NT - 15.05.1984, Page 10
é r , » ,4, , S * . Þriðjudagur 15. maí 1984 10
LlL
Gestur Guðfinns-
son, blaðamaður
Fæddur24. sept. 1910
Dáinn 4. maí 1984
■ Þann 4. maí s.l. lést á
Borgarspítalanum í Reykjavík
Gestur Guðfinnsson, blaða-
maður.
Gestur var Dalamaður, fædd-
ur að Litla-Galtardal á Fells-
strönd í Dalasýslu, þann 24.
september 1910. Foreldrar hans
voru Guðfinnur Jón Björnsson
bóndi þar og kona hans Sigur-
björg Guðbrandsdóttir.
Gestur ólst upp hjá foreldrum
sínum að Litla-Galtardal. Hann
var bóndi um 10 ára skeið á
árunum 1933-1943, um þrjú ár
að Litla-Galtardal, en sjö að
Omrsstöðum í Klofningshreppi.
Gestur var áhugamaður um
félagsmál þrátt fyrir það að
hann væri maður hlédrægur og
sótti ekki eftir trúnaðarstörfum.
Þá sóttu samferðamenn hans
eftir forystu hans í félagsmálum
og trúnaðarstörfum, er nú mun
verða greint. Hann var kjörinn
oddviti hreppsnefndar Klofn-
ingshrepps árið 1937. Það er
árið eftir að hann fluttist í það
sveitarfélag og gegndi því til
1942. Formaður Ungmennafé-
lags Vonar í Klofningshreppi
1936-1943. í stjórn UMS Dala-
manna og Búnaðarfélags Klofn-
ingshrepps um árabil. Kennari
var Gestur í Fellsstrandar- og
Klofningsskólahéraði í nokkur
ár.
Eins og ljóst er af því, sem að
framan er sagt, starfaði Gestur
mikið að félagsmálum meðan
heimili hans var í Dalasýslu.
Árið 1943 verður breyting á
högum hans. Þeir bræður Gest-
ur og Matthías Hildigeir hætta
búskap og flytja til Reykjavíkur
ásamt móður þeirra og systrum,
sem með þeim höfðu búið á
Ormsstöðum. Það voru þær Ósk
og Pálína. Guðfinnur faðir
þeirra lést síðasta ár þeirra á
Ormsstöðum, 1942. Sigurbjörg
móðir þeirra, sem hélt með
þeim heimili einnig eftir að til
Reykjavíkur kom, lést 1958.
Hin síðari ár bjó Gestur með
systrum þeim er hér hafa nafn-
kenndar verið.
Gestur réðist sem afgreiðslu-
stjóri að Alþýðublaðinu 1945
og síðar sem blaðamaður við
sama blað til ársins 1979. Þá lét
hann af störfum vegna heilsu-
brests.
Eftir að Gestur var farinn að
starfa í Reykjavík tók hann upp
þráðinn er frá var horfið í
Dölum á sviði félagsmála. Hann
gerðist félagi í Breiðfirðinga-
félaginu. M.a. gerðist hann
þátttakandi í tafldeild þess, sem
fyrr var hann þar kjörinn til
forustu. Árið 1953 var hann
kjörinn í stjórn tafldeildar
Breiðfirðingafélagsins. Árið
1961 var hann kjörinn í stjórn
Félags ísl. rithöfunda.
Gestur starfaði mikið á veg-
um Ferðafélags fslands, eftir að
hann fluttist til Reykjavíkur.
Meðal annars var hann farar-
stjóri hjá Ferðafélagi íslands
um margra ára skeið. Urðu
margir af þeim er fararstjórnar
hans nutu, til þess að minnast
þeirra ferða vegna ágætrar farar-
stjórnar. Gestur hafði margt til
brunns að bera sem fararstjóri.
Samviskusemi hans og ná-
kvæmni í störfum yfirleitt var
þess valdandi að hann kynnti
sér vel svæði þau er hann átti að
sjá um leiðsögu um. Auk þess
var til staðar hjá honum góð
þekking í landa- og grasafræði.
í því sem getið er hér að
framan frá starfsævi Gests Guð-
finnssonar, hefur þess ekki ver-
ið getið, sem halda mun nafni
hans lengst uppi. Gestur var
hvort tveggja gott skáld og vel
ritfær á óbundið mál.
Eftir Gest hafa komið út
fjórar ljóðabækur. Auk þess
tvær ritgerðir um Þórsmörk,
sérprentanir úr Árbók Ferðafél-
ags íslands. Ritgerð um Steina-
tök, aflraunasteina. Sérprentun
úr Farfuglinum. Gestur var f
ritstjórn Farfuglsins frá 1962.
