NT - 15.05.1984, Síða 11
lít
Þríðjudagur 15. maf1S84 11
Yfiriýsing frá Baráttusamtökunum fyrir stofnun Kommúnistaflokks:
Dómsúrskurðurinn
nálgast að vera hneyksli
I íslenskri réttarsögu
■ Það sem öðru fremur verður
að teljast mælikvarði á það að
hve miklu leyti tiltekið ríki er
réttarríki, er það hversu vel
dómar réttarkerfisins eru
grundaðir, sjálfum sér sam-
kvæmir og rökstuddir á grund-
velli staðreynda í viðkomandi
máli.
í febrúarmánuði síðastliðn-
um var í skiptarétti Reykjavíkur
kveðinn upp dómur í erfðamáli,
sem Baráttusamtökin fyrir
stofnun Kommúnistaflokks eiga
hlut að. Mál þetta fjallaði um
ráðstöfun á dánarbúi Sigurjóns
Jónssonar, sem bjó að Bolla-
götu 12 í Reykjavík og lést 21.
maí 1964. Samtök okkar gerðu
kröfu til arfstöku eftir Sigurjón
samkvæmt erfðaskrá sem hann
gerði 19. apríl 1961. í þessari
erfðaskrá mælir Sigurjón svo
fyrir að húseign hans skuli verða
„fræðslu- og menningarstofnun
á vegum Sameiningarflokks al-
þýðu, Sósíalistaflokksins og
starfa jafnan í anda sósíalism-
ans, eins og hann er túlkaður af
aðalhöfundum hans, Marx,
Engels og Lenín.“ Síðar í erfða-
skránni segir m.a.: „Verði Sam-
einingarflokkur alþýðu, Sósfal-
istaflokkurinn lagður niður, eða
klofni hann í fleiri flokka, starfi
stofnunin jafnan undir stjórn og
á vegum þess flokks, sem skipar
sér í hina alþjóðlegu fylkingu
marxísk-lenínískra flokka og er
viðurkenndur af henni.“ Á þess-
um forsendum gerðu Baráttu-
samtökin fyrir stofnun Komm-
únistaflokks tilkall til arfstöku
því að ekkert kemur fram í
málinu, sem mælir gegn því að
í stað flokks komi flokksbygg-
ingarsamtök. Það er aðeins
formsatriði sem ekki snertir inn-
tak erfðaskrárinnar.
Dómsforsendur
langsóttar og
mótsagnakenndar
Niðurstöður dómsins voru í
höfuðatriðum á þann veg að
umrædd erfðaskrá var úr-
skurðuð gild en samtökin voru
ekki álitin uppfylla kröfur erfða-
skrárinnar til arfstöku. Þessi
síðarnefndi þáttur dómsúr-
skurðarins er svo fáránlegur að
hann nálgast að vera hneyksli í
íslenskri réttarsögu. Ekki að-
eins er niðurstaðan röng og
óréttlát, heldur eru dómsfor-
sendur langsóttar og mótsagna-
kenndar og að ýmsu leyti byggð-
ar á fullyrðingum úr lausu lofti
í stað rannsókna á hlutlægum
staðreyndum.
Tökum nokkur dæmi:
Höfuðrök dómsins eru þau
að þeir flokkar, sem hafa tengsl
við Sovétríkin, séu sú eina „al-
þjóðlega fylking“, sem átt geti
verið við í erfðaskránni, og að
stefna BSK sé of ólík stefnu
Sósíalistaflokksins. Varðandi
fyrra atriðið segir svo í dómsúr-
skurðinum um samstarf sovéska
flokksins og annarra flokka:
„Frá því um miðjan sjötta
áratug aldarinnar var formlegt
samstarf þessara flokka fólgið í
því, að halda sameiginlegar ráð-
stefnur, þar sem sameiginleg
afstaða var mörkuð. Slíkar ráð-
stefnur komu til að mynda sam-
an í Moskvu í nóvember 1957
og í sama mánuði 1960. Þessi
flokkahópur þykir einn geta
verið sú alþjóðlega fylking
marxísk-lenínískra flokka, sem
um er rætt í erfðaskránni, og
viðurkenning af hennar hálfu
fólst í að flokki var boðin þátt-
taka í alþjóðlegum ráðstefnum
kommúnista- og verkalýðs-
flokka, en svo heita þessir fund-
ir fullu nafni.“
í fyrsta lagi gefur dómurinn í
skyn með orðalaginu „til að
mynda“ að þessir fundir hafi
verið fleiri og jafnvel skapast
um þá föst hefð. Svo er þó ekki
því að þessir fundir urðu aldrei
fleiri en þessir tveir og kom
fram á þeim djúpstæð sundrung
vegna vaxandi áhrifa endur-
skoðunarstefnunnar. Síðan
1960 hafa þessir fundir því legið
niðri og er því erfitt að sjá
hvernig nokkur flokkur hefði
hugsanlega átt að geta fengið
þá viðurkenningu, sem sam-
kvæmt dómnum er krafist til
arfstöku í stað Sósíalistaflokks-
ins í máli þessu.
