NT - 05.05.1984, Blaðsíða 6
ÍF ' —
Skákþáttur Helga Ólafssonar í NT kemur f rá New Yor k í dag:
Ameríkumenn allt annað en
auðveldir heim að sækja
Frá Hclga Ólafssyni í New York
■ Eftir að hafa teflt í fjórum stór-
mótum í beit heima á íslandi er það
skemmtileg tilbreyting að stökkva
vígreifur í herbúðir vesturheimskra
og hyggja þar á stórsigra. Við félagar,
undirritaður og Jóhann Hjartarson,
vorum alltént fullir bjartsýni þegar
við lögðum upp þriðjudaginn 17.
apríl, en þrem dögum síðar höfðu
vonir okkar beðið hnekki. Ameríku-
menn eru nefnilega allt annað en
auðveldir heim að sækja. Skal nú
greint frá óförum okkar í fyrra mótinu
af tveim sem gimsteinamaðurinn Jose
Cuchi hefur staðið fyrir, skákunnend-
um til mikillar ánægju.
„New York Open“ stærsta opna
skákmót heims hóf göngu sína í fyrra,
.e.a.s. í þeirri mynd sem það er nú.
þeirri von að það tækist að laða
sterka skákmenn að hóf Cuchi fyrstu
verðlaun upp í 10.000 bandaríkjadali
og næstu verðlaun með jöfnum stíg-
anda niður á við. Þetta tókst að vissu
marki í fyrra en í ár mættu til leiks
enn sterkari skákmenn. Fyrstan skal
þar telja Danann Bent Larsen, sem
lítið hefur sést á alþjóðavettvangi
undanfarið. Fyrir 10 árum eða svo var
Larsen heiðursgestur á opnum banda-
rískum mótum og í þá tíð þýddi varla
fyrir heimamenn að stilla upp gegn
Danskinum en nú eru tímanir breytt-
ir. Bent átti erfitt uppdráttar og átti
aldrei verulega möguíeika á 1. verð-
laununum. Hann hlaut 5 1/2 vinning
úr 8 skákum, vann þrjár skákir og
gerði 5 jafntefli.
Aðra fræga kappa má nefna, Yass-
er Seirawan, glæsilegur ungur maður
sem í dag telst stærsta stjarnan á
skákheiminum bandaríska; Kavalek
fyrrum þegn Tékkóslóvakíu sem búið
hefur í Bandaríkjunum í meira en 15
ár; Walter Browne sem íslendingar
kannast við frá Reykjavíkurskákmót-
unum 1978 og 1982. Florin Gheorg-
hiu, Rúmeni og tíður gestur í Banda-
ríkjunum og tefldi á Reykja-
víkurskákmótinu 1972; Miquel Qu-
interos, William Lombardy, Arthur
Bisquier, Roman Dzindzihasvili, og
þannig mætti lengi telja.
Fjölmargir sterkir skákmenn
mættu til að bítast um silfrið en
enginn hreppti hnossið; lítt þekktur
Kanadamaður, Kevin Spraggett tefldi
af sannfærandi öryggi, lagði hvern
kappann á fætur öðrum og stóð að
lokum upp sem sigurvegari - einn í
efsta sæti. Hann sigraði m.a. Seiraw-
an og í síðustu umferð Dzindzihasvili.
Næstir á eftir honum komu Seirawan,
Bisquier og Federowicz. Þeir hlutu
allir 6 1/2 vinning og verðlaunafé sem
var allt að 7 þúsund bandaríkjadölum
lægra pr. mann en kom í hlut
Spraggett. Bisquier er gamall í hett-
unni og kom frammistaða hans nokk-
uð á óvart. Hann er að vísu stórmeist-
ari en hefur aldrei fyllilega staðið
undir þeim titli. í þessu móti sigraði
hann sterka skákmenn á borð við
Sergei Kudrin, fyrrum Sovétmann en
þeir tröllríða bandarísku skáklífi um
þessar mundir og Floran Gheorghiu
þriðja verðlaunahafann. Federow-
icz er marghertur í opnu mótunum
hér og árangur hans kom engum á
óvart.
En hvað varð um íslendingana?
Svo kynni einhver að spyrja. Árangur
okkar, 5 vinningar af 8, er auðvitað
sáraómerkilegur, en ef litið er til þess
að við urðum af 3. umferð vegna
misskilnings má telja hann viðunandi.
í sjö tefldum skáícum vann Jóhann
fjórar, gerði tvö jafntefli og tapaði.
Undirritaður vann þrjár skákir og
gerði fjögur jafntefli. Éitt tap á móti
af þessari tegund gerir sigurmögu-
leika yfirleitt að engu og ekki bætir úr
skák þegar áföllin koma á þennan
hátt.
Taflmennska fjölmargra keppenda
hér bar þess greinilega merki að
mótið átti að verða vettvangur upp-
gripa. Walter Browne og William
Lombardy töpuðu báðir í næstsíðustu
umferð og misstu við það möguleika
á verðlaunum. Þeir voru því ekkert
að hafa fyrir því að mæta í síðustu
umferð. Bent Larsen var búinn að
missa alla möguleika þegar síðasta
umferð hófst en hann mætti. Skákin
á sér göfugra markmið en peninga-
plokk í hans augum.
