NT - 03.07.1984, Blaðsíða 26

NT - 03.07.1984, Blaðsíða 26
t i 4'% 4 % 'I Þriðjudaguf 3. júlí 1984' ■ Hér er mikið stokkið í leik Árvakurs og Víkverja og hefur enginn betur. Víkverji hafði hinsvegar betur í leiknum.M-mvnd ah Mikið um mörk í 4. deildinni ■ Það var mörgum knöttum sparkað í 4. deiltl um helgina að venju og urðu úrslit á alla vegu. Sumir unnu stórt aðrir lítið og enn aðrir töpuðu. Lítum þá á úrslit leikja helgar- innar: A-riðill Drengur-Haukar 1-1 Hafnir-Ármann 0-5 Víkverji-Árvakur 1-0 Afturelding-Augnablik 2-0 Haukarnir töpuðu dýr- mætum stigum í baráttunni við Ármenninga í riðlinum. Leikurinn hófst seint vegna þess að hluta af dómaratríói vantaði. Páll Poulsen náði for- ystu fyrir Hauka en Óskar Þór Ólafsson sá um að jafna fyrir Drengina. Einum leikmanni Hauka var vikið af leikvelli. Ármenningar unnu stórt í Höfnum og eru nú efstir í riðlinum. Mörk þeirra gerðu Þráinn Ásmundsson 2, Jóhann Tómasson, Pétur Christiansen og eitt markið var sjálfsmark. Víkverjar stóðu uppi sem sigurvegarar í jöfnum leik. Mark þeirra var frekar skraut- legt, Þröstur Sigurðsson skaut að marki af um 30 m færi og boltinn skoppaði í slána og inn. Afturelding vann sanngjarn- an sigur á Augnabliki úr Kópa- vogi með tveimur mörkum Hafþórs Kristjánssonar. Sigur- inn hefði getað orðið stærri en Aftureldingarmenn fóru illa með færi. Staðan í A-riðli: Ármann 7 6 10 17-4 19 Haukar 7 4 2 1 16-9 14 Víkverji 7 4 12 11-5 13 Augnablik 7 3 13 13-12 10 Afturelding 7 3 0 4 8-10 9 Árvakur 7 2 14 6-7 7 Hafnir 7 115 5-14 4 Drengur 7 115 8-.19 4 B-riðill Hildibrandur-Stokkseyri 5-2 Hveragerði-Drangur 8-0 Eyfellingur-Þór Þ 1-4 Mikið skorað í þessum riðli. Hildibrandar úr Eyjum voru sterkari í uppgjöri toppliðanna og sigruðu Stokkseyringa. Sig- urður Friðriksson kom heima- mönnum í 1-0 og Sigurbjörn Óskarsson bætti við marki áður en Steinþór Einarsson, hinn snjalli leikmaður af Stokkseyri, minnkaði muninn í 2-1. Kári Vigfússon gerði svo þriðja mark Hildibrands en Sólmundur Kristinsson minnk- aði muninn í 3-2 úr vítaspyrnu. Það voru svo Eyjaputtarnir sem áttu síðustu orðin og skoruðu Böðvar Bergþórsson og Sigurbjörn sitt markið hvor. Hvergerðingar voru í bana- stuði og jöfnuðu Drangsmenn við jörðu. Árni Svavarsson og Helgi Þorvaldsson gerðu báðir þrennu og þeir Ólafur Rann- versson og Guðlaugur Stefáns- son bættu við mörkum. Hver- gerðingar voru sérlega sterkir í síðari hálfleik. Þorlákshafnar Þórarar unnu góðan sigur á vængbrotnu liði Eyfellinga (sláttur hafinn undir Eyjafjöllunum). Mörk Þórsara gerðu Ármann Einarsson 2, Guðmundur Gunnarsson og Einar Haraldsson en fyrir heimamenn skoraði Bergþór Sveinsson. Staðan í B-riðli Hildibrandur 6 4 2 0 19-7 14 Stokkseyri 6 4 0 2 19-12 12 Léttir 6 3 2 1 16-7 11 Þór l> 6 3 12 16-10 10 Eyfcllingur 6 2 13 12-14 7 Hveragerði 6 2 0 4 15-19 6 Drangur 6 0 0 6 2-30 0 C-riðill Stefnir-Grótta 2-4 Einn leikur í þessum riðli. Gróttukarlar gerðu góða ferð vestur og sigruðu með mörkum Sverris Sverrissonar sem gerði 2 og Sveinn og Bjarni Sigurðs- son gerðu sitt hvor. Fyrir Stefni skoruðu Olafur Magn- ússon og Hörður Antonsson. Staðan ÍR 7 6 0 1 39-7 18 Bolungarvík 7 4 0 2 13-11 15 Grótta 6 3 0 3 12-14 9 ReynirHn 7 2 14 13-15 7 Leiknir 6 2 13 10-22 7 Grundarfj. 