NT - 05.05.1984, Qupperneq 24
Sjónvarp laugard. kl. 21.30:
Næstsíðasti
þátturinn
„Við feðginin"
■ Nú kl. 21.30 verður sýndur
12. þátturinn af „Við feðginin",
og er hann jafnframt sá næstsíð-
asti, því þættirnir eru þrettán.
Feðginin hafa unnið á hjá
áhorfendum sjónvarpsins, og
eru nú orðin heimilisvinir á
mörgum heimlum hér á landi.
Þýðandi er Þrándur Thor-
oddsen, en aðalleikarar eru þau
Joanne Ridley, sem leikur dótt-
urina og föður hennar leikur
Richard O’Sullivan.
■ Feðginin eru leikin af
bresku leikurunum Richard
O’Sullivan og Joanne Ridley
■ Akureyrarkirkja
Útvarp sunnudag kl. 14.15:
„Sæll er sá“
- frá tónleikum í Akureyrarkirkju
■ Tónleikar voru haldnir í
Akureyrarkirkju 25. mars sl. til
heiðurs Jakobi Tryggvasyni og
nefndust þeir „Sæll er sá“.
Útvarpað verður nú úr
dagskrá þessara tónleika kl.
14.15 á sunnudag. Umsjón með
þættinum hefur Unnur Ólafs-
dóttir (RÚVAK)
Útvarp laugardag kl. 11.20:
HRIMGRUND
- Útvarp barnanna
■ Á laugardögum í vetur hef-
ur verið sérstakur barnatími kl.
11.20. Þátturinn er kallaður
HRÍMGRUND - Útvarp barn-
anna. Börnin hafa verið dugleg
að hringja í stjórnendur þáttar-
ins. Þau hafa margt að segja frá
sínum heimahögum og sum
koma með gátur eða vísur í
þáttinn.
Vernharður Linnet, sem er
stjórnandi þáttarins þennan
laugardagsmorgun, sagði að
símalínurnar væru oft rauðgló-
andi hjá þeim, því að svo dugleg
væru börnin að hringja.
- í þessum þætti koma fram
börn sem hafa hringt laugardag-
inn áður, en því miður komast
aldrei öll símtölin að. Við neyð-
umst til að takmarka okkur við
svona 10-15 mínútur fyrir sím-
tölin.
Stundum er slæmt samband
við landsbyggðina, en nú í
þessum þætti eru nokkuð fjöl-
breytt samtöl og víða að af
landinu, bæði frá Egilsstöðum,
Akranesi, Vestmannaeyjum og
héðan úr Reykjavík.
- Ég verð líka með viðtal við
tvo bræður, sem eru í tónlistar-
námi. Þeir eru 11 og 13 ára og
eru að læra á píanó, en spila
svona með á bassa og trommur
í frístundum. Svo tala ég við tvo
15 ára stráka, sem eru í karate.
Þeir hafa æft frá barnæsku og
eru komnir með appelsínugult
belti og fjólublátt, sagði Vern-
harður. Hann bætti við, að
Hrímgrundar-þættir yrðu út
maí, en þá yrði þeim lokið.
Sjónvarp, sunnud. kl. 18.10:
Þrír myndaflokkar
fyrir börnin í stað
„Stundarinnar okkar“
Sjónvarp á sunnudag hefst
með Sunnudagshugvekju að
venju. Sr. Pjetur Þ. Maack flytur
hugvekju.
Þá kemur barnatíminn kl.
18.10. Nú er ekki „Stundin
okkar“ en fluttir verða tveir
teiknimyndaflokkar frá Tékk-
óslóvakíu. Fyrst kemur 4. þátt-
ur af teiknimyndinni „Tveir litlir
froskar". Þýðandi er Jóhanna
Þráinsdóttir, en sögumaður Sig-
rún Edda Björnsdóttir. Því næst
4. þáttur af „Afi og bíllinn
hans“.
„Nasarnir" koma næst. Það
er myndaflokkur um kynjaver-
ur, sem kallast nasar, og ævin-
týri þeirra. Þessi myndaflokkur
kemur frá sænska sjónvarpinu
og er Jóhanna Jóhannsdóttir
þýðandi.
Útvarp laugardag kl. 18.