Sterkasta opna skákmót heims
Ég held að það sé engin goðgá að
ætla að þessi fyrsta vika í New York
hafi þrátt fyrir allt notast til undirbún-
ings fyrir seinna mótið, „The New
York International". Það tekur sinn
tíma að venjast skarkala stórborgar-
innar, loftslaginu, og þeirri staðreynd
að í stórborg eins og New York
hverfur einstaklingurinn gersamlega,
verður hreinlega eitt stórt núll.
Við þóttumst því sæmilega hagvan-
ir er við settumst að tafli í dag, (það
er 24. apríl þegar þetta er skrifað)
íslenska deildin í New York, Jóhann Hjartarson og Helgi Ólafsson.
Mynd Nigel Addis
■ Ungverjinn Laios Porfisch situr hér ábúðarmikill yfir skák þeirra Helga
Ólafssonar í fyrstu umferð seinna skákmótsins í New York.
Mynd Nigel Addis
Metþátttaka í íslandsmótinu í tvímenning
96 pör skráð til leiks!
■ Alger metaðsókn hefur verið í
íslandsmótinu í tvímenning sem hefst
í dag á Hótel Esju. Þegar síðast
fréttist leit út fyrir að 96 pör myndu
taka þátt en mótið er opið öllum
langstærsta bridgemót sem haldið
hefur verið hérlendis.
Skráningu í mótið átti að ljúka á
mánudaginn og kl. 16.00 voru komin
84 pör. Þessi fjöldi var ófyrirséður og
því hafði ekki verið útvegað nógu
stórt húsnæði fyrir hann. Jón Baldurs-
son, framkvæmdastjóri Bridgesam-
bandsins ákvað því að á móti fleirum
yrði ekki tekið þannig að hann tók
símann á skrifstofu Bridgesambands-
ins úr sambandi. Það stoðaði lítið því
þegar hann kom heim til sín um
kvöldið linnti ekki hringingum
þangað.
Björn Theodórsson forseti Bridge-
sambandsins fór þá á stúfana og tókst
að útvega húsnæði Hótel og veitinga-
skólans á 2. hæð Hótel Esju í viðbót
við salinn sem þegar hafði verið
leigður. Og enn héldu pörin áfram að
streyma að eins og áður sagði.
Undanfarin ár hafa í kringum 60
pör tekið þátt í íslandsmótinu í
tvímenning, sem er tvískipt, opin
undankeppni og lokuð úrslit 24 efstu
para undankeppninnar. Þá hefur
mótið allt verið spilað í einu, 4 daga
í röð en nú hefur því verið skipt á tvær
helgar þannig að undankeppnin verð-
ur nú um helgina og úrslitin síðan
eftir hálfan mánuð. Þetta hefur sjálf-
sagt haft sitt að segja um ásóknina
nú,.
Þegar aðeins 24 pör úr hópi 96
komast áfram í undanúrslitin og að-
eins eru spiluð tæplega 90 spil má
búast við verulegu „stjörnuhrapi“.
Það er allavega öruggt að enginn
getur verið öruggur með sæti sitt í
úrslitunum fyrr en upp er staðið að
lokum.
Keppnisstjórar á þessu móti verða
Agnar Jörgenson og Guðmundur Kr.
Siguðsson.
Landsliðsumsóknir
Umsóknarfrestur sá sem gefinn var
fyrir landsliðsval, á Norðurlandamót-
ið í opnum flokki og Evrópumót
yngri spilara í sumar er nú liðinn þó
sveitirnar hafi ekki verið valdar.
Aðeins ein umsókn barst fyrir opna
flokkinn á Norðurlandamótinu í
Helsingör. Þeir Hörður Blöndal. Jón
Baldursson Sigurður Sverrisson, Val-
ur Sigurðsson og Sævar Þorbjörnsson
sóttu um sem sveit og teljast því
sjálfkjörnir.
Um kvennaflokkinn sóttu Halla
Bergþórsdóttir Kristjana Steingríms-
dóttir, Esther Jakobsdóttir og Val-
gerður Kristjónsdóttir, Erla Sigur-
jónsdóttir og Dröfn Guðmundsdóttir
og Grethe Iversen og Sigríður Eyj-
ólfsdóttir.
í yngri flokki sótti 6 pör um, þau
Aðalsteinn Jörgensen og Runólfur
Pálsson, Bragi Hauksson og Sigríður
Sóley Ragnar Magnússon og Valgarð
Blöndal, Sigurður Vilhjálmsson og
Sturla Geirsson, Anton R. Gunnars-
son og Guðmundur Auðunsson og
Ragnar Ragnarsson og Stefán
Oddsson. Landsliðsnefnd. Bridge-
sambandsins mun velja úr þessum
umsóknum.
