NT - 15.05.1984, Blaðsíða 26
- - - Þriðjudagur 15: maf «84" * 26'
■ Þráinn Hafsteinsson er óhcppinn. Hann kemst öruggiega ekki
á Ólympíuleikana í Los Angeles, þar sem hann getur ekki tekist á
við ólympíulágmarkið í tugþraut vegna meiðsla. Myndin er tekin
fyrir tveimur árum er Þráinn átti við öklameiðsli að stríða - nú er
það nárinn sem plagar hann. NT-mynd Tryggvi
Þráinn Hafsteinsson tugþrautarmaður kemst ekki á Ólympíuleikana:
„Búinn að vera“
í sumar - þarf 3-6 mánuði til að jafna mig á meiðslunum
■ Ég er meiddur, og búinn að
vera í sumar. Ég varð fyrir
nárameiðslum í desember, og
síðan hefur þetta smám saman
versnað. Ég er búinn að sætta
mig við þá staðreynd nú, að
komast ekki á Olympíuleikana
í Los Angeles í sumar, maður
hefur verið að gera sér grein
fyrir þessu smám saman. Þessi
meiðsli taka mjög langan tíma
í að gróa, svona 3-6 mánuði
með algerri hvíld. Þetta eru
mikil vonbrigði, maður er bú-
inn að láta sig dreyma um það
lengi að komast á Ólympíu-
leika, sagði Þráinn Hafsteins-
son, tugþrautarmaður í samtali
við NT í gær.
Þráinn stundar nám í íþrótta-
fræðum við háskólann í Ala-
bama. Hann er besti tugþraut-
armaður {slands. íslandsmet
hans, sem hann setti í fyrrasum-
ar, er 7.724 stig, en Olympíu-
lágmarkið er 7.850 stig. Þráinn
var alveg við lágmarkið, og
hefði hann komist hjá meið-
slum, má telja nokkuð öruggt
að hann hefði náð að tryggja
sér sæti í Olýmpíuliði íslands í
Los Angeles. En nú er það fyrir
bí „Beinhimnan rifnaði frá
lífbeininu, þar sem magavöðv-
arnir tengjast við það, það má
kalla þetta nárameiðsli. Þetta
kom fyrir í desember, og hefur
smáversnað síðan. Ég þarf að
■ „Þetta er mjög jákvætt, og
kemur dálítið í staðinn fyrir að
maður kemst ekki á Olympíu-
leikana“, sagði Þráinn Haf-
steinsson í samtalinu við NT,
en hann verður að líkindum
aðstoðarþjálfari frjálsíþrótta-
liðs háskólans í Alabama, þar
sem hann nemur nú íþrótta-
fræði.
„Þeir buðu mér upp á þetta,
hvíla mig algerlega í 3-6 mán-
uði til að þetta grói“ sagði
Þráinn - Hvenær ætlarðu að
hefja hvíldina?
„Ja, það er nú það sem ég er
að hugsa um núna. Fyrst að
maður kemst ekki á Olympíu-
leikana, verður maður að fara
heim og keppa á landsmótum
og ég held ég taki því. Þetta er
spennandi verkefni. Ég verð
þá í þessu með náminu“, sagði
Þráinn, en hann á eitt ár eftir af
námi sínu. Þórdís Gísladóttir,
hástökkvari, unnusta Þráins,
nemur einnig íþróttafræði, og
á einnig eitt ár eftir.
- Er þetta launað starf?
„Þeir borga öll skólagjöld og
annað fyrir mig, og bjóða mér
fyrir HSK, svona í einhverjum
greinum.
Geturðu nokkuð beitt þér?
„Ekki til stórafreka. Ég
skrölti í gegnum tugþrautina á
svæðamótinu í Louisiana um
helgina, inest fyrir stigin til
handa liði skólans. Ég fékk
6.905 stig og varð í þriðja sæti“
svo upp á, ef ég fer í framhalds-
nám við skólann að borga það
og uppihald og húsnæði“.
Hverjar eru framtíðaráætl-
anirnar, á að koma heim og
kenna og þjálfa, eða vera áfram
erlendis?
„Það er alltaf draumurinn að
fara heim og þjálfa, það kemur
ekkert annað til greina. Og
halda áfram að styrkja HSK“,
sagði Þráinn Hafsteinsson.
Ljós í myrkrinu hjá Þráni - hann verður:
Aðstoðarþjálfari í Alabama
Islendingar stóðu sig vel á svæðamótinu í Louisiana:
Fjórir fengu gullverðlaun!
■ Kristján
Harðarson er
einn þeirra sem
eru næstir því
að hreppa eitt
sætanna fjög-
urra sem enn
eru laus í ís-
lenska ólympíu-
liðinu. Kristján
vantar aðeins
10 sentimetra til
að ná lágmarki
íslensku Ólym-
píunefndarinn-
ar.
