NT - 15.05.1984, Qupperneq 18
IU
Þridjudagur 15. maí 1984 1 8
Rás 2 kl. 17.00-18
Frístund
á sér fréttaritaranet um
allt hlustunarsvæði Rásar 2
■ „Það koma mörg bréf til
þáttarins, ég gæti trúað að þau
séu allt að 400 að meðaltali á
hverri viku“, segir Eðvarð Ing-
ólfsson um samskipti þáttar
síns Frístund, sem er á
dagskrá Rásar 2 á þriðju-
dögum kl. 17.00 - 18.00, og
hlustenda hans.
Eðvarð segir okkur enn-
fremur að hann hafi komið sér
upp slíku fréttaritarakerfi í
sambandi við þessar bréfa-
skriftir, að hann sé nánast með
einhvern á hverjum stað á
hlustunarsvæði Rásar 2, sem
hann geti hringt í. „Það er
virkilega gaman finnst mér
hvað krakkarnir eru viljugir að
skrifa og mér finnst ég ná svo
miklu betra sambandi við þau.
Maður færi annars að örvænta
við svona unglingaþátt, ef
maður næði ekki góðu sam-
bandi við krakkana. Þarna fæ
Útvarp kl. 20.
ég ýmsar hugmyndir, t.d.
hvernig tónlist þau vilja hlusta
á. Og krakkarnir gefa kost á
sér í viðtöl og taka að sér að
standa að vinsældakosningum.
Það gerir mína vinnu svo miklu
auðveldari", segir Eðvarð.
í þættinum í dag verður 15
ára stúlka, Huldís Zawelski,
aðstoðarþulurEðvarðs. Annar
hluti leikþáttarins 15 ára eða
um það bil verður fluttur og
það eru 15 ára krakkar úr
Álftamýrarskóla, sem annast
flutninginn. Hringt verður út
á land að venju og að þessu
sinni er það Selfoss, sem verð-
ur fyrir valinu. 8. bekkur í
Hólabrekkuskóla kynnir 3
vinsælustu lög vikunnar. í
starfskynningunni verður starf
kennara tekið fyrir. Og svo
verður auðvitað getraunin á
sínum stað.
Tekst Philip að krækja í Undulnu á endanum?
Sjónvarp kfi. 21.10:
Lokaþáttur Snáksins
Eldhúsdags
umræður
■ í kvöld kl. 20 hefjast al- flokkur til umráða 15-20 mín-
mennar stjórnmálaumræður í útur í fyrri umferð og 10-15
sameinuðu þingi. Umferðir mínútur í hinni síðari.
verða tvær, og fær hver þing-
Rás 2 kl. 14.00-16.
■ Nú líður að lokum
Snáksins. Síðasti þáttur verður
á skjánum í kvöld og hefst kl.
21.10.
Mörgum hefur reynst torvelt
á stundum að átta sig á sögu-
þræði í þáttunum, og það er
oft ekki fyrr en atburðarás
þáttarins á undan er rakin í
þeim, sem næst á eftir kemur,
sem rennur upp fyrir áhorfend-
um Ijós. En samkvæmt þeim
upplýsingum, sem við höfum
aflað okkur, hafa atburðir
gengið eitthvað á þessa leið:
Arabiskt sendiráð í Róm
verður fyrir barðinu á óþekkt-
um hópi fjárkúgara, Snáknum.
Hann krefst 300 milljóna
króna gjalds, ellegar birti hann
opinberlega vísindalega leyni-
skýrslu, sem fjalli um olíu.
Arabarnir gera ítrekaðar og
djarflegar tilraunir til að „af-
vopna“ Snákinn. Einhverja
grein gera þeir sér fyrir hver
standi að baki fjárkúgurunum,
og hafa fulla vissu fyrir því, að
það hljóti að vera vísindamað-
ur. Arabarnir hefjast því þegar
handa við að koma fyrir kattar-
nef hinum og þessum vísinda-
mönnum hér og þar, í
Hamborg, Amsterdam og á
Ítalíu. Þeir gera tilraun til að
skjóta niðureinkaflugvél Don-
aldos með eldflaug. Þeir senda
froskmann til að drepa jarð-
fræðing á eyju einni.
Fljótlega kemur í ljós, að
miðpunktur atburðanna er
G.B. Donaldo, iðnjöfur, sem
fer ekki troðnar slóðir, og
Undulna Singer, sem er túlkur
í þjónustu hans. Philip Quar-
tara er vinur Donaldos og
hann flækist óafvitandi inn í
málin. Hann verður ástfanginn
af Undulnu, en enginn upplýsir
hann um hvernig landið liggur.
Án þess að hafa hugmynd um,
hvað er í raun og veru að
gerast, verður það hlutskipti
hans að klóra sig fram úr einni
klípunni af annarri.
