NT - 03.07.1984, Blaðsíða 5
Nýtt fiskiðjuver
á Sauðárkróki
5
■ Fiskiðja Sauðárkróks hefur
nú lokið við að reisa nýtt físk-
iðjuver og beinamjölsverk-
smiðju sem eru fjögur þúsund
fermetrar að stærð. Húsin hafa
þegar verið tekin í notkun.
Oll aðstaða við vinnu og
framleiðslu í hinu nýja fiskiðju-
veri er mjög fullkomin að því er
greinir í fréttatilkynningu og í
fremstu röð sem þekkist hér-
lendis. Verði húsið starfrækt
með fullri nýtingu er áætluð
vinnsla þrjátíu tonn á dag af
hráefni og er þá miðað við eitt
til tvöhundruð manns í vinnu.
Byggingarkostnaður þessara
framkvæmda mun losa hundrað
milljónir króna.
Stærsta varmadæla
landsins í gagnið
■ Ársfundur Sambands ís-
lenskra hitaveitna var haldinn á
Akureyri um helgina. Aðalmál
fundarins voru varmadælur og
var stærsta varmadæla landsins,
sem er á Akureyri, tekin í
notkun um helgina. Þá var
vinnslueftirlit á lághitasvæðum
og samanburður á hitunarkostn-
aði meðal umræðuefna. Á fund-
inum var Vilhelm Steindórsson
hitaveitustjóri á Akureyri
endurkjörinn formaður sam-
bandsins.
Varmadælur þær sem nú eru
að festa rætur í orkubúskap
hérlendis hafa þann eiginleika
að flytja hita úr einu forrni í
annað. Þannig er hægt að vinna
háan hita úr volgu afrennsl-
isvatni. 1 umræðum um vinnslu-
eftirlit kom fram að nauðsyn er
talin á eftirliti með hitasvæðun-
um svo ekki sé gengið á heita-
vatnsforðann í jörðunni, en
hann er nú ekki talinn svo
óþrjótandi sem áður var álitið.
Þá skoraði fundurinn á yfir-
völd að létt yrði söluskatti og
verðjöfnunargjaldi af rafmagni
sem selt er til að dæla heitu
vatni. Taldi fundurinn þetta
óeðlilegt þar eð verið væri að
skattleggja öflun orkunnar og
gerði hitaveitur auk þess illa
samkeppnisfærar við rafmagns-
hitun sem í ofanálag er niður-
greidd.
■ Séð inn í flökunarsalinn
8 Fiskiðjuverið Ljósmynd Hreinn Hreinsson
Harðfiskur
og hvítvín
8 Harðfískur er góður með
smjöri og þurru hvítvíni, ís-
lenski bjórinn er hressandi -
og áfengissnauður og gúrkur
fást á kjörverði, aðeins 5
mörk stykkið eða svo.
Þetta er örlítið brotabrot
af þeim fróðleik um ísland
sem Gudrun Marie Hann-
eck-Kloes hefur safnað sam-
an í handbók fyrir þýskumæl-
andi túrhesta sem ferðast til
íslands á eigin vegum.
Fyrir utan ýmislegt venju-
bundið ferðamannaefni sem
náttúrlega er aðalefni bókar-
innar, hefur Guðrún María
dregið fram ýmsa þjóðlífs-
þætti sem vafalaust eru sér-
kennilegir í augum útlend-
inga, þótt okkur íslendingum
sjálfum þyki sjálfsagðir
hlutir. Þannig ver hún all-
löngu máli í að útskýra nafn-
giftir íslendinga og það
furðulega fyrirbrigði að
símaskránni skuli raðað eftir
fornöfnum.
r
Neytendafélag Borgarfjardar:
„Hagsmunir neytenda og bænda
fara saman í verðlagsmálum"
8 Aðalfundur Neytendafélags Borgar-
fjarðar var haldinn nú fyrir skömmu. Á
fundinum var m.a. samþykkt ályktun þar
sem minnt var á mikilvægi landbúnaðar-
ins fyrir atvinnulíf þjóðarinnar og
byggðaþróunina í landinu. Taldi fundurinn
að á mörgum sviöum tari saman hags-
munir bænda og neytenda í verðlagsmál-
um landbúnaðarafurða og hvatti til auk-
ins samstarfs milli bændasamtaka og
neytendasamtaka.
8 Sóknarprestur ásamt þingfulltrúum að aflokinni friðarguðsþjónustu í Reykholts-
kirkju.
Friðarguðsþjónusta
í Reykholtskirkju
8 Ádögunum varhaldið kirkju í framhaldi af þing- dikaði og Ingibjörg Þor-
í Reykholti þing Sam- inu, þar sem sóknarprest- steinsdóttir annaðist org-
bands borgfirskra kvenna. urinn, séra Geir Waage anleik. Þingfulltrúar að-
Fjölsótt friðarguðsþjón- þjónaði fyrir altari, frú stoðuðu að öðru leyti við
usta fór fram í Reykholts- Sigríður Thörlacius pré- guðsþjónustuna.
MEGRUN
án mæðu
FIRMALOSS GRENNINGARDUFT
Útsölustaðir:
Reykjavík og nágr.
Árbæjarapotek.
Borgarapotek,
Háaleitisapotek,
Reykjavíkurapotek,
Vesturbæjarapotek,
Lyfjabúðin Iðunn,
Ingólfur Óskarsson,
Laugavegi 69,
Orkubót, Grensásvegi 7,
Orkulind. Brautarholti 22.
Æfingastöðin,
Engihjalla 8. Kóp.,
Apotek Norðurbæjar.
Hafnarfirði,
Þrekmiðstöðin,
Dalshrauni 4. Hafn.,
Sólnes, Austurströnd 1,
Seltjarnarnesi,
Landið
Elva Ólafsdóttir,
Brimhólabr.31, Vestm.eyj.
Ölfusapotek, Hveragerði,
Álfhildur Steinbjörnsd.,
Reykjabr. 19, Þorlákshöfn,
Erlingur Jónsson,
Hólagata 15. Sandgerði,
Baðstofan Grindavík,
Þel Hárhús, Keflavik,
Apotek Akranes,
Heilsuræktin Borgarnesi,
Partreksapotek, Patreksf.,
Helga Kristinsd.,
Móholt 2, Ísafirði,
Kristín Gunnlaugsd.,
Brimnesv. 28, Flateyri.
Siglufjarðarapotek,
Stjörnuapotek, Akureyri,
Apotek Akureyrar,
Blönduósapotek,
Dalvíkurapotek,
Sauðárkróksapotek,
Apotek Austurlands.
Seyðisfirði,
>fixl«nicikklin j
Dugguvogi 7, sími 35000 •»
PÖIMTUNARSÍMI 35000 I
w©ite!teif f
OKKUR ER ANNT UM HEILSU ÞÍNA