Kristján
stökk 7,88
metra hárfínt
ógilt á mótinu í
Kaliforníu, svo
að stutt virðist í
að hann nái lág-
markinu.
■ Vésteinn Hafsteinsson sýnir mikið öryggi
þessa dagana. Hann kastaði yfir 60 metra í öllum
köstum sínum í Louisiana um helgina, og þrisvar
yfir 62 metra. Hann náði ólympíulágmarkinu fyrir
allnokkru. NT-mynd G.G.
Kristján með
gott stökk
■ Kristján Harðarson
langstökkvari úr Ármanni
náði ágætum árangri á
svæðamóti háskóla Suðvest-
urríkjanna í frjálsum íþrótt-
um, en mótið var haldið í
Fresno í Kaliforníu um helg-
ina. Kristján stökk 7,74
metra, sem er annar besti
árangur hans, og um leið
annar besti árangur Islend-
ings í greininni.
Kristján setti íslandsmet
á dögunum, 7,80 metra.
Hann stökk 7.88 metra á
mótinu á laugardag, hárfínt
ógilt. Hann er rétt við lág-
mark Ólympíunefndar Is-
lands fyrir leikana í Los
Angeles í sumar, en það er
7,90 metrar. Lágmark Al-
þjóðaólympíunefndarinnar
er 7,80 metrar.
Þorsteinn Þórsson tug-
þrautarmaður keppti einnig
á mótinu í Fresno. Hann
náði þar sínum besta árangri
í tugþraut, náði 7261 stigi.
íris Grönfeldt setti islandsmet í spjótkasti
■ íris Grönfeldt bætti íslandsmetið í spjótkasti
enn um helgina, kastaði nú 55.90 metra. Hún er
allnokkuð frá lágmarki íslensku ólympíunefndar-
innar, sem er 61 metri. En íris sýnir miklar
framfarir, og hefur margbætt íslandsmetið undan-
farin ár. NT-mynd G.G.
■ Sigurður Einarsson er rétt við Ólympíulágmarkið, vantar
að 'kasta 20 sentimetrum lengra í spjótkastinu.
NT-mynd Arni Sæberg
Sigurður rétt við ólympíulágmarkið
■ Fjórir íslendingar hlutu
gullverðlaun á svæðamóti há-
skólanna í Alabama og Louisi-
ana í frjálsum íþróttum sem
haldið var í Baton Rouge í
Louisiana um helgina. íris
Grönfeldt UMSB sigraði í
spjótkasti og setti Islandsmet,
kastaði 55,90 metra, Vésteinn
Hafsteinsson HSK sigraði i
kringlukasti, Þórdís Gísladóttir
ÍR í hástökki og Sigurður Ein-
arsson Ármanni sigraði í spjót-
kasti.
írís Grönfeldt náði sigri í síðasta
kasti sínu, var í öðru sæti fram
í síðustu umferð. Keppandi frá
Tennessee var í fyrsta sæti með
52 metra, en síðan kom metkast
írisar, 55,90 metrar, og þar með
bætti hún Islandsmet sitt frá því
í vor um rúman metra. Það var
54,92 metrar.
Vésteinn Hafsteinsson sigraði
í kringlukasti, kastaði 62,94
metra. Vésteinn sýndi mikið
öryggi, átti öll sín köst yfir 60
metra, og þrjú köst voru yfir 62
metra.
Sigurður Einarsson kastaði
82,62 metra, og sigraði í spjót-
kastinu. Sigurður er í mjög
góðri æfingu þessa dagana og
nánast tímaspursmál hvenær
hann nær ólympíulágmarkinu,
sem er 83 metrar. Sigurður var
þarna nærri sínum besta ár-
angri, hann kastaði 82,80 metra
í mars. Sigurður hefur ekki
kastað á móti síðan, þar sem
meiðsli í hendi hafa hrjáð hann,
en nú virðist hann hafa náð sér
af þeim.
Þórdís Gísladóttir stökk 1,83
metra í hástökki og si'graði.
Hún reyndi við 1,86 metra, en
tókst ekki að komast yfir rána.
Þórdís lenti í bílslysi fyrir rúmri
viku, og hefur ekki náð sér að
fullu, tognaði í hálsi.
Eggert Bogason kastaði 54,34
metra í kringlukasti, og varð í
4. sæti. Eggert varð í 6. sæti í
kúluvarpi, kastaði þar 17,19
metra, og er þetta hans besti
árangur í báðum greinum.
Vésteinn Hafsteinsson kast-
aði einnig kúlu, kastaði 17,34
metra og varð fjórði, hans besti
árangur í greininni.
Þráinn Hafsteinsson keppti í
tugþraut, varð þriðji með 6905
stig, sem er langt frá hans besta,
enda er hann meiddur eins og
kemur fram hér ofar á síðunni.
Guðmundur Skúlason Ár-
manni hljóp 800 metra á 1:59,49
mínútum, en komst ekki í úrslit.
Þetta er þó besti árangur Guð-
mundar á þessu ári.