Miðaftann í garðinum
- með Hafsteini Hafliðasyni
■ Um miðaftan á laugar-
dögum fá hlustendur tækifæri til
að dveljast með hinum þekkta
garðyrkjumanni og þægilega út-
varpsmanni, Hafsteini Hafliða-
syni í eins og stundarfjórðung í
garðinum - hvort sem við förum
með útvarpstækið okkar út í
garð og vinnum að vorverkum,
eða við látum okkur nægja að
fylgjast með honum í huganum.
- Þetta er þáttur sem fjallar
um alla heima og geima, sagði
Hafsteinn, þegar blaðamaður
reyndi að hafa upp úr honum
eitthvað um þáttinn sem við
fáum að heyra þennan miðaft-
an.
- Það er svo margt sem kem-
ur til greina undir þessu nafni
þáttarins. Hægt er að tala um
hvernig á að rækta garðinn sinn,
maður getur horft á og dáðst að
því sem er í garðinum, hægt er
að borða það sem kemur upp úr
garðinum og einnig bara að
njóta þess að vera í garðinum
sínum og láta sér líða vel.
- Þiðgetiðgertþettaíhugan-
um með mér nú, sagði Haf-
steinn, og það verður áreiðan-
lega sólskin í sumar, ég finn það
á mér!
Blaðamaður spurði garð-
yrkjumanninn, hvort hann væri
í þessum þætti nokkuð að reka
á eftir fólki með vorverkin í
garði sínum. Hann svaraði:
„Nei, ég rek ekki á eftir folki, -
en ég svara bréfum og reyni að
leiðbeina um það sem fólk vill
fræðast um, segja því til - án
þess að draga úr því kjark.
Ræða málin svona almennt en
ekki tala bara fagmál og vera
með sérfræðihugleiðingar.
- Ég ræði um allt sem tengist
gróðri á einhvern hátt, ekki
endilega garðagróðri, heldur
einnig í móum og óbyggðum,
nú - og svo koma kannski
einhverjar hugleiðingar mínar
með.
- Ég hafði mjög gaman af
því, sagði Hafsteinn, að fá
kveðu frá sjómönnum úti á
miðum, sem alltaf sögðust
hlusta á þáttinn minn, og njóta
þess mjög vel. Mér fannst mjög
ánægjulegt að heyra, að ég gat
þarna gefið þeim beint jarðsam-
band við móður jörð, þó þeir
væru úti á rúmsjó. Já, það voru
þó nokkrar bátshafnir sem létu
til sín heyra.
Laugardagur
5. maí
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bœn Tón-
leikar. Þulur velur og kynnir. 7.25
Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
tregnir Morgunorð - Jón Isleifsson
talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.) Tónleik-
ar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30Óskalög sjúklinga Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir). Óskalög sjúk-
linga, frh.
11.20 Hrímgrund. Útvarp barnanna.
Stjórnandi: Vernharður Linnet.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.40 Iþróttaþáttur Umsjón: Ragnar
Örn Pétursson
14.00 Listali'f Umsjón: Sigmar B.
Hauksson.
15.10 Listapopp - Gunnar Salvars-
son. (Þátturinn endurtekinn kl.
24.00).
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Framhaldsleikritið - Hinn
mannlegi þáttur - 1. þáttur.
Leikritsgerðin er eftir Bernd Lau
eftir sögu Graham Greene. Þýð-
ingu gerði Ingibjörg Þ. Stephen-
sen. Leikstjóri er Árni Ibsen.
Leikritið er í 6 þáttum. Leikendur:
Helgi Skúlason, Jóhann Sigurðar-
son, Arnar Jónsson, Valdemar
Helgason, Þorsteinn Gunnarsson,
Ævar R. Kvaran, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Þorgrimur Einars-
son, Steindór Hjörleifsson, Bessi
Bjarnason, Rúrik Haraldsson,
Herdis Þorvaldsdóttir, Valur Gísla-
son, Sólveig Pálsdóttir, Gísli Rún-
ar Jónsson. (1. þáttur verður
endurtekinn, föstudaginn 11. þ.m.
kl. 21.35).