Auk þess sem hér hefur verið
talið birtist eftir Gest Guðfinns-
son fjöldi greina og Ijóða í
blöðum og tímaritum. Gesti
voruveitt listamannalaun 1956.
Gestur Guðfinnsson var mað-
ur mjög vel gefinn. Það sanna
ljóð hans og aðrar ritaðar frá-
sagnir. Og svo hitt hvað víða
hann kom við og leysti góð störf
á sviði félagsmála, sem sam-
ferðamenn hans munu lengi
njóta.
Hitt þekktum við, sem
höfðum kynnst honum náið,
hvað háttvísi hans, hógværð og
skapfesta voru sterkir þættir í
manngerð hans. Við kveðjum
Gest Guðfinnsson sem sérstakri
virðingu og þakklæti.
Blessuð sé minning hans.
Halldór E. Sigurðsson.
Helgi Haraldsson
Hrafnkelsstöðum
Fæddur 12. júní 1891
Dáinn 27. apríl 1984
En bót er oss heitið, efbilar ei dáð,
Afbeisku hið sœta má spretta,
Af skaða vér nemum hin nýtustu ráð,
Oss neyðin skal kenna f>að rétta,
Og jafnvel úr hlekkjunum sjóða má sverð
/ sannleiks og frelsisins ftjónuslugerð.
Með vorskipum árið 1870
bárust hingað til lands Ný Fé-
lagsrit með „Vorhvöt" Stein-
gríms á forsíðu. Þá var þjóð-
hátíð í nánd. Andi þessa dýrð-
lega ættjarðarljóðs sveif yfir
vötnunum að loknum mestu
harðindum 19. aldar árið 1891,
þegar Helgi Haraldsson var bor-
inn í þennan heim. - Eftir
margra alda áþján var dögun í
nánd og bjarmi nýrrar aldar gaf
fátækri og umkomulausri þjóð
fyrirheit um frelsi. Ekkert ætt-
jarðarljóð dáði Helgi meir en
þetta og hann lifði að sjá hina
nýju aldarsól rísa.
Hann var fæddur á Hrafnkels-
stöðum og ól þar allan sinn
aldur. Sonur hjónanna Haralds
Sigurðssonar frá Kópsvatni og
Guðrúnar Helgadóttur frá Birt-
ingaholti. Afarnir báðir synir
Magnúsar Andréssonar alþing-
ismanns í Syðra-Langholti. En
amman, móðir Guðrúnar, var
Guðrún Guðmundsdóttir
bónda í Birtingaholti, en hennar
móðir var Arndís Einarsdóttir
Bjarnasonar bónda í Bryðju-
holti og Guðrúnar Kolbeins-
dóttur prests frá Miðdal.
Ég, sem þessar línur rita,
kom hingað í þessa sveit árið
1942. Þá var Helgi kominn yfir
miðjan aldur, orðinn fimm-
tugur. Þekki ég því ekki nema
af afspurn æviferil hans fram að
þeim tíma. Hér verðurþví ekki
rætt um búskapar-og kynbóta-
starfsemi hans í sauðfjár- og
kúastofnum. Aðeins skal þó hér
minnst á eina kú sem landsfræg
hefur orðið og nefnd hefur verið
Huppa frá Kluftum. En aðrir
þekkja betur það starf sem hann
innti af hendi á þeim vettvangi
af elju og miklum metnaði fyrir
sveit sína.
Helgi var eitt sinn spurður
hvort hann mundi nú ekki hafá
viljað verða annað en bóndi.
Hann svaraði „Ekki vil ég neita
því, meira gaman hefði ég haft
af því að læra eitthvað annað en
búfræði. En slíkt var ekki hægt.
Það var ekki um að tala. Auk
þess batt ég strax tryggð við
sveitina mína og Hrafnkels-
staði.“
Tvítugur að aldri útskrifaðist
Helgi búfræðingur frá Hvann-
eyri. Það má geta þess hér, að
auk búfræðinámsins var einnig
kennd íslenska. Og í einum
slíkum tíma var Helgi kallaður
upp þá er rætt var um íslend-
ingasögur. Það brá mörgum í
brún þegar hinn feimni og
óframfærni piltur úr Hreppun-
um stóð upp og las þeim Njálu
nærri orðrétt utanbókar. Það
fór ekki hjá því, að hann hækk-
aði í áliti.
Þegar Helgi kom heim frá
Hvanneyri með eflda trú á
framtíð landbúnaðar og ís-
lenskra sveita, gerðist hann
virkur í hverskonar félagsstafi
heima í sveit sinni. Hér skulu
þau störf ekki upp talin hvernig
hann varð á þeim árum fljótlega
formaður ungmennafélagsins.