6 2 0 4 11-19 6 Stcfnir 5 1 0 4 5-16 3 D-riðill Hvð't-Svarfdælir 1-4 Geislinn-Svarfdælir 0-2 Góð helgi hjá Svarfdælum og sex stig í pokann. í leiknum gegn Hvöt skoruðu þeir Ingvar Jóhannsson. Kristján Vigfús- son og Arnar Snorrason og eitt markanna var sjálfsmark. Fyr- ir Hvatarmenn skoraði Hrafn Valgarðsson. í leiknum gegn Geislanum voru heimamenn ekki verri aðilinn en urðu samt að horfa á eftir stigunum. Mörkin gerðu Ingvar og Kristján. Staðan í D-riðli Reynir 4 3 1 0 16-3 10 Svarfdælir 4 2 11 11-10 7 Geislinn 3 1 0 2 3-5 3 Skytturnar 3 1 0 2 8-9 3 Hvöt 4 1 0 3 4-15 3 E-riðill Árroðinn-Æskan fr. Tjörnes-Vaskur 2-0 Mjög erfiðlega gekk að ná í forráðamenn Tjörnes og hafð- ist alls ekki uppá hverjir skoruðu fyrir Tjörnesinga. Þetta var þó uppgjör topplið- anna í riðlinum og því mikið um að vera. Staðan í E-riðli Vaskur 4 3 0 111-7 9 Tjörnes 4 3 0 1 8-2 9 Vorboðinn 4 112 8-8 4 Árroðinn 3 1114-5 4 Æskan 3 0 0 2 2-11 0 F-riðill Leiknir-Höttur 5-1 Egill-Hrafnkell 1-0 Súlan-Sindri 2-1 Uppgjör toppliðanna í riðl- inum og Leiknismenn höfðu betur, Víði á Þjóðviljanum til mikillar gleði. Leiknir var sterkari allan leikinn og mörk þeirra gerðu Jón Ingi Tómas- son 2, Svanur Kárason, Jón Jónasson og Gunnar Guð- mundsson. Fyrir Hött skoraði Jón Jónsson. Egill vann nauman sigur á Breiðdælingum og gerði Birkir Jónsson markið. Súlan saltaði Sindramenn og eru Hornfirðingar nú á niður- leið eftir góða byrjun. Mörk Súlunnar gerðu Helgi Jensson og Ársæll Hafsteinsson en ekki tókst að hafa uppá marka- skorara Sindra. Staðan í F-riðli Leiknir F 8 6 2 0 25-3 20 Súlan 8 5 12 18-11 16 Höttur 8 4 2 2 17-13 14 Neisti 7 4 0 3 22-13 12 Sindri 8 3 2 3 13-17 11 UMFB 7 2 0 5 9-19 6 Hrafnkell 8 2 0 6 8-23 6 Egill rauði 8 116 8-21 4 Kvenna lið til Ítalíu ■ Unglingalandslið kvenna í handknattleik fer til Ítalíu 3. júlí í 10 daga keppnisferð. Komið verð- ur heim 12. júlí. Ferðin er farin til að undirbúa stúlkurnar fyrir erfið verkefni á komandi keppnistímabili. Upphaflega stóð til að unglingalandslið karla færi til Ítalíu en sú ferð hefur verið felld út vegna undir- búnings A-landsliðsins fyr- ir OL-leikana. Piltarnir fara þess í stað út í keppnis- ferð á liausti komanda. Unglingalandsliðið sem fer til Italíu er þannig skipað: Halla Geirsdóttir, Fylki markv. Fjóla Þórisdóttir Stjarnan markv. Þorgerdur K. Gunnarsd. ÍR Kristín Arnþórsdóttir ÍR Anna Ólafsdóttir FH Arndís Aradóttir FH Arndís Heiöa Einarsd. FH Björk Hauksdóttir Haukar Anna M. GuðjónsdóttirStjarnan Inga Lára Þórisdóttir Víkingur Valdís Birgisdóttir Víkingur Hanna H. Leifsdóttir Fram Sigurbjörg Sigþórsd. KR Arnheiður Bergsteinsd. Fylki Þjálfari er: Viðar Símon- arson. Liðstjóri er: Björg Guðmundsdóttir. Farar- stjóri: Helga H. Magnús- dóttir. Ennfremur fara utan með liðinu tveir dómarar, sem dæma munu í keppn- inni á Ítalíu. Þeir eru: Gunnar Kjartansson og Rögnvald Erlingsson. Keppt