17.00 Sfðdegistónlelkar: Sœnsk 19.
aldar tónllst. a. Sex söngvar eftir
Jacob Axel Josephson. Britt-Marie
Aruhn syngur. Carl-Otto Erasmie
leikur með á pianó. b. Strengja-
kvartett i e-moll eftir August Söder-
man. Carin Gille-Rybrant, Per
Sandklef, Gideon Roehr. og Áke
Olofsson leika. c. „Draumarnir" eftir
Adolf Fredrik Lindblad. Sænski út-
varpskórinn syngur. Stjórnandi: Eric
Ericson. Píanóleikar: Lars Roos.
(Hljóðritun frá sænska útvarpinu).
18.00 Miðaftann i garðinum með Haf-
steini Hafliðasyni.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 „Guðs reiði“ Útvarpsþættir í
fjórum hlutum eftir Matthías Jo-
hannessen. I. hluti: „Maður og
myndastytta." Stjórnandi: Sveinn
Einarsson. Flytjendur auk hans:
Þorsteinn Gunnarsson, Borgar
Garðarsson og Guðmundur
Magnússon, sem er sögumaður.
20.00 „Sumar í Salzburg", ópertta
ettir Fred Raymond Einsöngvarar,
kór og hljómsveit flytja útdrátt úr
óperettunni; Franz Marszalek stj.
20.20 Útvarpssaga barnanna: „Vesl-
ings Krummi" eftir Thöger Ðirke-
land Þýðandi: Skúli Jensson. Einar
M. Guðmundsson les (8).
20.40 Fyrir minnihlutann Umsjón:
Árni Björnsson.
21.15 Á sveitalfnunni Þáttur Hildu
Torfadóttur, Laugum I Reykjadal
(RÚVAK).
22.00 „Sendum heim“, smásaga eft-
Ir Gunter Kunert Jórunn Sigurðar-
dóttir les þýðingu sina.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Harmonikuþáttur Umsjón:
Högni Jónsson
23.05 Létt sígild tónlist
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl.
03.00
Laugardagur
5. maí
24.00-00.50 Listapopp (endurtekinn
þáttur frá Rás 1) Stjórnandi: Gunn-
ar Salvarsson.
00.50-03.00 Á næturvaktinni Stjórn-
andi: Kristín Björg Þorsteinsdóttir.
Rásir 1 og 2 samtengdar kl. 24.00
og heyrist þá I Rás 2 um allt land.
Sunnudagur
6. maí
8.00 Morgunandakt Séra Kristinn
Hóseasson prófastur, Heydölum,
flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Létt morgunlög Hljómsveit
Gunnars Hahn leikur þjóðdansa frá
Skáni
9.00 Fréttir
9.05 Morguntónleikar a. Sinfónia i
d-moll eftir Michael Haydn. Enska
kammersveitin leikur; Charles
MacKerras stj. b. „Regina Coeli",
mótetta K. 127 eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart. Agnes Giebel syngur
með Háskólakórnum og Sinfóníu-
hljómsveitinni í Vínarborg; Peter
Rönnefeld stj. c. Hörpukonserl nr.
1. í d-moll op. 15 eftir Nicolas-Char-
les Bochsa. Lily Lashine og Lam-
oureux-hljómsveitin leika; Jean-
Baptiste Mari stj.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suður Þáttur Friðriks Páls
Jónssonar.
11.00 Guðsþjónusta f Safnaðar-
heimili aðventista f Keflavfk
(Hljóðr. 28. f.m.) Prestur: Þröstur
Steinþórsson. Jóna Guðmundsdótt-
ir leikur á pianó. Hádegistónleikar
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.45 Nýjustu fréttir af Njálu Umsjón:
Einar Karl Haraldsson.
14.15 „Sæll er sá“. Dagskrá frá tón-
leikum í Akureyrarkirkju 25. mars
sl. til heiðurs Jakobl Tryggva-
syni. Umsjón: Unnur Ólafsdóttir
(RÚVAK)
15.15 f dægurlandi Svavar Gests
kynnir tónlist fyrri ára. I jjessum
þætti: Klassisk tónlist i flutningi
dans- og djasshljómsveita.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Háttatal. Þáttur um bókmennt-
ir Umsjónarmenn: örnólfur Thors-
son og Árni Sigurjónsson.
17.00 Frá tónleikum Sinfónfuhljóm-
sveitar fslands í Háskólabfól 3.