Árabarnir fá veður af því,
að Donaldo muni vera flæktur
í fjárkúgunarmálið, en þá
tekur hann skyndilega upp á
því að flýja af hólmi. Arabarn-
ir ræna þá Philip og Undulnu,
en þeim tekst að komast undan
á flótta og liggur leiðin um
miðaldakirkjur, katakombur
og aðra merkilega staði í Róm.
Arabarnir reyna að draga
málið á langinn. Þeir borga
hluta upphæðarinnar, sem
krafist er, en sú greiðsla er
ætluð til að leiða þá á braut
fjárkúgarans, sem þeir reyna
að klófesta, þegar hann kemur
að sækja féð. Fjárkúgarinn
reynist vera Donaldo, og hon-
um tekst að komast undan
andstæðingum sínum í æsi-
legum eltingaleik.
En nú er farið að hitna undir
iljum Donaldos. Hann leitar
aðstoðar Philips og viðurkenn-
ir að hann sé höfundur skýrsl-
unnarfrægu. Hann viðurkenn-
ir einnig, að hún sé fölsuð!
Henni sé ætlað að sanna, að ef
borað er nógu djúpt niður, eða
í 11.000 metra dýpt,megifinna
olíu hvar sem er á jörðinni, á
Spáni, í Sviss, Þýskalandi,
Massachusetts, Svíþjóð - og í
nágrenni Moskvu.
Meira segjum við ekki í bili,
eiunú er bara að setjast fyrir
framan skjáinn í kvöld kl.
21.10 og fylgjast með því,
hvernig leikurinn endar.
Útvarp kl. 17.
Fréttir
á ensku
■ í gær kl. 17.00 hófst nýr
liður á dagskrá útvarps, fréttir1
á ensku, og verður hann alla
daga vikunnar á sama tíma
framvegis. Fréttalesturinn
stendur í u.þ.b. 5 mínútur.
Kári Jónasson fréttamaður
tjáði okkur, að þessi liður
hefði verið á dagskrá útvarps
áður, en síðan fallið niður.
Mikið hafi verið spurt um þetta
mál á undanförnum árum og
ferðamálayfirvöld ýtt á eftir
því að aftur yrði upp tekinn
fréttalestur á ensku. Það eru
sem sagt Ferðamálaráð og
Ríkisútvarpið, sem standa að
þessum útsendingum í samein-
ingu.
A þessum 5 mínútum verða
lesnar helstu erlendar fréttir,
innlendar fréttir, veðurfregnir,
samgöngufréttir og annað, sem
þeir útvarps- og ferðamála-
menn álíta að komi útlending-
um hér á landi til góða.
Það verða nokkrir ensku-
mælandi útlendingar, sem hafa
verið í mörg ár á íslandi, sem
munu annast þessar fréttir til
skiptis í sumar.
Að sögn Kára er ráðgert
síðar meir, að þessi sami frétta-
pistill verði lesinn inn á sím-
svara, sem má hringja í allan
sólarhringinn og fá helstu frétt-
ir og veðurfréttir.
■ Nú geta erlendir ferða-
menn og aðrir útlendingar,
sem skilja ensku, fylgst með
helstu fréttum.
Útvarp kl. 10.45:
Vagg og velta
með hefðbundnum hætti Kona segir frá banalegu Gríms
Thomsen í þættinum „Ljáðu méreyra“
■ Þáttur Gísla Sveins Lofts-
sonar, Vagg og velta, er á
sínum stað á Rás 2 í dag.
Þátturinn verður með hefð-
bundnum hætti, segir Gísli
Sveinn okkur. „Formið er það,
að þátturinn er eiginlega þrí-
skiptur. Ég er með úrtak ai
bæði innlendum og erlendum
vinsældalistum framan af í
þættinum. Um miðbik hans er
ég með dagskrá með yfirleitt
eldri listamönnum eða hljóm-
sveitum, kannski 1 eða 2 lista-
menn eða hljómsveitir og spila
þá gjarna 4-5 lög með hvorum.
Þetta er upprifjun, sem getur
náð allt til fimmta eða sjötta
áratugarins. Síðast í þættinum
er ég svo yfirleitt með ný
erlend lög,“ segir Gísli Sveinn.
Nýjustu íslensku lögin fá
jafnan umfjöllun í þættinum,
en að öðru leyti segist Gísli
Sveinn láta öðrum þáttum eftir
að fjalla um íslenska tónlist.
En ramminn um tónlistarvalið
er fyrst og fremst, að hún falli
undir það, sem kallað er dæg-
urlagatónlist eða popptónlist.
■ í útvarpi í dag kl. 10.45 er
á dagskrá þáttur Málmfríðar
Sigurðardóttur, Jaðri, „Ljáðu
mér eyra“, en sá þáttur er á
hálfsmánaðarfresti og kemur
frá RÚVAK.
í þættinum í dag segist
Málmfríður ætla að lesa frá-
sögn gamallar konu, sem ung
stúlka var vinnukona á Bessa-
stöðum í tíð Gríms Thomsen
þar. Þar koma fram hennar,
viðhorf til húsbændanna og
Gríms og þetta er athyglisverð
frásögn, segir Málmfríður, því
að þessi kona er ein af þeim,
sem vöktu yfir Grími í bana-
legunni.