í öðru lagi er sú fullyrðing
dómsins að „þessi flokkahópur
þyki einn geta verið sú alþjóð-
lega. fylking marxísk-lenínískra
flokka, sem um er rætt í erfða-
skránni“, algerlega úr lausu lofti
gripin, og byggist ekki á neinu
nema tilgátu eins vitnis um að
Sigurjón hafi líklega átt við þá.
Sigurjón gat hins vegar ekki
vitað hvað gerst hefði 20 árum
eftir að hann lést. En á þessum
tíma hefur einmitt orðið lýðum
ljóst að þessir flokkar hafa snúið
baki við marxismanum-lenín-
ismanum og kapítalisminn hef-
ur verið endurreistur í þeim
löndum þar sem þeir ráða ríkj-
um að Álbaníu undanskilinni.
Þetta er staðreynd sem hlutlæg-
ar upplýsingar staðfesta.
Ekki byltingarsinni
í dómsúrskurði segir síðan að
Sigurjón hlyti að hafa orðað |
erfðaskrá sína öðruvísi ef hann
hefði viljað að bróðurflokkur
Flokks Vinnunnar í Albaníu
tæki eftir hann arf. Þetta er
fráleitt því að þegar erfðaskráin
var gerð höfðu Sovétríkin ekki
enn slitið sambandinu við Al-
baníu og ekkert benti til þess að
albanski flokkurinn myndi hafa
þá sérstöðu sem síðar varð ljóst.
Auk þess verður það að segjast
að uppgjörinu við sovésku
endurskoðunarstefnuna var í
raun ekki lokið fyrr en langt var
liðið á 7. áratuginn og í sumum
löndum jafnvel enn seinna, en
fram á sjónarsviðið hefur komið
ný marxísk-lenínísk hreyfing.
Varðandi síðara atriðið um
mismuninn á stefnu Sósíalista-
flokksins og BSK er rétt að
vitna til skriflegra athugasemda
samtakanna við greinargerð
gagnaðila í málinu:
„Hvað varðar muninn á
stefnu Sósíalistaflokksins og
BSK þá var hann auðvitað þó
nokkur. Þess ber þó að geta að
allt skeið Sósíalistaflokksins var
stefna hans að breytast og þró-
aðist frá stefnu Kommúnista-
flokksins til þeirrar stefnu, sem
Alþýðubandalagið fylgir í dag.
Stórt skref í þessari þróun var
einmitt bæklingurinn „leið ís-
lands til sósíalisma“, sem kom
út um það leyti sem Sigurjón
Jónsson lést. Sú stefna sem
mörkuð er í þessum bæklingi
átti einmitt stóran þátt í upp-
lausn flokksins eins og Sigurjón
virðist hafa séð fyrir. Það er
hins vegar ekkert sem bendir til
þess að hann hafi búist við því
að eftir hugsanlega upplausn
eða klofning Sósíalistaflokksins
kæmi annar alveg eins flokkur.
Þvert á móti hljóta að koma
ólíkir flokkar út úr slíku upp-
gjöri. Þess vegna verður að líta
svo á að fyrirmæli Sigurjóns um
ráðstöfun arfsins ef Sósíalista-
flokkurinn yrði lagður niður
eða klofnaði, hafi fyrst og
fremst pólitískt gildi en minna
máli skipti hvort formlega er
um að ræða flokk eða samtök.