þ.m.; slðarl hluti Stjórnandi: Jean-
Pierre Jacquillat. Sinfónia nr. 9 f
e-moll op. 95 („Frá Nýja heiminum")
eftir Antonín Dvorák. - Kynnir: Sig-
urður Einarsson.
18.00 Við stýrið Umsjónarmaður: Arn-
aldur Árnason.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Eftir fróttir. Þáttur um fjölmiðl-
un, tækni og vinnubrögð. Umsjón:
Helgi Pétursson.
19.50 Ur Ijóðum Bólu-Hjálmars
Valdimar Lárusson les.
20.00 Útvarp unga fólksins Stjórn-
andi: Margrét Blöndal (RÚVAK)
21.00 Hljómplöturabb Þorsteins
Hannessonar.
21.40 Útvarpssagan: „Þúsund og
ein nótt“ Steinunn Jóhannesdóttir
les valdar sögur úr safninu í þýðingu
Steingríms Thorseinssonar (6).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Kotra Stjórnandi: Signý Páls-
dóttir (RÚVAK) (Þátturinn endurtek-
inn í fyrramálið kl. 10.30).
23.05 Djassþáttur-JónMúliÁrnason
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Laugardagur
5. maí
16.15 Fólkáförnumvegi24.Ábóka-
safni Enskunámskeið I 26 þáttum.
17.20 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
16.30 Enska knattspyrnan
18.10 Fréttaágrlp á táknmáli
18.20 Fréttir og veður — Athugiö
breyttan tíma frétta
18.45 Auglýsingar og dagskrá
19.00 Söngvakeppnl sjónvarps-
stöðva i Evrópu 1984 Bein útsend-
ing um gervihnött frá Luxemburg
þar sem þessi árlega keppni fer nú
fram með þátttakendum frá nær
tuttugu þjóðum. (Evróvision - Sjón-
varpið f Luxemburg)
21.30 Við feðginin Tólfti þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur i
þrettán þáttum. Þýðandi Þrándur
Thoroddsen.
22.00 Elnn, tveir, þrfr (One, Two,
Three) Bandarísk gamanmynd frá
árinu 1961. Leikstjóri Billy Wilder.
Aðalhlutverk: James Cagney, Horst
Bucholz, Arlene Francis og Pamela
Tiffin. Útibússtjóri Coca Cola I Vest-
ur-Berlín og kona hans fá dóttur
forstjórans tll dvalar. Stúlkan leggur
lag sitt við austur-þýskan vand-
ræðagemling og veldur þetta sam-
band útibússtjóranum ómældum
áhyggjum og útistöðum við yfirvöld
austan múrsins. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
23.55 Dagskrárlok
Sunnudagur
6. maí
18.00 Sunnudagshugvekja Séra
Pjetur Þ. Maack flytur.
18.10Tvelr litlir froskar 4. þáttur.
Teiknimyndaflokkur frá Tékkó-
slóvakíu. Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir. Sögumaður Sigrún Edda
Björnsdóttir.
18.15 Afi og billinn hans 4. þáttur.
Teiknimyndaflokkur frá Tékkóslóva-
kíu..
18.20 Nasarnir Myndaflokkur um
kynjaverur, sem kallast nasar, og
ævintýri þeirra. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir. (Nordvision
Sænska sjónvarpið)
18.40 Svona verður gúmmí til Þáttur
úr dönskum myndaflokki sem lýsir
því hvernig algengir hlutir eru búnir
til. Þýðandi og þulur Bogi Arnar
Finnbogason. (Nordvision
Danska sjónvarpið)
19.00 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttlr og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku. Umsjón-
armaður Guðmundur Ingi Kristjáns-
son.
20.55 Norðurlandahúsið í Þórshöfn
Þáttur frá danska sjónvarpinu, sem
geröur var I Færeyjum í fyrrasumar,
en þá var tekið f notkun
Norðurlandahúsið i Þórshöfn. Þýð-
andi Veturliði Guðnason. (Nordvis-
ion - Danska sjónvarpið)
21.55 Nlkulás Nickleby Sjöundi
þáttur. Leikrit I níu þáttum gert eftir
samnefndri sögu Charles Dickens.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.55 Dagskrárlok