Um það segir hann í bókinni
„Engum er Helgi líkur“. „Þá
var mitt mesta áhugamál að láta
fólkið kynnast sveitinni sinni og
sögu hennar. Ég taldi að
átthagaástin væri sterkasti þátt-
urinn í ættjarðarástinni, sem
mikið var haldið að unga fólkinu
í gamla daga. Margt var rætt á
fundum um bókmenntirnar,
fornar og nýjar. Þetta leiddi til
aukinnar söguskoðunar og
söguþekkingar og þá fyrst og
fremst sögu þessarar sveitar.“
Þessi orð lýsa vel þeim vorhug,
sem aldamótakynslóðinni var
blásið í brjóst og Helgi varð-
veitti alla ævi sína.
Þrítugur að aldri árið 1921 er
Helgi valinn af sveitungum sín-
um til þess að fara norður í
Þingeyjarsýslu eða norður í
Mývatnssveit til að læra
fjárrækt. Það má segja að hann
ávaxtaði pund sitt vel. Kom
suður árið eftir með 10 gimbrar
til kynbóta. En hann gat lært
þar fleira og hann lét það ekki
undir höfuð leggjast. Á síðast-
liðinni öld hafði þar risið mikil
menningaralda, fyrst á sviði
verslunar og félagsmála en síð-
an í skáldskap og andlegum
efnum. Þar voru því, á þessum
árum, margir ljóðasmiðir og
málvöndun jafnan í heiðri höfð.
Má telja víst að þar hafi Helgi
fengið veganesti sem dugði hon-
um oft vel á hans löngu lífsleið.
Árið 1928 tekur Helgi við búi
á Hrafnkelsstöðum og býr
félagsbúi með Sigríði systur
sinni og manni hennar Sveini
Sveinssyni til 1951. Síðan býr
hann einn til 1966. Hættir þá 75
ára gamall og afhendir Haraldi
systursyni sínum jörðina. Síðan
bjó hann með Sigríði systur
sinni við frábæra umönnun
hennar. Var yfirleitt með góða
heilsu þar til nú síðustu árin að
af honum dró, þar til yfir- lauk er
hann vantaði fáar vikur í 93 ára
aldur.
Það sem nú hefur verið sagt
er saga bóndans Helga Haralds-
sonar aðeins á ytra borði. En þá
er eftir að lýsa því, sem mun
halda nafni hans lengst á lofti,
ef til vill lengur en margra
samtíðarmanna hans. Hann var
víðlesinn í íslenskum bók-
menntum. Kunni ógrynni lausa-
vísna og hafði ljóð aldamóta-
skáldanna oft á takteinum. En
samt var hann opinn fyrir nýjum
straumum í skáldskap eins og
þegar skáldið frá Fagraskógi,
Davíð Stefánsson, kom með
hressandi andblæ nýrrar aldar
inn í skáldskapinn, þessi „gleð-
innar sólbrenndi sonur og sog-
anna fósturbarn“. „Skáldið mitt
dó í gær,“ varð Fíelga að orði
eftir að hafa frétt lát Davíðs. Og
nú getur hann eflaust gert orð
skáldsins að sínum:
Pví get ég kvatl mín gömlu föðurtún
án geigs og trega, þegar yfir lýkur,
og hugur leitar hcerra fjallsins brún,
og heitur blterinn vanga míná strýkur.
1 lofti blika Ijóssins helgu vé
og lýsa mér og vinum mínum öllum.
Um himindjúpin horft ég og sé
að hillir uppi land með hvítum fjöllum.
Eins og fyrr getur bar Helgi
mikla virðingu fyrir íslenskri
tungu og tignaði hana, enda
málhagur vel og ritfær í besta
lagi. Urðu sumar setningar hans
fleygar. Mun þar mjög hafa
gætt áhrifa frá móðurbróður
hans, skólastjóranum sr. Magn-
úsi Helgásyni. Alþekkt er þekk-
ing Helga og kunnátta í íslend-
ingasögum og þá sér í lagi í
listaverkinu Njálu. Þangað sótti
hann líka styrk í málfar sitt og
framsetningu. Máishættir henn-
ar og spakmæli léku honum oft
á tungu. í Heimskringlu segir
Snorri Sturluson um Óðin:
„Hann talaði svo snjallt og slétt,
að öllum, er á heyrðu, þótti það
eina satt.“ Þessi fræga setning
var Helga oft nærtæk, enda
mátti segja, að hún ætti við
hann sjálfan með nokkrum
hætti. Hann talaði jafnan blaða-
laust og ræður hans þóttu stund-
um frábærar við ýmis tækifæri.