Kona þessi hét Kristrún Ket-
ilsdóttir. Hún var orðin gömul
kona og komin á elliheimili í
Reykjavík, þegar Ingólfur
Kristjánsson skrifaði þessa
frásögn eftir henni. Þátturinn
birtist í bókinni Fólkið í land-
inu, sem út kom árið 1951.
„Yfirleitt hef ég haldið þess-
um þáttum í því formi að vera
frekar þjóðlegar frásagnir, ef
syo mætti segja, og eitthvað, er
ég hef haldið að væri fremur
við hæfi eldra fólks, því að
þetta er sá tími, sem það fólk
hlustar fyrst og fremst, sem er
ekki í vinnu út á við, er heima
á heimili sínu eðaþá á stofnun-
um“, segir Málmfríður um efni
þátta sinna, sem eins og fyrr
segir eru hálfsmánaðarlega á
dagskrá og verða áfram í
sumar.
Þriðjudagur
15. maí
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55
Daglegt mál. Endurt. þáttur Maröar
Árnasonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorö - Bjarnfríöur Leósdóttir
talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Vökunætur“ eftir Eyjólf Guðm-
undsson Klemenz Jónsson les
(5),
9.20 Leikfiml. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10Veöurfregnir.For-
ustugr. dagbl. (útdr.).
10.45 „Ljáðu mér eyra" Málmfriöur
Siguröardóttir á Jaðri sér um þátt-
inn (RÚVAK).
11.15 Við Pollinn Gestur E. Jónas-
son velur og k ynnir létta tónlist
(RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Spilverk þjóðanna, Þursa-
flokkurinn og Stuðmenn leika
og syngja.
14.0 Ferðaminningar Sveinbjarnar
Egilssonar - seinni hluti Þor-
steinn Hannesson les (24).
14.30 Upptaktur - Guömundur
Benediktsson.
15.30 Tilkynnignar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 íslensk tónlist Karlakórinn
Fóstbræöur syngur „Sjö lög fyrir
karlakór" eftir Jón Nordal; Ragnar
Björnsson stj. / Manuela Wiesler,
Kolbrún Hjaltadóttir, Lovisa
Fjeldsted, Örn Arason og Rut L.
Magnússon flytja „Iskvartett" eftir
Leif Þórarinsson / Hanna Bjarna-
dóttir og Svala Nielsen syngja lög
eftir Fjölni Stefánsson. Guðrún A.
Kristinsdóttir leikur með á pianó /
Wilhelm og Ib Lanzky-Otto leika
með Kammersveit Reykjavikur
„Wiblo" eftir Þorkel Sigurbjörns-
son; Sven Verde stj.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Sfðdegisvakan
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjórnendur:
Margrét Ólafsdóttir og Jórunn Sig-
uröardóttir.
20.00 Útvarp frá Alþingi Almennar
sjtórnmálaumræöur i sameinuðu
þingi (eldhúsdagsumræöur). Um-
ierðir veröa tvær, og fær hver
þingflokkur til umráða 15-20 mín-
útur í fyrri umferð og 10-15 minútur
i hinni siðari. Veöurfregnir. Tón-
leikar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
KIT
Þriðjudagur
15. maí
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir
Tómasson og Jón Ólafsson.
14.00-16.00 Vagg og velta Stjórn-
andi: Gisli Sveinn Loftsson.
16.00-17.00 Þjóðlagaþáttur Stjórn-
andi: Kristján Sigurjónsson.
17.00-18.00 Fristund Stjórnandi:
Eðvarö Ingólfsson.
Þriðjudagur
15. maí
19.35 Hnáturnar 10. Litla hnátan
hún Viðutan. Breskur teikni-
myndaflokkur. Þýðandi Þrándur
Thoroddsen. Sögumaður Edda
Björgvinsdóttir.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Lindýr sem skipta litum
Bresk náttúrulifsmynd um smokk-
fiska og kolkrabba í Suðurhöfum.
Náttúrufræðingar þykjast sjá þess
merki aö þessi lindýr búi yfir tals-
veröri greind og geti jafnvel tjáö sig
meö litbrigöum. Þýöandi Jón O.
Edwald.
21.10 Snákurinn Lokaþáttur. ítalsk-
ur framhaldsmyndaflokkur. Þýð-
andi Þuríður Magnúsdóttir.
22.15 Skógar og skógrækt á ís-
landi „Menningin vex i lundi nýrra
skóga", kvaö Hannes Hafstein i
Aldamótaljóðum. Nú fer í hönd
annatimi skógræktarmanna um
land allt og i tilefni af því er efnt til
þessa umræðu- og upplýsinga-
þáttar í sjónvarpssal. Úmræðum
stýrir Hulda Valtýsdóttir.
23.05 Fréttir í dagskrárlok