Bridgedeild Breiðfirðinga
Eftir 3 umferðir af fjórum í butler-
keppni félagsins er staða efstu para
þessi:
Ingibjörg Halldórsdóttir -
Sigvaldi Þorsteinsson Árni Magnússon - 175
Björn Theódórsson Birgir ísleifsson - 159
Guðjón Sigurðsson Magnús Oddsson - 152
Jón G. Jónsson Eggert Benónýsson - 152
Sigurður Ámundason Gísli Stefánsson - 150
Kristján Ólafsson 147
Síðasta umferðin verður síðan spil-
uð næsta fimmtudag. Þetta er síðasta
Laugardagur 5. maí 1984 6
Aðstæður eru allt aðrar en á fyrra
mótinu þegar hátt á annað þúsund
manns tefldu í alls kyns ranghölum út
um allt Penta hótelið, sem er um leið
gististaður vor. Teflt er á þeim virðu-
lega staþ „Casa de Espana“, húsi sem
er í eigu spænsku ríkisstjórnarinnar,
skemmtilega innréttað á spænska
vísu. Andstæðingar í fyrstu umferð
voru ekki af verri endanum. Jóhann
mætti Spraggett, sigurvegara úr fyrra
mótinu, og ég ungverska stórmeistar-
anum Lajos Portisch. Báðar skákirn-
ar voru tefldar af mikilli hörku þó svo
jafntefli yrði lokaniðurstaðan. Það er
ekki úr vegi að líta á viðureign mína
og Ungverjans. Hingað til hef ég
ekki, fremur en svo margir aðrir,
riðið feitum hesti frá viðureignum
mínum við Portisch, en í þetta sinn
varð loks breyting. Þrátt fyrir hálf
dauðyflislega stöðu í byrjun fóru
hjólin heldur að snúast þegar fram í
sótti.
1. umferð:
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Laios Portisch
Enskur leikur
1. RÍ3 c5 2. c4 Rf6 3. Rc3 Rc6 4.
d4 cxd4 5. Rxd4 e6 6. Rd-b5 d5 7. Bf4
e5 8. cxd5 exf4 9. dxe6 bxc6 10.
Dxd8t Kxd8 11. Hdlt Bd7 12. Rd6
Bxd6 13. Hxd6 Hb8 (Ég hef farið
hratt yfir sögu. Byrjunin hefur þrá-
faldlega komið fyrir í skákum.
Portisch, m.a. í einvígi hans við
Kortsnoj á síðastliðnu ári. Þessi staða
kom upp í 7. skák þeirra og nú lék
Kortsnoj 14. b3. Portisch bendir á
möguleikann 14. Hd2 í ath.semdum
sínum við skákina. Hví ekki að fylgja
hugmyndum hans?) 14. Hd2 He8
(Ekki veit ég hvort 14. leikur hvíts
kom Portisch á óvart. Raunar getur
það varla verið. En það er athygl-
isvert að hann hugsaði í 20 mínútur
um þennan sjálfsagða leik) 15. g3 f3
16. Bh3 fxe2 (Þessi kom eftir 30
mínútna umhugsun. Til greina kom..
16.. Kc7 17. Bxd7 Rxd7 18. 00 fxe2
19. Rxe2 Re5 20. Hc2! .. og hvítur
má vel við una) 17. Bxd7 Rxd7 18.
b3!? (E.t.v. er betra að leika 18. Rxe2
og gæti þá þróun mála orðið svipuð
og í afbrigðinu hér á undan) 18... Kc7
19. Hxe2 Rf6 20. f3.. (Áfskaplega
varfærnislegur leikur. 20. Hxe8
Hxe8t 21. Kd2 Rg4 22. f3 Re5 23.
Hfl.. leiðir til stöðu þar sem mögu-
leikarnir vega jafnt) 20. .. h5 21.
Hxe8 Hxe8t 22. Kd2 Hd8t 23. Ke2
h4 (Skákin hefði getað endað með
jafntefli eftir 23. .. He8t 24. Kd2
Hd8t 25. Ke2 He8t o.s.frv. Þó getur
hvítur teflt áfram með 25. Kc2 eða
24. Kf2 án þess að hætta miklu. Það
er augljóst að Portisch teflir stíft til
vinnings og í því liggja vinningsmögu-
leikar hvíts) 24. g4 .. (varkárari sálir
Guðmundur Sv. Hermannsson
keppni félagsins á starfsárinu og
Uppskeruhátíð verður síðan haldin
föstudagskvöldið 11. maí í Hreyfis-
húsinu. Allir félagsmenn eru boðnir
velkomnir þangað.
Fjórveldakeppnin
Tafl og Bridgeklúbburinn sigraði
örugglega í Fjórveldakeppninni sem
haldin er árlega milli bridgefélaga
Akureyrar, Hafnar í Hornafirði og
Fljótsdalshéraðs.
Að þessu sinni var mótið haldið á
Höfn en félögin skiptast á gestgjafa-
hlutverkinu. Bridgefélag Fljótdals-
héraðs gat ekki sent lið að þessu sinni
og því hljóp Bridgefélag Reyðarfjarð-
ar & Eskifjarðar undir bagga.
Úrslitin voru þau að TBK fékk 308
stig, Bridgefélag Akureyrar 244,