Þess vegna verður að leggja til
grundvallar hvort BSK séu
marxísk-lenínísk samtök og
hvort þau starfa í anda Marx,
Engels og Leníns en ekki að hve
miklu leyti þau líkjast Sósíal-
istaflokknum."
Þessum röksemdum gengur
dómurinn alveg fram hjá.
í úrskurðinum segir hins veg-
ar að Sigurjón hafi ekki verið
fylgismaður byltingarstefnu,
samkvæmt framburði eins
vitnis. Orðalag erfðaskrárinnar
mælir alfarið gegn þessari full-
yrðingu dómsins, því hvernig er
hægt að starfa í anda Marx,
Engels og Leníns án þess að
aðhyllast byltingarstefnu? Þessu
lætur dómurinn ósvarað þrátt
fyrir að byltingarstefnan sé
óvéfengjanlega þungamiðjan í
■ Bollagata 12, hið umdeilda og eftirsótta hús.
öllum kennmgum og starfi
Marx, Engels og Leníns og því
geta engir verið marxistar-len-
ínistar án þess að vera byltingar-
sinnar.
Þetta eru aðeins nokkur dæmi
um mótsagnir og geðþóttaálykt-
anir dómsúrskurðarins í þessu
máli, auk þess sem hvarvetna er
reynt að hundsa og útvatna rök
samtakanna en upphefja rök
gagnaðila.
Þetta er aðeins eitt dæmi sem
sýnir að dómskerfið er í hönd-
um ríkjandi stéttar og er notað
í hennar þágu þegar á þarf að
halda.
Reykjavík 19. apríl 1984
Baráttusamtökin fyrir
stofnun Kommúnista-
flokks
Athugasemd: Millifyrirsagnir
eru blaðsins
Amnesty Intemational:
Samviskufangar
aprílmánaðar
Alþjóða mannréttinda-
samtökin Amnesty Internation-
al vilja vekja athygli almennings
á málum eftirtalinna þriggja
samviskufanga í aprílmánuði.
Jafnframt vonast samtökin til
að fólk sjái sér fært að skrifa
bréf til hjálpar þessum föngum
til þess að sýna þannig í verki
andstöðu við að slík mannrétt-
indabrot séu framin.
Júgóslavía. Emrush SALI-
JEVSKI, götusali af albönskum
ættum, giftur og níu barna faðir.
Hann afplánar nú fimm ára
fangelsisdóm. Það sem hann í
stuttu máli er sakaður um er
eftirfarandi:
1. Að hafa selt segulbands-
upptökur með útvarpssending-
um albanska útvarpsins - Al-
bania’s Radio Tirana - þar sem
fram kom gagnrýni á meðferð
júgóslavneskra stjórnvalda á
þeim Júgóslövum af albönskum
ættum er tóku þátt í sjálfstæð-
isbaráttu fyrir Kosovo hérað í
mars og apríl 1981.
2. Að hafa í fórum sínum
snældur með albönskum þjóð-
ernissöngvum, sem, að mati
réttarins gátu valdið sundrung
meðal júgóslavnesku þjóðar-
innar.
3. Að Emrush Salijevski hafi
hlustað á þessar snældur í
viðurvist margra vitna.
4. Að hann hafi látið í ljós
óánægju með hvað Albanir í
Macedoniu höfðu sýnt litla sam-
stöðu við þá kröfugerð að Kos-
ovo hérað (hluti Serbíu) yrði
sjálfstæð eining innan Júgó-
slavíu.
Emrush Salijevsky afplánar
sinn dóm í Idrizovo fangelsinu,
nálægtSkopje. Hannerfatlaður
og er sagður eiga við vanheilsu
að stríða.
Vinsamlegast sendið kurteis-
lega orðað bréf, og biðjið um að
hann verði látinn laus.
Skriflð til: His Excellency
The President of the
Presidency of the SFRJ
Bul. Lenjina 2
Belgrade
Yugoslavia
Haiti. Delmond CHOULO-
UTE tæplega fimmtugur Hait-
ibúi, fyrrverandi hermaður.
