NT


NT - 05.05.1984, Síða 30

NT - 05.05.1984, Síða 30
IM \r Laugardagur 5.maí 1984 30 JL .1 íþróttir Æffa tæknina... ■ íslenska landsliðið í hand- knattleik æfír nú á hverjum degi og mun gera það þar til 22. maí. Aðaláherslan er lögð á tækniæf- ingar allskonar. Sá hópur sem nú æfir er sá kjarni sem leikið hefur með landsliðinu í vetur, en leikmennimir sem leika í Þýskalandi geta ekki tekið þátt í þessum æfíngum að Sigurði Sveinssyni undanskildum, en hann er nú væntanlegur til landsins innan fárra daga. Þá getur Páll Ólafsson ekki tekið þátt í þessum æfingum þar sem hann æfir nú á fullu með 1. deildarliði Þróttar í knatt- spyrnu. Kristján Sigmundsson úr Víkingi er nú aftur kominn í landsliðshópinn. Þá hefur Eyj- ólfí Bragasyni einnig verið bætt inní liðið. Þrír unglingalands- liðsmenn munu æfa með liðinu núna, þeir Gylfi Birgisson Þór Vestmannaeyjum, Júlíus Jónas- son Val og Valdemar Grímsson Val. í ágúst mun liðið halda til V-Þýskalands og leika þar við öll sterkustu liðin í „Bundeslig- unni“. í október er síðan Norðurlandameistaramótið í Finnlandi. Sigurður Sveinsson Úrvals notaðir bílar til sölu BIFREIDADilLD SAMBANDSINS HÖFÐABAKKA9 SÍMI 39810 OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA KL. 9—18 (OPIÐ í HÁDEGINU) LAUGARDAGA KL. 13—17 Oldsmobile Cutlas L.S. diesel 1981 ekinn 94.000 km. Allur sem nýr. Tvílitur grænn. Scout II 4 cyl. m/vökvastýri, árg. 1980 ekinn 64.000 km. einn eigandi, gulur. Kr. 375.000.- VW Golf 1980 ekinn 82.000 km rauður, fallegur bíll. Kr. 180.000.- Mazda 626 árg. 1980, ekinn 34.000 km einn eiganc grænn, toppbíll. Kr. 210.000,- U Opel Caravan 1982, ekinn 18.000 km. Sem nýr, blár, beinsk. vökvastýri. Kr. 440.000.- Sigurður Sveinsson þriðji markahæstur í V-Þýskalandi - hefur gert 154 mörk í 25 leikjum ■ „Það eru svona 80-90% lík- ur á að Göppingen verði dæmt niður í aðra deild í handknatt- leiknum vegna skulda félagsins, sem nema 1.3 miiljónum króna marka. Ef sú verður raunin, þá erum við í Lemgo uppi“, sagði stórbomberinn Sigurður Sveins- son í viðtali við NT í gær, en sem kunnugt er leikur hann í þýsku fyrstudeildinni í hand- knattleik með liðinu Lemgo. Verðurðu áfram hjá Lemgo hvort sem þið verðið í 1. eða annari deildinni? „Já. Eg er búinn að skrifa undir ágætan samning til eins árs og það gildir einu í hvorri deildinni liðið er. Ef við föllum þá þjótum við rakleiðis upp á ný. Liðið er nokkuð gott, þó staðan á stigatöflunni sýni kannski eitthvað annað. Við höfum verið fádæma óheppnir og meiðsli hafa svo sannarlega sett strik í reikninginn. Við höfum í mestallan vetur þurft að keyra á sömu 7-8 mönnun- um“, sagði Sigurður. Líkar þér vel þarna ytra? „Já ég er mjög ánægður hér. Þetta er 25 þúsund manna þorp og hér er rólegt og gott að vera“, sagði Sigurður. Þurfið þið ekki að styrkja lið ykkar fyrir næsta vetur ef þið ætlið ykkur stærri hluti en nú í vetur? „Jú og við fáum nokkra nýja leikmenn, samt engar stór- stjörnur, enda fást þær ekki nema fyrir mikla peninga“. Þú hefur náð þér á strik í vetur og ert með markahæstu mönnum ekki satt? „Hvað heldurðu maður? Jú, mér hefur gengið nokkuð vel í vetur og hef gert 154 mörk þegar einn leikur er eftir“. Hvar ertu þá í röðinni yfir markahæstu menn? „Ætli ég sé ekki í þriðja sæti. Efstur er Miljak frá Gunsburg, Júgóslavi“, svaraði Sigurður. Hér heima hefurðu yfirleitt verið notaður eingöngu í sókn, og margir hafa velt fyrir sér af hverju svona stór og stæðilegur maður eins og þú værir ekki notaður í vöminni. Leikurðu vörn þarna úti? „Já ég geri það, í öllum leikjum. Það má segja að ís- lenski landsliðsþjálfarinn hafi ekki ennþá uppgötvað mig sem varnarmann“, svaraði Sigurður að bragði og hló við. „Kannski gerir hann sér grein fyrir því að það vanti eitt tröll í múrinn“. Það með lauk samtali Sigurð- ar við NT og hann bað fyrir kveðjur heim, svona í lokin. ■ Hér liggur Alberto Jangalay í köðlunum eftir rosahögg frá Kid Snowball í hnefaleikakeppni í Ástrah'u fyrir 13 árum. Jangalay lést klukkustundu síðar af völdum höggsins. Varla von að menn greini á um hvort leyfa beri hnefaleika. SugarRay Leonard aftur í hringinn! ■ Sugar Ray Leonard, fyrmm heimsmeistari í boxi í milliþungavigt, hefur ákveðið að hefja keppni að nýju í hnefa- leikum eftir tveggja og hálfs árs hvfld frá þessari umdeildu íþrótt. Leonard tilkynnti að hann væri endanlega hættur í hnefaleikum í nóvember 1982 sex múuðum eftir meiriháttar