NT - 29.06.1984, Page 15
Föstudagur 29. júní 1984 15
■ Gamla hótelið eða Veitinga- og gistihús Kaupfélags Skaftfellinga, en það
er ekki lengur talið svara kröfum tímans. Enda samkvæmt heimildum NT hús
sem hefur sál en slíkt tilheyrir ekki nútímanum.
■ Samvinnuhúsin fímm, í eigu SÍS, Samvinnutrygginga, Olíufélagsins,
Kaupfélagsins og Mýrdalshrepps. A innfelldu myndinni eru þau Valgerður
Guðjónsdóttir hótelstýra og Matthías Gíslason kaupfélagsstjóri.
Sannkölluð
samvinnuhús
— Vík var orðinn hálfgerður flöskuháls
á hringveginum, segir
kaupfélagsstjórinn um tildrög þess
að ráðist var í byggingu húsanna
■ í Vík í Mýrdal hafa fimm fy rirt æki
tekið sig saman um byggingu jafn-
margra sumar eða gestahúsa sem
opnuðu nú á vordögum. Eigendur eru
samvinnufyrirtæki og sveitarfélagið
en reksturinn er í höndum eins þeirra,
Kaupfélags Skaftfellinga. Þá er um
þessar mundir verið að Ijúka byggingu
sumarhúss í gömlum burstabæjarstíl
sem áhugamenn um ferðamál hafa
unnið að. Fjármögnun hefur verið í
höndum fyrirtækja á staðnum. Með
opnun þessara húsa er komin gisti-
aðstaða fyrír um 30 manns til viðbótar
við gamla hótelið á staðnum sem í dag
er ekki talið svara kröfum tímans.
„Upphafið að þessu er þrýstingur
frá Samvinnuferðum - Landsýn en
þetta er orðinn hálfgerður flöskuháls
á hringferðalögum þeirra hérna um
landið. Gamla gistihúsið er lítið og
svarar ekki kröfum nútímans", segir
Matthías Gíslason kaupfélagsstjóri í
samtlai við NT, en kaupfélagið sér um
rekstur gestahúsanna. Aðrir eigendur
eru SÍS, Samvinutryggingar, Olíufé-
lagið og Mýrdalshreppur. Utan
sumartímans er ætlunin að húsin verði
gestahús fyrir starfsfólk eignaraðila,
sem geta þá dvalið þar lengri eða
skemmri tíma.
„í sumar er þetta fyrst og fremst
miðað við einnar nætur gistingu hópa
eða dvöl yfir skamman tíma. Alla
mánudaga eru Samvinnuferðir með
hópa hérna og hafa því alla skálana
þá nótt. Þessvegna verður ekki hægt
að leigja húsin út í lengri tíma en sex
nætur í einu til annarra". Það er
Valgerður Guðjónsdóttir sem hefur
orðið en rekstur þessara nýju gesta-
húsa, eins og hún biður okkur fyrir að
kalla þau hefur verið á hennar
höndum. í húsunum eru tvö tveggja
manna herbergi og eldhúskrókur inn
af öðru þeirra. Þá hafa herbergin
sameiginlegt baðherbergi við anddyr-
ið og meðfylgjandi gistingunni er
umhirða um rúm og öll þrif. Nú og svo
er skotspölur frá gistihúsunum að
grillskála staðarins.
Næturgistingin kostar 600 krónur
fyrir einstakling yfir eina nótt, minna
ef margir taka sig saman og vikuúti-
leiga, eða sex nátta, á öllu húsinu
kostar frá 6.000 krónum.
En austurbærinn? Byggingu hans
er senn lokið en hann hefur verið
leigður starfsmannafélagi Reykja-
lundar fram á haust þannig að unn-
endur gamla tímans verða að láta sér
nægja nærveruna við þennan
skemmtilega torfbæ. Þar er hreinlæt-
isaðstaða, eldhús, og stofa á neðri
hæðinni en svefnloft uppi. Burstirnar
eru tvær aðskildar sem tveir bústaðir.
Islenskum hestum hæfa best
íslensk reiðtygi
Höfum til sölu hnakka, höfuðleður, margar
gerðir tauma, gjarðir, enska múla, nasamúla,
stallmúla, ístaðsólar, píska, stoppgjarðir utan á
teymingagjarðir, reiðbuxur, hjálma, peysur,
skeifur, hóffjaðrir, regnkápur.
Ýmsar aðrar smávörur til hestamennsku.
Husbyggjendur - Húseigendur
Eigum á lager byggingatimbur, spónaplötur (venjulegar, rakaþolnar og eldtraustar),
steypujárn, utanhússklæðningu með kvartssteinsmulningi, glerull, álpappír (nælondreginn),
tjörusoðið trétex, veggja- og loftaklæðningar o.m.fl. Höfum einnig til sýnis og sölu
eldhúsinnréttingar, fataskápa, inni- og útihurðir, miðstöðvarofna, gangstétta- og garðhellur
úr fíber með margföldum styrkleika og helmingi léttari en venjulegar.
Leitið ekki langtyfir skammt og kynnið ykkur verð og greiðslukjör.
BYGGING AFÉLAGIÐ ÁS H F.
Hvolsvelli, símar: 8400, 8382, 8482.
Húseigendur —
útgerðarmenn og
sumarbústaðaeigendur
• Sparíð orkuna með íslenska
Telmaster rafmagnsofninum
• Skvettuvarðir. Ryðfríir
og fyrírferðalitlir
• Frábær hitanýting
rafnatindur
Smiðjuvegi 13
870 Vík í Mýrdal
Sími 99-7157
Skoðið verð og
styðjið íslenskt