NT - 29.06.1984, Blaðsíða 7

NT - 29.06.1984, Blaðsíða 7
■ . Lítil og „kósí“, er rétta lýsingin á þessum húsum Mosfells sem hægt er að fá leigð næturlangt fyrir litlar 1580 krónur. Á vinnuborði í kjallaranum rákumst við á Óskar Jónsson í óðaönn við að sníða svamp í axlaböndljaldborgarbakpoka. Þá lá og þarna frammi svefn- poki með múmísniðinu og bú- inn þeirri nýbreytni að hægt er að loka koddastæðinu aftur eins og hettu á úlpu. Uppi sátu svo saumakonurnar á kafi í tjaldsaumi og máttu ekki einu sinni vera að því að líta upp þegar NT mann bar að. Innflutningurinn hefur höggvið stór skörð Á leiðinni niður í kjallara göngum við í gegnum verslun Mosfells, sem er eins og Einar sjálfur orðar það skranbúð þar sem hægt er að fá ótrúlegustu hluti. Hvort sem það eru kaffi- síur. postulínsvasar eða blómapottar, öllu skipulega uppraðað á sinn stað. Ög svo öll framleiðsla saumastofunn- ar. „Innflutningurinn hefur höggvið stór skörð í framleiðsl- una og samkeppnin er mjög hörð núna. Því fer fjarri að við höfurn getað fullnýtt fram- leiðslugetuna síðan hann var gefinnfrjáls. Það er alveg sama í hverju það er. Fyrir nokkrum árum voru til dæmis þessir gulu vinnuvettlingar nær ein- ráðir á markaðinum og fram- leiddir af nokkrum aðilum hér á landi. Nú býðst svo margt annað og meira að segja þessir gulu eru fluttir inn. Það sama er uppi í tjöldunum og yfirleitt öllu,“ segir Einar og dregur ekki upp of glæsta mynd af stöðu íslensks iðnaðar. Til varnar í þessu stríði við erlenda vinnuvettlinga festu þeir félagar kaup á sjálfvirkri prjónavél fyrir vettlinga þar sem ekki þarf annað en að tengja hnotuna við kambana og setja í gang. Síðan detta vettlingarnir út úr vélinni og er þá ekkert eftir nema að falda stroffið. Og að sjálfsögðu er garnið íslenskunnið nylon blandað íslensku ullarbandi. Vindhíf - segl á skíðin! Rúsínan í pylsuendanum í framleiðslu með Tjaldborgar- merkinu, sem alls ekki verður öll talin hér, er vindhíf. íslensk uppfinning sem fram til þess að Tjaldborg hóf þessa fram- leiðslu á síðasta vetri var til í heimasaumi hjá nokkrum ein- En á veturna, hvað er gert við húsið þegar ferðamanna- vertíðinni lýkur? „Það bara bíður yfir vetur- inn eftir næsta sumri,“ segir Einar og með það látum við lokið kaflanum um ferðamálin og víkjum að iðnaðinum. ■ Garnið inn á kambana og vettlingarnir hrannast upp. Keypt til að verjast harðnandi samkeppni við innflutninginn. staklingum. Fyrirbærið er nokkurskonar fallhlffarpoki sem skíðamaður heldur tyrir framan sig og lætur vindinn síðan draga sig áfram. Með stjórnun á lengd bandanna sem tengja skíðamanninn við seglið má nýta hvort sem er með eða hliðarvind og komast á tölu- verða ferð. „En menn þurfa að vera nokkuð færir skíðamenn til þess að þetta komi þeim að gagni“, segir Óskar Jónsson sem á síðastliðnum vetri fór 14 kílómetra leið um reginfjöll á „farartækinu." ■ Saumað á fullu, - og engin stund aflögu fyrir eitt NT bros. i i Meitillinn hf. Þorlákshöfn Sími 99-3700 Fiskvinnsla Útgerð Veitingastaður FOSSNESTI

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.