skurðaðgerð á vinstra auga hans. Nú segja margir að Leonard sé aðeins að þessu vegna pen- inganna. „Pað er ekki pening- anna vegna sem ég hef ákveðið að taka hanskana af hillunni,“ sagði Leonard sem ætlar að keppa við Kevin Howard 11. maí n.k. „Ég er að mörgu leyti mun betri núna heldur en þegar ég keppti síðast. Ég er sterkari og hef þroskast mikið og ég hef sett stefnuna á takmörk sern ég hef ekki enn náð á ferli mínum“, sagði Leonard. „Þetta verður stærsta keppni ferils míns,“ sagði hann einnig og átti auðvitað við sinn næsta slag, gegn Howard. „Það erfiðasta í þessu öllu sam- an er að venjast því að verða laminn að nýju en ég held að það sé nú komið í lag.“ Sem fyrr segir er hann nú ákaft gagnrýndur fyrir að hefja kepni á nýjan leik og margir líta á þetta sem tóma peningagræðgi í Leonard. En ennþá fleiri gagn- rýna hann fyrir að leggja sjón- sína í hættu. „Læknarnir segja að þetta sé allt í lagi og ég trúi þeim algjörlega og er þyrstur i að fara að keppa á nýjan leik. Allir virðast vilja fá að ráða hvað ég geri, ég á að gera þetta og ég á að gera hitt, en hvernig er það er bestu leikurum heims nokkurn tímann sagt að hætta að leika ef þeir eiga möguleika á Óskars-verðlaunum?“ Pjálfari Sugar Rays er ekki í neinum vafa um að Sugar Ray eigi eftir að láta mikið að sér kveða í heimi hnefalekanna. „Hann er betri en nokkru sinni, slær miklu fastar og er allur sterkari. Þið hafið ekki enn séð Sugar Ray í sínum besta ham“, sagði þjálfarinn. Það eru margir vitringar í hnefaleikum sem segja að að- gerðin á vinstra auga hans gæti orðið sálfræðilegur baggi á Leonard í hringnum á föstudag- inn kemur. Hann er alls ekki á sama máli: „Ég hugsa ekkert um augað, ekki eftir að einn fremsti sér- fræðingur heims sagði mér að það væri eins gott og það gæti verið. Ég er sannfærður um að ég er að gera það eina rétta. Ég ætla ekki að sjá eftir því á fertugsaldrinum að hafa ekki gert þetta eða hitt. Ég ætla að taka þetta allt saman núna“, sagði kappinn, kokhraustur að vanda. Hazard arftaki Hoddle ■ Um fátt er nú meira rætt á White Hart Lane í London en það hver komi til með að taka við af Glenn Hoddle sem „heila" Tottenham liðsins. Það þykir jú fullvíst að Hoddle reyni fyrir sér á megnlandi Evrópu á næsta keppnistímabili. Keith Burkinshaw, nú- verandi framkvæmda- stjóri liðsins er ekki í neinum vafa hver að muni verða. „Það þarf ekki að ieita langt og það kostar ekki mikinn pening", sagði Burkinshaw nýverið í viðtali við breskt blað. Burkinshaw á við Mike Hazard, leikmann Totten- ham. „Þrátt fyrir allar stjörnurnar sem eru í liði Tottenham þá er Hazard langbesti alhliða leikmað- urinn, ég er ekki í neinum vafa um það. Hann er jafnvígur á báða fætur, og getur leikið hvar sem er á vellinum. Hann helsti veikleiki hingað til hefur verið sá að honum hættir frekar til að reyna að skreyta leikinn en stjórna honum eins og foringi. En ég held að honum sé nú að verða þetta ljóst“, sagði Burkinshaw. „Þess verður ekki langt að bíða að hann leikur fyrir hönd enska landsliðsins", sagði svo þessi þekkilegi fram- kvæmdastjóri að lokum. Þá vitum við það. Þegar Hoddle yfirgefur Tottar- hann Gott spur, þá verður það á herðar Hazard lagt að stjórna þessu fornfræga liöi. Piquet með bestan tíma ■ Nelson Piquet, Brasi- líumaðurinn fljúgandi, sýndi frábæra takta á Brabham bfl sínum í æf- ingahring á Impla braut- inni á Italíu í gær. Piquet, sem hefur ekki enn fengið stig í Grand Prix keppn- inni, setti brautarmet sem hljóðar upp á 1:35:493 mín. Sjálf keppnin fer fram á sunnudaginn. Al- ain Prost frá Frekklandi var ekki með mikið verri tíma, keyrði þetta, eða ók öllu heldur á 1:36:613. Prost hefur forystu í Grand Prix keppninni og hefur hlotið 15 stig. Lárus áfram í Belgíu? ■ „Ef Waterschei nær samkomulagi við belgíska liðið þá reikna ég með að ganga frá því á mánudag" sagði Lárus Guðmunds- son í samtali við NT í gærkvöld. Tvö lið keppast nú um að ná Lárusi í sínar her- búðir, annars vegar belg- ískt 1. deildarfélág og hins vegar „Bundesíiguliðið“ v-þýska, Bayer Uerding- en. „Ég er búinn að semja við bæði liðin, Waterschei á aðeins eftir að semja við þau og á meðan þeir samn- ingar liggja ekki fyrir þá get ég ekkert gert.“ „Ef belgíska liðið nær ekki samkomulagi við Waterschei, þá verður að öllum líkindum samið við Uerdingen á þriðjudag" sagði Lárus Guðmunds- son að lokum.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.