Hann hefur verið í haldi síðan
1979, án þess að hafa hlotið
nokkurn dóm og án þess að mál
hans hafi komið fyrir rétt. Yfir-
völd á Haiti hafa neitað að hann
sé hafður í haldi. Árið 1960
yfirgaf hann landið og dvaldist í
13 ár í nágrannaríkinu Dómin-
iska lýðveldið. Hann fór frá
Haiti vegna hótana af hálfu
Tontons hersveitanna, og vegna
andstæðra skoðana við þáver-
andi forseta landsins, Dr. Fran-
cois Duvalier. Árið 1979 kom
hann aftur til Haiti t.þ.a. heim-
sækja foreldra sína. Nokkrum
dögum eftir heimkomuna var
hann handtekinn í bænum Croix
des Bouquets, nálægt höfuð-
borginni Port-au-Prince. Yfir-
völd viðurkenndu ekki að hann
hefði verið handtekinn, og það
var ekki fyrr en 1981 að Amn-
esty samtökin fengu upplýsingar
um hvar hann væri niðurkom-
inn. Var það í gegnum óopin-
berar heimildir sem upplýstu að
hann, ásamt öðrum pólitískum
föngum væri í haldi í „The
National Penitentiary“ í Port-
au-Prince. Yfirvöld á Haiti hafa
enn ekki viðurkennt að Del-
mond Chouloute sé hafður í
haldi. Hvorki hann né aðrir
pólitískir fangar sem þarna eru
hafa fengið neinn dóm, þeir
hafa ekki fengið að leita til
lögfræðings, og mál þeirra hafa
ekki komið fyrir rétt.
Að mati Amnesty samtak-
anna var Delmond Chouloute
handtekinn vegna andstæðra
skoðana sinna við stjórnvöld á
Haiti. Vitað er að hann hefur
ekki beitt valdi né hvatt aðra til
þess.
Vinsamlegast sendið'kurteis-
lega orðað bréf og biðjið um að
hann verði látinn laus úr haldi.
Skrifið til: Son Excellence
Jean-Claude Duvalier
Président-á-Vie
Palais National
Port-au-Prince
Haiti
Bangladesh. Golam MAZ-
ED, ritstjóri dagblaðsins „The
Dainik Runner" og vikuritsins
Ganamanash í Bangladesh.
Hann var handtekinn þann 9.
febrúar 1983, fundinn sekur og
dæmdur í 3ja ára fangelsi og
þrælkunarvinnu. Ástæðan fyrir
dómnum var sú að hann hafði
birt í blöðum sínum fimm blaða-
greinar sem voru álitnar í and-
stöðu við stefnu stjórnarinnar.
Þær blaðagreinar sem hér um
ræðir, birtust á þeim tíma sem
fram fóru víðtæk mótmæli gegn
áframhaldandi herlögum í land-
inu. Fjöldi manns sem þátt tóku
í þessum mótmælum var hand-
tekinn en eftir því sem Amnesty
samtökin komast næst, þá hafa
allir nema Golam Mazed verið
látnir lausir úr haldi. Amnesty
samtökin hafa tekið hann að sér
sem samviskufanga, þar sem
þau álíta hann vera í haldi
vegna sinna skoðana. Samtökin
hafa og áhyggjur af þróun her-
dómstóla í landinu, svipuðum
þeim er dæmdi Golam Mazed.
Þar er ekki leyfður löglegur
verjandi (en ákærði má þiggja
hjálp frá „vinum"), -og bannað
er að áfrýja málum. Golam
Mazed er í Sylhet Central fang-
elsinu. Hann er sagður heilsu-
veill, vinstri fótur hans mun
vera lamaður, og hann þjáist af
of háum blóðþrýstingi.
Vinsamlegast sendið kurteis-
lega orðað bréf og biðjið um að
Golam Mozed verði látinn laus
úr haldi.
Skríflð til: His Excellency
President H.M Ershad
Chief Martial Law
Administrator
Office of the Chief Martial
Law Administration
Dhaka
Bangladesh
VIPPU-
bílskúrshurðin
Lagerstærðir 210 x 270 cm,
aðrar stærðir eru smíðaðar eftir beiðni
Gluggasmiðjan Síðumúla 20
Reykjavík - Símar 38220 og 81080
y^^//////////////////////^