maí flytur prófessor
Brian Whalley frá Belfast fyrirlestur um
landmótun í háfjöllum, og nefnist hann
High Mountain Geomorphology. Próf.
Whalley tekur dæmi af rannsóknum sínum
í Hindu Kush og Karakorum í Afganistan,
en einnig hefur hann kannað landmótun hér
á landi, í Alaska og víðar. Fyrirlesturinn er
ávegum Jarðfræðifélags lslands.Hann hefst
kl. 20.30 í stofu 101, Lögbergi, Háskóla
íslands.
Söngskemmtun Selkórsins
■ Árlegir tónleikar Selkórsins verða laug-
ardaginn 5. maí kl. 15.00 í Félagsheimili
Seltjarnarness.
Söngskráin verður létt og aðgengileg með
íslenskum og erlendum sönglögum og óper-
ettukórum. Einsöngvarar eru Jón Jónsson,
Reynir Guðsteinsson og Þórður Búason.
Kórstjórn og píanóleik annast hjónin
Ágústa Ágústsdóttir og sr. Gunnar
Björnsson.
Kaffisalaífæreyska
sjómannaheimilinu
■ Á sunnudag halda færeyskar konur
árlega kaffisölu sína í nýuppkomnu fær-
eysku sjómannaheimii við Brautarholt 29,
Reykjavík.
Verður borð hlaðið tertum, brauði og
heimabökuðum drýlum með skerpikjöti og|
öðru færeysku áleggi.
Allur ágóði rennur til sjómannaheimilis-
ins.
‘Tereres de ‘Bonrbon ‘Rokkókólónlisl á víólín
í Grillinu sunnudagskvöld
sunnudaQsfLvöLdið Látum víð ísLensdt nútímaamstur
aqs
Lönd og [eið oq sÆöpum notaLega fransfia miðalda-
stemmnincfu i fjriLlinu . ‘V'aLdir réttir ajfranska sérrétta-
matseðLinum ofifLar eru bornir fram og á meðan þú
smafLfLar þig áfram í gegnum 7—8 tecfundir fLonunqLegra
fLrœsinga Leifia ThCirðspiLarar JZoðvífLs 14. menuetta og
aðra viðeigandi tónList.
SKomið og kynnisí kóngalífinu eitt kvöLd
Jvíenu ‘ iarandoLe
TZ.'aiguillette de saumon beíirre blanc,
mille-rTeudles aux asperges
TLe bloc de Œoie d’ac)neau
au muscat et ‘Raisins 'V'ilía-^Téz.illanis
TZe filet de Sébaste avec poivre verl et cépes
VLe sorbet aux concombres
• •
TZa loncje de boeuf rótie ‘Ricbelieu
• •
TZa créme caramel á TZa compote de pommes
• •
Café et petits ‘Tours
SAllir réttir innifaldir í einu verði kr. 9 qo. -
Stlíar nánari upplýsingar og borðapantanir í
síma .23033.
CNú íiöfum við draðan á , -því síðast var allt uppselt.