NT - 05.05.1984, Qupperneq 31
Laugardagur 5.maí 1984 31
lii’
Kolbeinn
og Bjarni
eru báðir
úr leik
■ Bjami Friðriksson og
Kolbeinn Gíslason, júdó-
kappar voru óheppnir
með andstæðinga í fyrstu
umferðinni á Evrópumót-
inu í júdó sem nú fer fram
í Liege í Belgíu.
Kolbeinn keppti í +95 kg
flokki og lenti á móti
Raska, en sá lenti í öðru
sæti í þessum flokki á
síðasta heimsmeistara-
móti. Var búist við auð-
veldum sigri Raska en
Kolbeinn stóð sig sem
hetja og var yfir í viður-
eigninni nær allan tímann,
nema í lokin en þá náði
Raska að halda Kolbeini í
gólfinu og vann naumlega.
Var þetta skemmtileg
viðureign.
Bjarni Friðriksson lenti
á móti Mick Kokotaylo
frá Bretlandi og tapaði
eftir mikla baráttu. Þeir
Bjarni og Kokotaylo urðu
jafnir í þriðja sæti á opna
breska meistaramótinu.
Bretinn lenti skömmu síð-
ar á móti sigurvegaranum
þarna í Belgíu og endaði í
10,-ll.sæti.
Á sunnudag keppir
Bjarni í opna flokknum
og eru töluverðar vonir
bundnar við kappann þar.
Stórleikur Ásgeirs
gegn Offenbach!
-gerði tvö mörk í 5-1 sigri liðsins í gærkvöldi
■ „Það er ekki nokkur vafi á því að besti
miðvallarleikmaðurinn í V-Þýskalandi í
dag er íslendingurinn Ásgeir Sigurvins-
son“, sagði þýski sjónvarpsþulurinn í þýsku
sjónvarpsstöðinni ZDF er sýnt var úr leik
Stuttgarts og Kicker Offenbach í gær-
kvöldi. Ásgeir var potturinn og pannan í
öllum leik Stuttgart liðsins og átti rétt einu
sinni enn stórleik. Gerði tvö mörk í 5-1 sigri
liðs síns.
„Það eru engin takmörk fyrir því hvað
þessi leikmaður getur“, sagði þulurinn
ennfremur. „Jafnvel þó Offenbach hafi sett
leikmann til höfuðs Ásgeiri í leiknum“.
Þulurinn sagði einnig að þó að Offenbach
liðið væri ekki mjög sterkt þá væri það ekki
á nokkurs manns færi að stoppa Ásgeir
Sigurvinsson þegar hann væri í þessum ham
sem hann er í um þessar mundir.
Já slík var hrifning þýska fréttaþularins
eftir leik Stuttgart og Offenbach í gær-
kveldi.
Stuttgart liðið kom mjög ákveðið til leiks
því að miklu máli skiptir hvernig markatala
efstu liðanna er og hún gæti reyndar ráðið
úrslitum.
Sigurinn festi Stuttgart liðið mjög á toppi
deildarinnar því í dag á Bayern Munchen
erfiðan leik gegn Hamburger Portverein á
útivelli.
Offenbach liðið lagðist í vörn þegar+'
upphafi og ætlaði greinilega að leika upp á
jafntefli.
Þrátt fyrir látlausa sókn í upphafi leiksins
þá var það ekki fyrr en á 28. mínútu sem
leikmenn Stuttgart gerðu fyrsta mark leiks-
ins. Makan lék einn í gegnum vörn og
skoraði af öryggi.
Á 32. mínútu kom annað mark
Stuttgart. Bakvörðurinn Scháefer gaf lag-
lega fyrir þar sem Buchwald, stóð óvaldað-
ur og skallað glæsilega í vinstra markhorn-
ið, efst.
Þriðja mark Stuttgart kom aðeins fjórum
mínútum síðar. Reichert var þar að verki
með glæsilegum skalla.
Staðan í hálfleik var því 3-0 og það leit
út fyrir stórsigur Stuttgart liðsins.
í upphafi síðari hálfleiks fékk Stuttgart
vítaspyrnu og hana tók auðvitað okkar
maður, Ásgeir Sigurvinsson og skoraði
örugglega, 4-0.
Skömmu síðar tókst Offenbach liðinu að
klóra aðeins í bakkann í einni af sínum
öífáu sóknarlotum. Staðan var þá 4-1.
Fimmta mark Stuttgart kom svo á 82.
mínútu og þar var Ásgeir Sigurvinsson að
verki, skoraði af stuttu færi eftir góðan
samleik með Buchwald varnarmanni.
Stórsigur Stuttgart því staðreynd 5-1.
Þýski sjónvarpsþulurinn hóf enn þuluna
um hve mjög Bayern Munchen hlyti að sjá
eftir þessum frábæra stjórnanda, Sigurvins-
syni. Þula sem hefur nú heyrst í tvö ár
samfleytt.
Gengi Ásgeir við markaskorun undan-
farið hefur verið með eindæmum. í síðustu
6 leikjum hefur kappinn gert mjög mörk. I
síðustu tveimur leikjum hefur hann gert
fjögur mörk.
Þjálfari Stuttgart, Helmut Benthaus, lét
hafa það eftir sér um daginn að það eina
sem Ásgeir vantaði væri að skora FLEIRl
mörk. Það má segja að Ásgeir hafi tekið
Benthaus á orðinu því nú telst það til
tíðinda ef hann þrumar knettinum ekki í
net andstæðinganna.
ÁBURÐARDREIFARAR
Nú líöur að vorverkum
Við mælum með NIEMEYER dreifara
NIEMEYER er sterkur og
endingargóður
og góð reynsla er auðvitað besta
auglýsingin
Veldu þér vandaðar vélar
Verð kr. 23.934.-
Góðir greiðsluskilmálar
Sími 22123. Pósthólf 1444. Borgartúni 26
Hvenaei
Svaliífe
sinn?
^PPelsinusafaTblf^ af hreinum
Svala, sem sÁiht ma9ni af
™ars 1984? h'seldi á 'slandi í
FYRIRTVO! auk þess eru 25 aukavinningar,
hver þeirra kassi af Svala 1 /4 Itr. fernum
Ertu ekki til í Svalandi Sumarferð til Flórída í tvær vikur?
Vertu með í Svala sumargetrauninni, það veitir þér möguleika á að dveljast á
Flórída í tvær vikur með ...? þú ræður.
Nafn:
Simi
Heimilt:
Sendið svörin til: Sol hf. „Svala sumargetraun" Þverholti 19 105 Reykjavík.
Svörin þurfa að berast okkur fyrir kl. 5 e.h. þriðjudaginn 8. maí n.k.
.. . 'fe'v ' l+FRNUNNJERti
. MG AP
'áW OimiNi