Það skipti hann ekki miklu máli,
hvort allt sem sagt var rúmaðist
innan rökfræðinnar, það var
honum jafn heilagur sannleikur
fyrir því. En hin heita glóð innri
tilfinninga olli því, að áheyrend-
ur hrifust með.
Eins og kunnugt er, eru
höfundar íslendingasagna
ókunnir, en það liggur í mann-
legu eðli að grafast fyrir um
rætur hins óþekkta. Fyrir miðja
þessa öld tóku fræðimenn að
Íeita þeirra. Helgi tók þátt í
þeim leik og taldi Snorra Sturlu-
son höfund Njálssögu. Hann
fór þar ekki troðnar slóðir,
deildi þar á aðrar kenningar og
var ekki myrkur í máli við hvern
sem í hlut átti. Hvort hann hafi
valdið öllu, sem hann fór með,
verður hér ekki dæmt um, en
hann skrifaði oft af íþrótt og
réðst helst á garðinn þar sem
hann var hæstur, enda alltaf
eftir því tekið.
Ég vil að endingu geta þess,
að ég var oft á annarri skoðun
en Helgi. Við vorum ekki af
sömu kynslóð, skoðanir féllu
ekki saman og það allra síst
varðandi Njálu. Þó veit ég vel,
að þekking mín á íslendinga-
sögum náði skammt á móts við
hans. Síðastliðinn vetur var
fluttur vikulega í útvarpið þátt-
ur er nefndur var „Nýjustu frétt-
ir af Njálu“. Helgi naut þess að
hlusta, þótt hann ekki lifði það
að heyra allt til enda. En enginn
varð þar, því miður, til þess að
standa fyrir skoðunum hans.
Hann hlustaði rólegur á allt sem
fram fór, og það á skoðanir
andstæðar hans, - en sagði ein-
ungis: „Ég er búinn að segja
mitt síðasta orð.“ En nú hefur
það gerst að einn þátturinn
hefur verið helgaður minningu
Einars Ölafs Sveinssonar
prófessors, sem nýlátinn er. I
næsta þætti var Helga minnst á
sama hátt, sem Njálufræðings.
Þarna var íslenska bóndans,
alþýðufræðimannsins, minnst
við hlið menntamannsins, mesta
Njálufræðings þessara tíma.
Það segir sína sögu og þökk sé
þeim sem að því stóðu.
Hér er genginn einn síðasti
fulltrúi aldamótakynslóðarinn-
ar sem bar ævilangt í brjósti
eldmóð hennar og bjartsýni. Og
hann er jafnframt einn síðasti
fulltrúi þeirrar bændamenning-
ar, sem fornritin eru frá runnin,
og þjóðin - að sagt er - á tilveru
sína að þakka. Ótrauður stóð
hann vörð um hana til hinstu
stundar. Því skal hans minnst
sem verðugt er, með þökk fyrir
ævistarfið.
Sigurður Sigurmundsson
Hvítárholti
t
Andrés Andrésson,
bóndi,
Berjanesi, Austur Eyjafjöilum,
lést aðfaranótt 14. maí á Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi.
Fyrir hönd vandamanna.
Marta Guðjónsdóttir.
Faðir okkar og tengdafaðir
Eiríkur M. Þorsteinsson,
Kársnesbraut 28,
Kópavogi,
lést að morgni sunnudagsins 13. maí í Landspítalanum.
Börn og tengdabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför
Sigurfinns Guðmundssonar,
Hæðarenda.
Maren Eyvindsdóttir,
Svanhildur Sigurfinnsdóttir, Grimur Davíðsson,
Eyvindur Sigurf innsson, Anna Garðarsdóttir,
Guðmundur Rafn Sigurfinnsson,
Laufey Sigurfinnsdóttir, Haraldur Haraldsson,
Birgir Sigurf innsson, María Svava Andrésdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Alúðar þakkir fyrir hluttekningu við fráfall
dr. Einars Ólafs Sveinssonar,
prófessors.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hvítabandsins.
Sveinn Einarsson, Þóra Kristjánsdóttir,
Ásta Kristjana Sveinsdóttir.
Bændaferð til írlands
Örfásæti eru laus í bændaferðtil írlandsdagana
13.-25. júní.
Gist verður á mjög góðum hótelum. Farið verður
víða um og margir áhugaverðir staðir heimsóttir.
Verð 21.850 kr.
Nánari upplýsingar hjá Upplýsingaþjónustu
landbúnaðarins í síma 19200 eða hjá Sam-
vinnuferðum/Landsýn.