verður í TERAMO á Ítalíu í al- þjóðlegu móti. Þátttöku- liðin verða 300 frá 41 þjóð. Það má því ætla að þátttak- endur verði alls um 3500 einstaklingar. Meðal þátttökuþjóða eru: Frá Afríku: Alsír, Gabon, Lí- býa, Senegal, Túnis, Kamenin og Egyptaland. Frá Ameríku: Columbía, Brasi- lía, Canada. Frá Asíu: Indland, Japan, Lí- banon, Kínverska Tapei, Rauða Kína, Saudi-Arabía, Kuwait og Sýrland. Frá Evrópu: Belgía, Búlgaría, Danmörk, Þýskaland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Ítalía, Júgóslavía, Noregur, Austurríki, Pólland, Portúgal, Svíþjóð, Sviss, Spánn, Tékkóslóvakía, Kýpur, Furstadæmið Monakó og ísland. í TERAMO fara þátt- takendur í gegnum borgina í skrúðgöngu í upphafi móts, þar sem margir munu skarta þjóðbúningum eða einkennum sinna þjóð- landa. Skipuleggjendur keppninnar leggja mikla áherslu á að hver þjóð kynni land sitt sem best og hafa farið fram á að kapp- liðin komi með kynningar- kvikmyndir og Ijósmyndir frá þjóðlífi og af landi sínu. Sett verður upp sérstök landkynningarsýning í tengslum við keppnina. Það er því gott tækifæri fyrir íslensk landkynning- arfyrirtæki og útflytjendur að nota sér þessa ferð ís- lensku stúlknanna sem best í þessu skyni. Þess má geta að stúlk- urnar munu sjálfar annast fjármögnun ferðarinnar með sölu á happdrættis- miðum og kökubasar. Enn- fremur binda þær vonir við að innflytjendur ítalskra vara sem og útflutningsað- ilar styðji við bakið á þeim. Coca-Cola mót á Akureyri ■ Sverrir Þorvaldsson varð sigurvegari í opna Coca-Cola golfmótinu sem haldió var hjá íslandsmótið 1. deild - 9. umferð NT-LIÐ UMFERDARINNAR Grímur Sæmundsen Val (2) Bjarni Sigurðsson ÍA (5) Rúnar Georgsson ÍBK (1) Sigurður Halldórsson ÍA (2) Þorstcinn Þorsteinsson Fram (1) Guðbjörn Tryggvason ÍA (2) Guðmundur Torfason Fram (2) Sigurður Björgvinsson ÍBK (1) Ragnar Margeirsson ÍBK (4) Andri Marteinsson Víkingi (2) Heimir Karlsson Víkingi (4) Golfklúbbi Akureyrar um helgina. Leiknar voru 36 holur með og án forgjafar og lék Sverrir á 159 höggum. í öðru til þriðja sæti urðu Jón Þór Gunnarsson og Sigurður H. Ringsted á 162 höggum og vann Jón aukakeppni þeirra á milli. Með forgjöf urðu efst og jöfn þau Jónína Pálsdóttir og Sverrir og vann Jónína auka- keppni þeirra. Bæði léku á 143 höggum nettó. í þriðja sæti var Jóhann Pétur Andersen á ,144 höggum. Verksmiðjan Vífilfell - Coca-Cola - umboðið á Islandi gaf öll verðlaun og voru þau hin glæsilegustu. Nær allir verðlaunahafar á mótinu voru frá Golfklúbbi Akureyr- ar. Veitt voru mörg aukaverð- laun og aðalverðlaunin voru hin glæsilegustu. ■ Þetta eru sigurvegarar á Þjóðhátíðarmóti í hjólreiðum sem haldið var 16. júní sl. á vegum Hjólreiðafélags Reykjavíkur. Hjólaðir voru 4 kílómetrar, og keppt í tveimur flokkum, almenningsflokki og keppnisflokki. Sigurvegari í keppnisflokki varð Einar Jóhannsson, Elvar Erlingsson varð annar og Jónas Sverrisson þriöji. 1 almenningsflokki sigraði Kristinn Kristinsson, Helgi Garðarsson varð annar og Baldur Grétarsson varð þriðji.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.